brrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr
þegar hitastigið í herberginu manns er ekki nema 12°c er fræðilega ómögulegt að koma sér fram úr rúminu. Sem leiðir af sér að ef súkkulaði er það eina matarkyns sem er í seilingarfjarlægð verður morgunmaturinn súkkulaði. Feita feita í Köben með þessu áframhaldi. Þetta varð svo til þess að ég drattaðist ekki fram úr fyrr en var langt liðið á dag og kom ekki í verk helmingnum af því sem ég ætlaði að gera. Svo sem allt í lagi þar sem helmingurinn sem ég kom ekki í verk var einmitt sá sem sneri að þrifum og hvort sem er ekkert vit í að þrífa þegar maður er að fara burt í viku - verður komið fullt af nýju ryki þegar ég kem aftur og alveg eins gott að taka þetta allt í einu.
Annars fannst mér allt í lagi þó kólnaði í veðri í vikunni - meðan það var á kostnað rigningarinnar. Í morgun var hins vegar bæði skítkalt og rigning, eða eiginlega slydda. ojbjakk, þá vil ég heldur snjókomuna eins og var á mánudaginn. Ekki samt á morgun, þá þarf ég að komast leiðar minnar fljótt og vel.
Gærdagurinn (fimmtudagur) var svona almennt bara kolómögulegur. Ætla svo sem ekkert að útlista það hvað olli en var svona sambland af eigin heimsku og leiðindum annarra. Náði þó alla vega EANP kúrsinum en 9 hættir samt alveg að vera eitthvað skemmtileg einkunn þegar skalinn nær upp í 13:(Stefni að því við tækifæri að útlista hvernig prófið fór fram - er sem sagt ekki alveg sátt!
Óánægja með einkunn var þó langt í frá að vera það versta við daginn, meira svona sönnun fyrir því að lengi getur vont versnað. Vorkenndi mér ógurlega fram eftir degi en fór svo að fá fréttir af vinum og ættingjum sem eiga við svo margfalt erfiðari hluti að stríða þessa dagana að öll mín vandamál hurfu í einum grænum. Lífið getur verið svo ósanngjarnt við suma:(
Alla vega, komin í vikufrí eftir próflestur dauðans síðustu þrjár vikur og ýmislegt planað næstu daga. Aðalmarkmiðið samt að gera bara það sem mig langar til sem verður sjálfsagt eitthvað mest lítið. Ágætis tilbreyting samt að vita nákvæmlega hvað mann langar til, er ekki alltaf svo gott hjá sveitalubbanum
Þetta er örugglega leiðinlegasta bloggfærsla í heimi en eftir geðvonsku undanfarinna daga var svo sem ekki von á öðru. Ætli það sé ennþá einhver að lesa??
Endilega haldið samt áfram að kommenta eins hressilega og við síðustu færslu. Var mjög ánægð með viðbrögðin. Ekki að spyrja að því að þegar Sólbakka ölskyldan kemst á snoðir um síðuna fjölgar um 500% í lesendahópnum
En nóg í bili. Eurovisionhúnvetningafyrrverandivíðigerðisstarfsmannapartýsumræðan verður tekin aftur upp seinna. Nenni ekki núna. Jú og svo er fullyrðing Á.Ó. um að hún sé best hæf til að HAFA STJÓRN Á DRYKKJU alveg efni í sérstaka færslu.
kveðja frá Köben
Lubbinn í skítakulda en á leið í betra skap:)

9 Comments:
Góða skemmtun á þorrablóti :)
kv Þorbjörg
Þú gleymdir einum staf F - það heitir EKKI ölskyldan!!!!Á.Ó
en þið haldið ölskyldumót, ekki satt Ása mín????? Þarf ekki flókna röksemdafærslu til að finna út að þið séuð þá ölskylda...
Ása mín hvað varstu búin að hita mikið upp fyrir þorrablótið þegar þú kommentaðir? Ég hélt nefnilega að það vantaði bæði f og j í fjölskylda þegar maður skrifar það sem ölskylda :)
Hahahahaha, nei þetta er FÖL-skylda, mikil þörf á ljósabekkjum þarna!
Sæl þú mikli bloggari, ég skal hugsa til þín þegar ég fer á fætur í fyrramálið en hjá mér er alla jafna 20 stiga hiti og hitalagnir í gólfinu. Hins vegar er rigning úti svona að jafnaði en þá er nú gott að eiga að mestu vatnsheldan jeppa.
Kv. Gústav
Öl og Föl hvaða máli skiptir það en það var allavega MJÖG gaman á þorrablótinu í Víðihlíð um helgina Á.Ó.
jæja, á ekkert að fara að laga linkana svo maður geti opnað þá? Ég nota sko Mozilla vefvafra og allir linkarnir þínir eru óvirkir með öllu.
farðu nú að drattast til að blogga meira, hefur ekkert betra að gera fram á miðvikudag!!!
Skrifa ummæli
<< Home