þriðjudagur, janúar 16, 2007

eurotrash

hallóhalló

Búið að vera langt bogghlé en er ekki alveg eins gott að opinbera nýja bloggið með þessu eins og hverju öðru. Kem því hvort sem er aldrei í verk að skrifa fréttapistillin sem ég ætlaði að byrja þessa síðu á. Lúkkið á síðunni er samt enn ekki orðið alveg eins og ég vil, kann ekkert á svona tölvu-internetdrasl

En alla vega, það sem ég vildi deila með ykkur er að ég fékk eftirfarandi auglýsingu inn á skólanetfangið mitt rétt í þessu:

"Heeey everybody!Saturday the 20th there will be a "EURO-TRASH" party in Tåsingegade 29! Bringthe most horrible music your country ever produced (on CD or mp3-player, andplease a little bit party music)! The party will start at 18.00, and willfinish before 24.00 (because our neighbours don't like us that much anymore),but of course we will continue somewhere in the city!Hope to see you all!Bonne, Flo and Michel"

Snilld fyrir Íslendinginn; getur ekki verið tilviljun að þetta er einmitt haldið sama kvöld og fyrsta eurovision undankeppnin heima. Að sjálfsögðu mæti ég - með ekkert nema tölvuna og link á ruv.is. Held ég þurfi ekki einu sinni bjór, ekki þegar eurovision er í sjónvarpinu. Á eflaust eftir að slá alla út í lélegum lögum - vona bara að Geir Ólafs verði að syngja, þá er ég pottþétt!!

bíð spennt

Kveðjur frá blönkum, stressuðum og lötum námsmanni í köben:)

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Blessuð og sæl og til hamingju með nýja síðu ;) allavega auðveldara að setja comment á þessa síðu en þá gömlu...
Bara eitt til upplýsinga þá vinn ég hjá Búnaðarsambandi Suðurlands ekki Búnaðarsamtökum Suðurlands :) Ég skil samt ekki þetta hringl í þessum nöfnum á Búnaðarsamböndunum í kring um landið..
Góða skemmtun í partíinu, þú átt örugglega eftir að vinna. Eurovison lög á Íslandi eru nú alltaf frekar leiðinleg....
Bestu kveðjur
Þórey

þriðjudagur, janúar 16, 2007 9:36:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hahahhahaha.... þú rúllar þessu.. þó verð ég að segja að þú ert í harðri samkeppni við Danina - halló Kim Larsen!!
Góða skemmtun
Heiða hundasnyrtir.

þriðjudagur, janúar 16, 2007 8:47:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er ekki mikið verið að auglýsa nýtt blogg en þar sem ég er svo sniðug fann ég þetta alveg sjálf ein og óstudd. :-) Bestu kveðjur til DK og gangi þér vel í Euro trash og öllu öðru
kveðja
GEH

miðvikudagur, janúar 17, 2007 10:02:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvernig gengur með teat jar og milk powder mix?
Allavega, þetta er heldur aðgengilegri síða og vonandi verðuru duglegri að blogga hér heldur en þú varst á þeirri gömlu.
Góða skemmtun og reyndu að drekka þá alla undir borðið, sýna hvernig alvöru sauðfjárbændur á Íslandi eru...
Kveðja frá Keldnaholtinu, Elin

miðvikudagur, janúar 17, 2007 3:00:00 e.h.  
Blogger Helga Hin said...

Hvað meinarðu??? Eurovision rúlar. Heyrirðu það? EUROVISION RÚLAR og það er EKKERT hallærislegt við eurovision - ja, jú... reyndar eru íslensk eurovision-wannabe-lög hallærisleg!
Góða skemmtun í partýinu. Góða bættu okkur svo á tengla listann þinn, samt kannski ekki undir misgáfulega bloggara. Geturðu ekki búið til nýjan flokk sem heitir t.d. fína og flotta fólkið, eða gáfnaljósin eða eitthvað í þeim dúr.
Hlakka til að sjá þig aftur hér suðurfrá!

miðvikudagur, janúar 17, 2007 7:50:00 e.h.  
Blogger Helga Hin said...

ó linkarnir þínir virka ekki. ég var búin að skrifa hér heillangan pistil um hvernig þú lagar það en ég næ ekki að birta það hér í kommentakerfinu. sendu mér email og þá get ég sagt þér hvernig þú lagar þetta: helgrun@gmail.com - þ.e.a.s. ef þú vilt

miðvikudagur, janúar 17, 2007 8:11:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Halló tetta til hamingju med nýju síduna tína gangi tér vel í skólanum;) sjáumst med einn til reidar... muhahahhahhahahh;)

fimmtudagur, janúar 18, 2007 8:01:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home