fimmtudagur, janúar 18, 2007

vika í próf og 9 dagar í eitthvað skemmtilegra....

well well

Sökum gríðarlegra viðbragða við síðasta bloggi mátti ég nú til með að láta í mér heyra aftur þó stutt sé síðan síðast og ég andlaus eftir greinaskrif síðustu daga og lestur næstu daga allt í lagi að vera andlaus fyrir fram ekki satt. Ágætis tilbreyting samt að skipta yfir í íslenskuna.

Ekki það að ég þakki fólki það sérstaklega þó það kommenti fyrst ég hafði fyrir því að fá mér kerfi sem leyfir komment með góðu móti - nú hafið þið enga afsökun lengur- Þórey ég heimta sem sagt komment við hverja færslu. Kemur svo bara í ljós hvort það hafi verið skynsamleg ákvörðun að leyfa öðrum en síðustjóra að tjá sig.

En síðan er í vinnslu, sem á eflaust eftir að taka langan langan tíma, sérstaklega þar sem ég er nú ekkert sérstaklega vel að mér í tölvuvinnslu (takk Helga fyrir leiðbeiningarnar)
Á t.d. eftir að laga nokkra linka greinilega og uppfæra (Færeyingurinn sá t.d. að sér og er kominn aftur heim á klakann og búnaðarsamtök Suðurlands eru víst ekki til).

Annars er lítið að frétta, sit daginn út og inn í verkefnavinnu og próflestri dauðans - kemur sjálfsagt engum á óvart að ég gerði ekki nokkurn skapaðan hlut í svoleiðis fyrri hluta annar og sit í súpunni núna. Finnst einhvern veginn eins og þetta hafi gerst áður. Stefnir allt í að ég haldi bara mitt eigin euro trash party með ríkisútvarpið í tölvunni og annað hvort immunobiology bók eða frumsamda grein um upptöku næringarefna í mjólkurkirtli fyrir framan mig. Alveg mín hugmynd um hvernig gott laugardagskvöld eigi að vera eða þannig. En samt, ef einhver reddar mér laginu sem Geir Ólafs söng eða þessi svissneska með augun í fyrra, þá verð ég bara að mæta í partýið og slá alla út.
Kannski allt í lagi samt að vera bara heima þar sem lubbinn var úti á lífinu um síðustu helgi, bæði föstudags og laugardagskvöld. Ekki hægt annað þegar Víðdælskir djammarar gera sér ferð til Köben. Sigríður systir og Anna Birna í Þórukoti voru sem sagt í systraheimsókn og það var verslað og verslað og drukkinn bjór og kokteilar og meiri bjór o.s.frv.
Alltaf gaman að fá góða gesti en ég er ennþá að safna saman tómum bjórílátum úr öllum krókum og kimum í herberginu, Sigríður....

Gerðist svo sem ekkert sem í frásögur er færandi nema þá helst að ég afsannaði rækilega kenninguna um að ég væri 95% karlmaður.
95% karlmaður hefði nefnilega aldrei farið út á lífið á háum hælum vitandi að hann ætti fyrir höndum, eða öllu heldur fótum, sér klukkutíma labb. Og hana nú - Guðný, taktu eftir þessu ef þú lest þetta.

Alla vega, þetta var gaman og svo er bara spurningin hver ætli að verða næsti gestur. .... margir búnir að boða komu sína og kemur svo í ljós hver/hverjir beila á öllu saman og hverjir ekki:)

og svo í framhaldi af kommentum við síðustu færslu, þetta er hvort eð er orðið alltof langt blogg:

......verður það ekki bara matsatriði Ingveldur hversu margir verða hafðir til reiðar þegar þar að kemur. Óþarfi að setja einhverjar takmarkanir á það fyrir fram:) Þurfum endilega að hafa svona Húnvetninga/fyrrverandi Víðigerðisstarfsmanna partý við tækifæri.

......Gunnfríður hvernig í ósköpunum tókst þér að finna síðuna af sjálfsdáðum og var virkilega ekki nógu góð auglýsing fyrir þig að auglýsa þetta á msn-inu mínu??

....Sleppti bara teat-jarinu Elín og milk powder mix er milk replacer. Svona er ég nú klár

....Helga, Eurovision er bara víst hallærislegt, skemmtilega hallærislegt samt. Og því miður ganga mörg íslensku wannabe eurovisionlögin yfirleitt töluvert lengra en að vera hallærisleg, þau eru hreinlega leiðinleg og mér heyrist að það verði lítil breyting þar á í ár. Eigum við annars kannski að hafa Húnvetninga/fyrrverandi Víðigerðisstarfsmannahittinginn á Eurovision í Finnlandi í vor??

Og að lokum, Oddný láttu mig vita endilega vita hvort þér gangi betur með þessa síðu en þá gömlu - fer að taka því persónulega ef tölvan þín strækar á þessa líka

Þessi færsla var í boði Carlsberg
Bestu kveðjur frá Köben

10 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það er nú óþarfi að láta eins og ég hafi drukkið úr öllum þessum tómu bjórdósum hjá þér... ég hef nú löngum verið þekkt fyrir að vera hófdrykkjumanneskja... jæja ég er farin að drekka dósavínið... :)

fimmtudagur, janúar 18, 2007 10:39:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sigríður hófdrykkjumanneskju, alltaf heyrir maður eitthvað nýtt ;)
En alveg spurning um að kíkja til þín Hallfríður ef maður skyldi slysast út að hitta litlu systir, en hafðu það samt gott þarna í Köben.

kv Þorbjörg Helga

föstudagur, janúar 19, 2007 1:00:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Tja þegar maður notar msn-ið ákaflega lítið þá telst það nú næstum því að sjálfsdáðum að finna þetta þó að það sé auglýst á msn. Svo það var fyrir algera tilviljun að ég rakst hér inn
kveðja af eyrinn þar sem við drekkum sólarkaffi eftir um það bil hálftíma sem er nú reyndar svolítið absúrt þar sem þá verður líklegast ennþá dimmt

föstudagur, janúar 19, 2007 10:26:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Mér líst vel á "Húnvetninga/fyrrverandi Víðigerðisstarfsmannahittinginn á Eurovision í Finnlandi", ekki þarf ég að hugsa um sauðburð þetta árið og því til í tuskið ;o) Ég hef meiri áhyggjur af því að þið verðið allar að taka á móti lömbum og ég verð því ein á Júróinu?!

föstudagur, janúar 19, 2007 8:12:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Spurning um Maríanna þar sem ég verð í vinnu og ég kemmst lítið heim til foreldranna að þú farir þangað í sauðburð eins og forðum daga þegar ég var hjá ykkur vegna fjárleysis heima fyrir, bara svona hugmynd :)
Hundleiðinlegt að komast ekkert í sauðburð.
Enn annars er þetta gott plan að hittast í Finnlandi bara :)

kv Þorbjörg Helga

ps. Hallfríður, þú sérð um að skipuleggja þetta :)

laugardagur, janúar 20, 2007 12:13:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sæl, líst vel á þennan hitting. Vonandi gengur þér vel þarna í útlandinu.
Bestu kveðjur Sveinbjörg

laugardagur, janúar 20, 2007 2:05:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Blessuð og sæl, til hamingju með nýju síðuna :) Ég ætlaði nú varla að þora að opna hana en fylltist svo einhverjum óútskýranlegum krafti og þori og skellti slóðinni inn.... tölvan er ekki hrunin enn þannig að ég myndi segja að þetta sé hið besta mál. Hafðu það sem best kelli mín :)

kveðja, Oddný

laugardagur, janúar 20, 2007 4:31:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég er alltaf að reyna að kommenta hjá þér Hallfríður mín en það gengur hálf brösuglega - ég ætlaði bara að minna fyrrum Víðigerðisvinnukonur á það að ég hef áhuga á Evrovision og gæti alveg hugsað mér að koma með ykkur - þó ekki væri til annars en að hafa stjórn á DRYKKJU ykkar - hver er betur fallin til þess en ÉG. Kveðja. Á.Ó.

mánudagur, janúar 22, 2007 11:31:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ef einhver ætti að geta lóðsað okkur í gegnum júrófrumskóginn þá ert það þú kæra Á.Ó. Legg til að þú verðir fararstjóri þessa fríða hóps, þá munum við munum koma, sjá og sigra ;o)

mánudagur, janúar 22, 2007 1:16:00 e.h.  
Blogger Helga Hin said...

Ehemm... *hóst, hóst*... fyrirgefið, ég fékk bara allt í einu hóstakast yfir fullyrðingum Á.Ó. Ég held ég verði að bjóða mig fram sem vaktstýra fararstjórans. Þ.e.a.s. ég held að einhver verði að stýra drykkju fararstjórans. Ja, þa'eldénú!

þriðjudagur, janúar 23, 2007 3:05:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home