föstudagur, febrúar 09, 2007

föstudagur

Mínar bestu hamingjuóskir með afmælið fær systursonurinn sem bara í gær var langminnsta barn sem ég hafði á ævi minni séð en er samkvæmt minni talningu ÞRETTÁN ÁRA í dag. Held ég hljóti að hafa ruglast einhvers staðar...getur ekki verið að hann sé orðinn svona fullorðinn
Svo fær Þorbjörg Helga sinn skerf af hamingjuóskum líkia. Man ekkert hvað hún er gömul, kann ekki að telja svona hátt, enda alveg nóg að vita hvenær afmælisdagurinn er.

En sjáiði nú þetta. Vísindavefurinn fær líka föstudagsverki.....:)

http://visindavefur.hi.is/

og enn að öðru.
Það er kalt úti, partý í kveld, Unnur og Magga ætla að koma og éta hákarlinn og harðfiskinn með mér ef sambýlingarnir skyldu enn ekki þora þegar þeir verða orðnir fullir:), ætlum samt að vera voða stilltar allar þrjár og ekkert að fara á djammið. Um helgina verður svo lesið (fjárhagurinn leyfir ekki aðra dægrastyttingu og svo á ég ekki hjól lengur og kemst þ.a.l. ekki eitt eða neitt með þægilegu móti)

óvenju stutt færsla núna til að bæta upp fyrir langlokuna síðast. Kom greinilega í ljós að það les enginn svona langar færslur - nema Sigríður systir, enda skuldbundin til þess vegna fjölskyldubanda. 2 eða 3 aðilar spurðu mig að því, eftir að ég birti færsluna hvenær ég hefði komið til Íslands og hversu lengi ég hefði verið. Veit reyndar ekki hvort þetta fólk allt les síðuna svona yfirleitt - engin afsökun samt

Fyrir utan föstudagssvör Vísindavefjarins mæli ég svo með umræðu um sauðfjársamninginn nýja á vef færeyingsins (
http://blog.central.is/eng) , allir að taka þátt og myndir frá hundakrufningu á síðunni hjá dýralæknabaunanum litla (http://blog.central.is/unnur84) (linkur sem heitir hundakrufning neðarlega til vinstri)- svona lítur sem sagt schäfer hundur út að innan:)

Ja hérna, meira að segja stutta færslan orðin allt of löng, er greinilega óstöðvandi

bið að heilsa í bili
Frida:)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home