lata lata
Klappið frá Gunnfríði peppaði mig svo upp í að halda áfram að deila með ykkur skoðunum mínum á hlutum þó þær falli kannski ekki vel að því sem almennt er álitið gott og rétt að ég er alveg komin með nýja færslu í kollinn. Færslu sem er vissulega tengd þeirri síðustu en samt ekki. Hins vegar nenni ég ómögulega að pósta henni núna, eða eiginlega varla að blogga yfirleitt þannig að ég ætla í þetta skipti bara að deila þessu með ykkur:
ÉG ER Í KJÖRÞYNGD !ég kaus það að vera í þessarri þyngd og því er ég í kjörþyngd !
þetta er reyndar stolið af bloggsíðu sem ég rakst inn á um daginn og mér fannst þetta bara svo asskoti sniðugt.
Annað var það ekki í dag fyrir utan að allir verða að gera það fyrir mig að kjósa Eirík Hauksson í eurovision á laugardaginn. Fyrir utan að lagið er gott er maðurinn er bara endalaust flottur (og góður söngvari). Það rifjast alveg upp fyrir mér þegar ég sé atriðið af hverju ég er búin að vera svoooo skotin í honum síðan ég sá hann fyrst í eurovision, ca 8 ára gömul (ræðum ekkert fyrir hversu mörgum árum það var).
Kannski hann sé líka ástæðan fyrir því að ég varð ægilega skotin i öðrum rauðhærðum, síðhærðum sem líka söng vel mörgum mörgum árum seinna (svona "fjarska" skotin samt eins og öll mín skot hafa verið:). Spurning hvort það sé rauði lubbinn eða sönghæfileikarnir.
Ég er búin að horfa nokkuð oft á upptökuna undanfarin kvöld og er komin með nýtt mission í lífinu; ég ætla líka að vera svona töff í leðurbuxunum mínum þegar ég verð orðin svona gömul eins og Eiki er:D.
Það reyndar krefst þess að ég breyti kjörþyngdarskilgreiningunni minni, verð víst aldrei flott í leðurbuxum sem ég kemst ekki í nema í mesta lagi aðra skálmina á....
mvh
Frida

3 Comments:
Já mér veitir ekkert af að tileinka mér þetta kjörþyngdarmottó! Veigarnar sem fást í mjólkurbúðinni eru sko alveg laust við að vera grennandi!
Það væri bara svo leiðinlegt ef Eiki kæmist áfram af því að þá gæti hann ekki verið í júró þættinum á RÚV. Hann er eini maðurinn með viti sem við getum sent í hann. Jah, Páll Óskar myndi sleppa kannski...
jú var reyndar búin að hugsa út í þennan galla. En samt, er tilbúin að fórna því svona einu sinni fyrir að senda hann út. Sérstaklega þar sem það er ósennilegt að ég sjái þá þætti nokkuð í ár.
Hlýtur að finnast einhver sem kæmist skammlaust frá þessu svona einu sinni. Páll Óskar gæti sloppið. Tónar fínt við finnska super-gay gæjann.
Skrifa ummæli
<< Home