Þorramatur
Ef það er eitthvað sem getur komið manni í betra skap er það svipurinn á Svíum og Dönum þegar þeir finna lyktina af kæstum hákarl í fyrsta sinn:)
Þessi grey þorðu ekki einu sinni að smakka...ekki einu sinni harðfiskinn. Sjáum hvað gerist þegar þau verða komin í glas á föstudagskvöldið, kannski eykst kjarkurinn við það.
Annars sá ég frétt í dag sem mér fannst dáldið fyndin. Einhver Dani var skildist mér að áfrýja til hæstaréttar dómi sem hann fékk fyrir að skjóta ökukennara að mig minnir í höfuðið. Byggði hann vörnina á því að skotið hefði hlaupið af fyrir slysni. Hljómar svo sem alveg eins og eitthvað sem vel getur gerst, nema hvað skotin voru tvö...
Hverjar eru líkurnar á því að það hlaupi óvart tvö skot af byssu og bæði beint í höfuðið á fórnarlambinu?
Hæstiréttur mildaði ekki dóminn ótrúlegt en satt.
Annars er mest lítið að frétta hérna (nú tekur við fréttapistill af mér þannig að þeir sem nenna ekki að lesa svoleiðis hætta núna).
Flaug heim til Íslands 27. jan - átti það alveg skilið eftir hrakfarirnar og geðvonskuna á prófdaginn, brunaði beint á Þorrablót í Víðihlíð og skemmti mér alveg hreint bara bærilega. Það alskemmtilegasta við daginn var samt að sjá svipinn á pabba og mömmu þegar ég birtist, hafði bara alveg gleymt að láta þau vita að ég væri að koma;)
Sigríður var meðsek í plottinu og hafði beðið pabba að panta auka miða fyrir vinkonu sína og malaði stöðugt þegar hún var komin heim um þessa vinkonu sína sem væri að koma á blótið.
En alla vega var blótið gott og í framhaldinu komu svo bara dásamlegir letilífsdagar í Víðidalstungunni. Mamma náttúrulega dekraði við mig á allan hátt eins og henni einni er lagiðmeð eldamennsku og kökubakstri allt eftir mínum óskum. Svo var náttúrulega farið í húsin og hrossum og kindum klappað í gríð og erg. Brá mín er held ég frekar að braggast og ég held svei mér þá að Tíbrá hafi heldur stækkað síðan um áramót, er ekki alveg eins lítil og ljót og hún var þá. Svo sem engin fegurðardís en skítt með það.
Á fimmtudagskvöldi skrapp ég í Stórhól, var búin að ætla það lengi en er nú ekki sú duglegasta að fara í heimsóknir án þess að hafa brýnt erindi eins og margir kannski vita. Helst Sirrý og Júlli og Ásta frænka sem sitja uppi með mig í tíma og ótíma án þess að ég hafi nokkurt erindi. Í Stórhól var náttúrulega spjallað um rollur og búskap og sauðfjárrækt langt fram eftir kvöldi. Algjör snilld að koma á staði þar sem maður getur talað um rollur alveg út í eitt, takk fyrir mig bara.
Nú, á föstudegi var svo brunað suður í Borgarfjörð á þorrablót Búvest. Ekki amalegt að vera heima í viku og ná tveimur blótum. Svo gaman að hitta vinnufélagana aftur, verð víst að viðurkenna að ég sakna þeirra nú smá:) já, meira að segja Lunddælinganna sérvitru... Þetta blót tók reyndar enda alltof fljótt en mín var ekki alveg til í að hætta að skemmta sér og skellti sér bara á Kollubar og hékk þar fram að lokun og drattaðist þá heim í gististað til Sirrýar og Júlla sem sitja orðið uppi með mig þegar ég læt sjá mig á Hvanneyrinni. Enda svo sem nóg pláss hjá þeim ennþá:). Var svo sem ekkert margt um manninn né nein feikna stemming á barnum en að sjálfsögðu voru Óðinn og Unnsteinn þar - en ekki hvað. Ég held að þeir séu að hugsa um að koma út til DK og taka mig í kennslustund í bjórdrykkju og barferðum. Eru svoleiðis yfir sig hneikslaðir á mér að hafa bara þrisvar komið á A-vej og aldrei á einhverja aðra bari sem ég man ekki hvað heita en reikna með að skeri sig fyrst og fremst frá öðrum í hóflegri verðlagningu á bjór.
Laugardagurinn fór bara í áframhaldani letilíf (kannski með smá votti af heilsuleysi). Horfði á Spánverja rassskella Íslendinga í handbolta. Var svo sem alveg sama, hæstánægð með strákana eftir mótið þó frammistaðan hafi kannski ekki verið alveg að óskum í öllum leikjunum. Eftir stendur að þó að við eigum ekki besta handboltaliðið eigum við alveg ábyggilega það flottasta - og lang myndarlegasta þjálfarann:)
Seinniparturinn af laugardeginum fór svo aðallega í át. Júlli bakaði þvílíku hnallþórurnar með kaffinu, svo svakalegar að ég held ég hafi sjaldan komist í annað eins sykursjokk og er þó ýmsu vön í þeim efnum. Eftir þá veislu fór ég í afmælisveislu til Ísars Þorra (Ástufrænkusonar) og þar tók við nýr skammtur af alls lags veitingum. Var reyndar enn í svo miklu sykursjokki að ég lét brauðrétti og salöt duga, lagði hreinlega ekki í kökurnar. Á laugardagskvöldinu brunuðum við Sigríður svo í bæinn, lögðum okkur í nokkra klukkutíma hjá Ragnheiði og svo var það bara rútan út á völl um miðja nótt og flug kl. 7:15. Þetta er það versta við þessar heimferðir, er svo skelfing erfitt að þurfa út aftur. En þetta tekur vonandi einhvern tíman enda. Ég komst reyndar að því að það er afar gott að fljúga á sunnudagsmorgnum, var fátt í vélinni enda hafði ég tvö sæti út af fyrir mig og svaf eins og steinn alla leiðina þó það væri skítkalt í vélinni.
Hef svo lítið gert annað en sofa síðan en á morgun tekur alvaran við, næsti kúrs að byrja. Lítur miðað við planið út fyrir að vera mjög áhugaverður en verður víst bara að koma í ljós hvort hann stendur undir væntingum.
en, nóg í bili
læt heyra frá mér við tækifæri
Hallfríður

1 Comments:
Brýtur þetta ekki í bága við orðspor þitt að þú hafir ekki getað borðað sætabrauðið hjá Ástu frænku? Ég beið bara eftir að lesa að þú hefðir farið beint út að hlaupa þegar þú komst úr vélinni!!!
Skrifa ummæli
<< Home