föstudagur, febrúar 23, 2007

stjörnuspeki

Ég gef nú yfirleitt ekki mikið fyrir stjörnuspár (má þó alltaf til með að lesa þær þó ekki sé nema til annars en að geta hrist hausinn yfir vitleysunni). Finnst sjaldnast neitt af því sem kemur fram í stjörnuspám eiga við mig en þó eru á þessu einstöku undantekningar eins og t.d. í Mogganum í dag:

Ljón: Þú átt það til að hugsa of mikið um hlutina, sem getur valdið því að þú hikir og jafnvel drollir við framkvæmdir. Ekki ná öllu hárrétt, kláraðu bara verkið. Þú er frábær þegar þú einu sinni hefst handa.

Það liggur við að ég hallist að því að sá sem þetta skrifar hljóti að þekkja mig- og það töluvert vel bara. Kannski það sé kennari sem einhvern tíman hefur lent í því að sjá mig koma hlaupandi korter yfir skilafrest, ósofin, í stresskasti dauðans, veifandi ritgerðinni/verkefninu óyfirlesnu og glóðvolgu úr prentaranum (jafnvel með inngangkaflann aftast en lokaorðin og heimildaskrána fremst;).

kveðjur úr "fannferginu" í Köben
Hallfríður Ósk

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home