sunnudagur, febrúar 11, 2007

sunnudagspæling

Ég hef svona almennt ekki mjög mikið álit á listamönnum. Alla vega ekki þeim sem eru taldir mestu listamennirnir af listaelítu og snobbliði. Í fyrsta lagi virðist mér þeir oft vera sjálfhverfir og staðfastlega á þeirri skoðun að af því að þeir séu listamenn séu þeir hafnir yfir það að hugsa rökrétt og skynsamlega og allt eigi að snúast í kringum þeirra eigið tilfinningakjaftæði.
Gott dæmi um þetta er Sigurrósar (trúðarnir) meðlimirnir sem standa með grátstafinn í kverkunum með skælandi Bryndísi Schram sér til halds og trausts fyrir framan vinnuvélar í Mosfellsbænum eða einhvers staðar þar um bil og mótmæla vegalagningu því að umferðarhávaðinn muni trufla þeirra viðkvæmu listamannssálir og þeir geti því ekki samið "tónlistina" sína lengur. "So be it", hættiði þá bara að semja eða farið eitthvað annað og fjandinn vorkenni ykkur. Þið eruð hreyfanlegir og vegurinn á eftir að auðvelda ykkur að komast burt!
Ég hef svo sem enga skoðun á þessum vegi, veit ekki einu sinni nákvæmlega hvar hann er en fólk á Reykjavíkursvæðinu sem og annars staðar vill víst gjarnan komast frá A til B og til þess þarf vegi ekki satt??
Alla vega, að standa skælandi fyrir framan verktakann sem hefur ekkert með ákvarðanatökuna að gera og trufla hann í að vinna vinnuna sína finnst mér bara ekki rétta leiðin til að koma skoðunum sínum á framfæri.

En aftur að listamönnunum. Það virðist nefnilega líka almennt gilda að því ljótari eða leiðinlegri sem mér finnst listin vera þeim mun frábærari og betri list á hún að vera. Gott dæmi um þetta er fyrrnefnd Sigurrós; held ég færi ekki á tónleika með þeim nema vera borgað þokkalega fyrir það.
Annað gott dæmi er þetta: http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1252767
Hvernig í ósköpunum getur þetta verið áhrifamesta listaverkið í samfélagi sem telur sig almennt samanstanda af tiltölulega vitibornu fólki. Ég geri mér grein fyrir því að fólk hefur misjafnan smekk en ég neita alveg að trúa því að það sé virkilega til fólk sem finnst hlandskálar fallegar!

Reyndar leiðir þetta allt til þeirrar niðurstöðu að háelítulistamenn eru snillingar á sinn hátt. Ekki í listsköpun heldur í að telja missnobbuðu fólki trú um að það sem þeir skapa með sínum viðkvæmu sálum sé list, OG gífurlegra peninga virði, þrátt fyrir að vera bæði hreinlega ljótt og til einskis nýtilegt.

Ja Fussumsvei!

Kveðja
Hallfríður

(ps. þessir Sigurrósar dúddar eru sjálfsagt ekkert verri en margir aðrir "listamenn", eru bara þægilegt dæmi því þeir eru svo oft í fréttum fyrir einhver trúðslæti)

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég er mjög sammála, ekki myndi ég vilja hafa hlandskál upp á vegg hjá mér og myndi frekar borga gaurnum sem reyndi að eyðileggja skálina eitthvað en þeim sem "bjó hana til"

sunnudagur, febrúar 11, 2007 1:51:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hmmm... er að spá í hver myndi leggjast fyrir jarðýta ef hún væri á leið í Víðidalinn...

Heiðan

sunnudagur, febrúar 11, 2007 6:04:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Klöppum fyrir stelpuni sem þorði að lýsa skoðunum sýnum þrátt fyrir að þær teljist varla "socially acceptible" ef svo má að orði komast. Ég persónulega verð nú oft voðalega þreytt í eyrunum af tónlist Sigurrósar en myndi nú samt ekki sverja fyrir það að mér dytti í hug að grípa til róttækra aðgerða ef ætti t.d að byggja alþjóðaflugvöll inni á Garðsárdal.
kveðja úr R-víkinni
Dr.Eyjafjörður

þriðjudagur, febrúar 13, 2007 4:03:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Mikið er ég sammála þér. Og Sigurrós...nei takk, vonlaus tónlist ef tónlist má kalla!! En áfram með bloggið, gaman að lesa blogg hjá þér, sérstaklega þegar maður er svona mikið sammála þér :o)
Kv. Elin

þriðjudagur, febrúar 13, 2007 7:24:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Get bara ekki stillt mig um að svara kommentunum hérna pínulítið, get ekki byrjað á nýrri færslu fyrr en það er búið:)
Hmmmm; Jarðýtur í Víðidalinn segðirðu Heiða. Þú þekkir mig greinilega nokkuð vel og áttar þig á því að ég myndi kannski ekki taka því alveg þegjandi og hljóðalaust - alla vega ef þeim væri ætlað að koma í veg fyrir að ég gæti búið þar sem ég vil og stundað þá atvinnu sem ég vil, að ég tali nú ekki um ef á einhvern hátt hefði verið brotið á lagalegum rétti mínum sem landeiganda. En ég myndi líka reyna að gera það á þeim stað í ferlinu sem er einhver möguleiki að hafa áhrif, þ.e. í ákvarðanatöku eða skipulagsferlinu en aldrei henda mér skælandi fyrir framan jarðýtu. Reyndar eru sjálfsagt meiri líkur á að komast í sjónvarpið með því að hlamma sér fyrir framan ýtuna þannig að ef ég væri í þeirri stöðu að þurfa á auglýsingu að halda væri ýtuleiðin skynsamlegri; skiljið vonandi hvað ég er að fara:)
Svo er að mínu mati grundvallarmunur á hvort um er að ræða eitthvað sem veldur eyðileggingu á eigum og atvinnu fólks eða hvort verið er að framkvæma eitthvað í nágrenninu sem hefur ekki bein áhrif á búsetu eða atvinnusköpun. Ef maður vill ekki vegi/götur í nágrenni við heimilið sitt eða vinnustaðinn er Stór Reykjavíkursvæðið bara ekki rétti staðurinn.
Sigríður; sá sem skemmdi skálina fínu er samt ef það er þá hægt enn heimskulegri listamaður en sá sem bjó hana til því hann taldi sig actually vera að framkvæma einhverja listsköpun með því að eyðileggja hana.
Þið hinar,gott ég er ekki sú eina sem er svo "anti-listamannsleg" að fíla ekki Sigurrós

þriðjudagur, febrúar 13, 2007 10:21:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sæl ég ætla nu ekki ad tjá mig um neitt sem tengist Sigurrós... ennn ístöltid í Århusum verdur helgina 8 - 10 mars... ef tad er helgi.. allavegana einhverntímann tá;) á ad skella sér??

miðvikudagur, febrúar 14, 2007 8:19:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home