þriðjudagur, febrúar 06, 2007

tölvudrasl, ekki mín deild

var búin að semja í huganum langan reiðilestur um heimskulegt tölvudrasl og ætlaði að setja hann hér inn. Komst svo að því eftir langa mæðu og margar tilraunir að síðan leit í raun allan tímann út eins og hún átti að gera eftir lagfæringar á linkum. Það var bara "previewið" sem sýndi hana alla ruglaða og reiðilesturinn því óþarfur, eða þarf alla vega ekki að vera eins reiður:) Ég eyddi löngum löngum tíma í gær að reyna að finna orsökina. Fullt af tíma farinn fjandans til, tími sem ég hefði kannski getað notað til að blogga, eða bara eitthvað (liggja í leti t.d. - hef reyndar gert það í miklum mæli hvort sem er).
Hins vegar er ég ekkert að nenna að blogga núna, ætla frekar að vita hvort hákarlinn minn slær ekki aðeins á geðvonskuna yfir þessu heimska tölvudóti sem ég skil ekkert í og leggjast svo í bælið og horfa á nokkra friends þætti þangað til ég lognast út af. Hvenær sem það nú verður. Einn dagur eftir í letilífinu og svo byrjar skólinn á miðvikudag.

kemur svo í ljós hvort ég skrifa eitthvað skemmtilegra næst. Þarf þess svo sem ekkert því það er aldeilis ekki markmiðið með þessari síðu að vera til skemmtunar fyrir fólk, nema þá í mesta lagi sjálfa mig (hefur reyndar ekki einu sinni náð því markmiði undanfarið).

fariði annars bara vel með ykkur (og takið eftir því að loksins kom færsla í eðlilegri bloggfærslulengd:)

Hallfríður

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home