fimmtudagur, mars 01, 2007

Eldur í Kaupinhafn

Eldurinn núna er reyndar sem betur fer ekkert i líkingu við þann sem varð upphaflega hvatinn að svo hljóðandi fyrirsögn en ég læt hann vera tilefni til færslu samt.

Ég ákvað sem sagt að skrifa örlítinn pistil núna til að láta vita, svona ef einhver hefur velkst í vafa, að ég er ekki og hef ekki verið úti á götu að berjast í dag og kvöld!
Ég sit á mínum venjulega stað uppi á herbergi og horfi á óeirðirnar eins og bestu spennumynd í danska sjónvarpinu sem sendir stöðugt út beint frá a.m.k. fjórum stöðum í Kaupmannahöfn. Fyrsta skiptið síðan ég kom hérna út sem ég hef kveikt á dönsku sjónvarpi, læt ruv yfirleitt duga.
Eini bardaginn sem ég stend í þessa stundina felst því í að reyna að skilja hvað lafmóðir fréttamenn á hlaupum milli átakasvæða hafa um ástandið að segja. Það kom sem sagt að því að ég bölva sjálfri mér fyrir að hafa ekki reynt að ná upp skilningi á þessu afar illskiljanlega tungumáli (að hluta til kannski afleiðing af því að vera svona trygg ruv...eða bara löt:o).

Ég hef því persónulega lítið orðið vör við hasarinn fyrir utan frásagnir skólafélaga sem þurftu að skáskjóta sér undan fljúgandi múrsteinum á leið í skólann og óvenju mikla þyrluumferð hér yfir alveg síðan í morgun, varla svefnfriður fyrir þessu.

Þó þetta séu kannski ekkert merkilegar óeirðir svona á heimsvísu þá fer ekki hjá því að saklausu sveitastelpunni frá litla friðsæla Íslandi finnst hálf einkennilegt og jafnvel ótrúlegt að atburðir á borð við þessa séu í gangi í innan við tíu mínútna göngufjarlægð frá henni og fylgist því spennt með hverju fram vindur.

Þrátt fyrir vissan spenning fyrir þessu öll saman er ljósi punktur dagsins þó tvímælalaust að ég skuli ekki hafa valið mér til búsetu fyrsta herbergið sem ég skoðaði í haust en það var einmitt á margumtalaðri Nörrebrogade. Ég er því hvorki í verulegri hættu á að lenda í táragasi eða að fá járnstengur, múrsteina eða eitthvað þaðan af verra í hausinn á leið minni í og úr skóla en get í staðinn fylgst með úr þeirri hæfilegu fjarlægð sem vefTV hjá DR býður upp á.

Annars verð ég að segja að ég hef nú frekar takmarkaða samúð með þessum mótmælendum. Hef yfirleitt afar litla samúð með þeim sem taka eigur annarra traustataki (og sú samúð minnkaði ennþá þegar hjólhrossinu mínu var stolið á dögunum). Hafi hins vegar einhvern tíman verið einhver samúð til staðar hjá mér í garð þessara ungmenna þá hvarf hún endanlega þegar þau fóru að leita liðsinnis erlendra "atvinnumótmælenda" sem kemur málið ekki nokkurn hlut við en hafa bara einhverja undarlega þörf fyrir að vera til vandræða. Sjálfsagt álíka mannskapur og útlendingadótið sem flykktist til Íslands í fyrra sumar til að mótmæla Kárahnjúkavirkjun þó að mótmælin þar hafi ekki orðið neitt í líkingu við hasarinn hér.

Held ég láti þetta duga í bili og reyni að einbeita mér að dönskunni aftur. Allar færslurnar sem eru búnar að vera að mótast í kollinum á mér undanfarna daga en ekki ratað inn á netið verða enn að bíða betri tíma. Vantar kapal sem hægt væri að tengja beint úr kollinum á mér inn í tölvuna, þá væri löng færsla hér á síðunni á hverjum degi, meat production ritgerðin komin vel af stað og jafnvel eitthvað farið að gerast í sambandi við mastersverkefni og svo margt fleira.

Nú nú, þessar síðustu línur tóku reyndar það langan tíma að nú eru komnar íþróttafréttir hjá DR þannig að frekari dönskuþjálfun frestast eitthvað en ég segi þetta nú samt gott af skriftum í kvöld

Kveðja
Hafnarstúdentinn (voru þeir ekki annars kallaðir það þessir gömlu frægu sem fóru hingað til náms?)

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þú skalt bara halda þig frá þessu fólki, þetta er ekkert fyrir saklausa Víðdælinga!

fimmtudagur, mars 01, 2007 11:26:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Jamm ég geri ráð fyrir að danskurinn sé búin að diskutera þetta í bak og fyrir og halda því sjálfsagt áfram þar til þetta deyr út af sjálfu sér.
P.S
Hvað er þetta annars með þetta word verification. Maður er látin skrifa heilu ritgerðirnar hérna til að geta sent þér komment

föstudagur, mars 02, 2007 12:34:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég dauðöfunda þig af því að vera þarna í hasarnum, ég og mútta mín horfðum hugfangnar á þetta á DR1 í gærdag og okkur dauðlangaði að vera aaaaaðeins nær ykkur þarna ;)
Ég er nú hálfur dani og skildi nú ekki nema orð og orð á stangli, en lét bara mömmu þýða jafnharðan fyrir mig :o)

föstudagur, mars 02, 2007 8:58:00 e.h.  
Blogger Helga Hin said...

Æi, við hlaupum enn út í glugga ef bíll með sírenur keyrir framhjá! Það þarf svo ósköp lítið til að vekja forvitnina hjá okkur sveitadurgunum!

mánudagur, mars 05, 2007 4:00:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home