föstudagur, mars 23, 2007

enn einn föstudagurinn

Rakst á þessa góðu sögu á síðunni hjá Eyþóri Arnalds rétt í þessu og fannst um að gera að vekja athygli á henni ef einhver skyldi ekki hafa heyrt hana. Mér finnst hún fyndin;) Lítið á, góða skemmtun og góða helgi:)

http://ea.blog.is/blog/ea/#entry-155486

Kveðja
sveitalubbinn sem vildi svooooo gjarnan vera í sumarbústað í Norðurárdal núna, með góðum vinum í heitum potti, með bjór alla vega annarri hendinni og svo í villibráðarveislu annað kvöld. Svoleiðis skemmtun verður hins vegar, eins og svo margt annað skemmtilegt, að bíða næsta árs. Verður mikið að gera hjá mér næsta ár held ég ef ég ætla að ná að gera allt sem mig langar að gera en missi af í ár:)
Gott annars að eiga góða vini sem sjá um að tilkynna manni það þegar maður er að missa af einhverju skemmtilegu - TAKK ÓMAR:(

Í staðinn fyrir bústaðarferð og ölþamb verður helginni hins vegar eytt í að leita að einbeitingu sem virðist vera týnd og tröllum gefin hafi hún einhvern tíman verið til staðar.

Efnisorð:

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home