...og þið hélduð að ykkar líf væri flókið...
Fer ég á fætur klukkutíma seinna á morgun en í dag eða klukkutíma fyrr eða kannski bara bæði klukkutíma fyrr og seinna. Eða nei það er líklega ekki hægt. Hlýtur að vera þannig að ég fari annað hvort klukkutíma seinna á fætur en samt á sama tíma og í dag eða klukkutíma fyrr á fætur en samt á sama tíma og í dag. Ég spái því að það verði klukkutíma seinna en samt á sama tíma og í dag...
Botnar einhver eitthvað í þessu????
Ekki ég alla vega enda ætla ég bara að fara að sofa fljótlega og treysta á að tölvan mín elskuleg ákveði þetta fyrir mig einhvern tíman meðan ég sef (ætlaði að segja á mínu græna eyra en get ekki hugsað mér að bendla mig við græna litinn þannig að ég sleppi þeim parti af setningunni). Tölvan sá alla vega um að leysa þetta vandamál fyrir mig fyrir fimm mánuðum síðan og ég ætla bara að reikna með því að hún geri það aftur. Síminn minn hefur hins vegar greinilega álíka mikinn skilning og vit á svona vandamálum og eigandinn og því ekkert hægt að treysta á hann.
Eins gott samt að þetta plan standist því annars gæti ég misst af messu:)
Ææææóóó, af hverju er verið að flækja hlutina svona. Ljóshærður sveitalubbakollur ofan af Íslandi ræður ekki við svona pælingar, sama hversu mikið menntaður hann verður. Púfffff
En svarið við þessari síðustu spurningu má finna hér.
Og í framhaldi af þessu öllu saman er kannski er rétt að árétta það við ykkur Frónbúa að það sem kemur fram í þessari færslu og fréttinni sem linkurinn vísar á er jafnframt ástæðan fyrir því að hér eftir verða símtöl, sms eða aðrar tilraunir til samskipta við sveitalubbann eftir klukkan 21:30 að íslenskum tíma AFAR óvelkomnar og óvinsælar og gætu orðið tilefni til alvarlegra hikstakasta og almennrar geðvonsku.
Bestu kveðjur frá hálfrugluðum sveitalubba sem stefnir að því að vakna í fyrramálið klukkan átta þó að klukkan verði þá orðin níu nema á Íslandi þar sem hún verður enn bara sjö eins og hún hefur verið í allt haust og allan vetur sama hvort klukkan er átta eða níu hérna....eða eitthvað, ætla alla vega að vakna og helst reyna að gera eitthvað af viti.
(og btw, nú er ég búin að búa hérna úti í 7 mánuði og geðheilsan ekkert versnað mikið enn, þrátt fyrir að sagt sé að lengi geti vont versnað. Best að skreppa og kaupa sér eins og einn öl upp á það:)

Efnisorð: sveitalubbafréttir

1 Comments:
Fjúff...þú ert orðin svo aktíf í blogginu að ég hef bara ekki undan að lesa!
Skrifa ummæli
<< Home