þriðjudagur, mars 06, 2007

nenni ekki....

...að blogga frekar en svo margt annað. Er samt alltaf að fá hugmyndir að efni til að setja hér inn en einhvern veginn hef ég mig bara ekki í að skrifa þær niður á skiljanlegt form og deila þeim með ykkur. Aumingja þið, þið vitið ekki af hverju þið missið:) Í staðinn safnast hugmyndirnar upp í litla ljóshærða kollinum og trufla hann í að einbeita sér að því sem hann ætti að vera að gera. Erfitt mál.

Þessi leti verður líka til þess að margt af þessu efni verður löngu orðið úrelt ef einhvern tíman kemur að því að ég tjái mig um það, nú eða, ef um danskar fréttir að ræða, aðrir miðlar heima búnir að vera á undan mér með þær, sbr. frétt um notkun á nautasæði í hársnyrtivörur sem ég sá á landbrugsavisen og ætlaði að henda hér inn við tækifæri. Heyrði hins vegar á rás 2 um daginn að bændablaðið hafi verið á undan mér með þá frétt. Gott dæmi um hvernig letin hefnir sín. Ég reikna með að flestir ef ekki allir sem lesa þetta séu álíka sveitalubbar þannig að ég er ekkert að setja fréttina hér inn né hafa fleiri orð um það svona yfirleitt

En alla vega þá er ég á lífi, og lífið það gengur bara sinn misskemmtilega vanagang og svo sem ekkert meira um það að segja.
Á morgun er stefnan sett á Jótland að skoða svína- og nautakjötsframleiðslu ásamt meat science deildina á Foulum. Verður fínt að komast aðeins út í sveit. Ef það er eitthvað sem ég læri á þessari dvöl hérna þá er það að borgarlíf á ekki við mig og ég vil búa í sveit, á Íslandi, nánar tiltekið í heittelskuðu Víðidalstungunni minni. Alein með sjálfri mér og kindum, hrossum, hundum eða bara hverjum þeim skepnum sem hugurinn girnist hverju sinni, sem sagt eiga og ráða mér sjálf og þurfa bara að hafa algjör lágmarks samskipti við annað fólk. Vissi þetta svo sem alveg fyrir en er komin með mjög góða staðfestingu á því eftir dvölina hér.
Það versta við þessa ferð á morgun er að það á víst að leggja í hann klukkan hálf sjö í fyrramálið sem er alveg korter fyrir allt of snemma að mínu mati. Jafnframt er svínabúið fyrsta stopp þannig að maður á eftir að anga eins og svín mest allan daginn á morgun. Veit ekki alveg af hverju ég var að hafa fyrir því að fara í sturtu áðan.

Af hverju ætli það sé annars ekki búið að finna upp sjálfhreinisbúnað á fólk, einhverja græju sem maður gæti t.d. sofið í, farið bara inn í að kvöldi og vaknað svo að morgni hreinn og fínn og vellyktandi. Hugsið ykkur tímasparnaðinn:)

En, líklega rétt að fara að sofa í hausinn á sér í nokkra klukkutíma svo maður verði kannski með einhverri rænu á morgun og lognist ekki útaf í einhverri svínastíunni; þær eru reyndar sjálfsagt ekkert mikið óþrifalegri en herbergið mitt þessa stundina, en samt...

Sveitalubbinn býður góða nótt (í töluvert friðsælli Köben en síðast)

ps. það hefur komið í ljós að pirringurinn sem ég minntist á hérna um daginn átti fyllilega rétt á sér. Vandamálið leystist svo sem með góðra manna hjálp, svoleiðis, en mér fannst bara ekki sanngjarnt að það væri svona vandamál til að leysa yfirleitt. Ég og LÍN erum ekki vinir þessa dagana skal ég segja ykkur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home