mánudagur, mars 19, 2007

Rokrasssss

Jæja, þá er búið að senda familíuna aftur heim í blíðuna á Íslandinu eftir svo ósköp notalega og langþráða helgi:)
Langaði nú mest að hlaupa á eftir þeim í vélina og fljúga bara heim en stillti mig. Klárlega það versta við að fá gesti hvað það er erfitt að kveðja þá og mega ekki fara með heim:( Fór samt ekkert að skæla (duglegur lubbi sko) þó ég verði nú að viðurkenna að það örlaði aðeins kekki í hálsi...
Fór beinustu leið heim eftir að hafa skilað gestunum á flugvöllinn og ákvað að eyða restinni af deginum bara í hæfilega sjálfsvorkunn með tilheyrandi leti og sælgætisáti (vildi ekki taka sénsinn á að íslenska nammið skemmdist) frekar en setja allt á fullt í lærdómi. Það verður hins vegar að gerast á morgun; þá þarf nauðsynlega að hefjast lærutörn sem á að standa stanslaust næsta mánuðinn. Nema á Páskadag, þá verður tekin pása til að éta íslenska páskaeggið mitt númer 5. Strax farin að hlakka til að eyða heilum degi liggjandi með tærnar upp í loft, hálflömuð af sykursjokki!!

En helgin var góð. Þvældumst um miðborgina frá morgni til kvölds og voru gestirnir iðulega gengnir upp að hnjám og gaddfreðnir þegar komið var í gististað á kvöldin. Veðrið var nefnilega ekki alveg eins og ég helst hefði óskað, reyndar þurrt en ekta vornæðingur (norðanþræsingur)eins og hann gerist bestur á Íslandi og ég held að pabbi sé ákveðinn í, ef hann fer einhvern tíman aftur til Köben, að hafa þá með sér kraftgallann, hundahúfuna og föðurlandið. Kannski appelsínugula sextíuogsexgráðurnorður vatnsgallann líka, þó það hafi ekki rignt mikið núna veit maður aldrei sko:)

Þau fengu líka að finna fyrir því að skilgreiningin mín á "smá spotta" og "þægilegri göngufjarlægð" snarbreyttist eftir að ég kom hérna út. 15-20 mínútna labb finnst mér ekki lengur neitt tiltökumál þrátt fyrir að hafa undanfarin tvö ár nánast undantekningarlaust keyrt í vinnuna þrátt fyrir að búa að hámarki í 5 mínútna göngufjarlægð frá vinnustaðnum. Svona er að hafa ekki Blesa sinn við höndina...

Við fórum m.a. í Dýragarðinn (eyddum heilum degi þar og veitti ekkert af), nokkrar kirkjur, tvö eða þrjú söfn, horfðum á vaktaskiptin hjá konunglegu lífvörðunum en þau voru með allra veglegasta móti að þessu sinni, lúðrablæstri og fínheitum, eflaust til heiðurs Húnvetningunum. Ég sýndi þeim skólasvæðið og svo var náttúrulega kíkt aðeins í búðir, m.a. mekka íslenskra kvenna - H&M á Strikinu. Skil samt aldrei þessa ofurást íslenskra kvenna sem fara til DK á H&M. Maður heyrir mjög oft um konur sem virðast fara til Köben með það eina markmið að drekka mikinn bjór og eyða fjárfúlgum í H&M sem mér finnst vægast sagt mjög einkennilegt því ég finn yfirleitt ekkert sem mig langar í þar. Einhver skortur á kvenlegheitum kannski??? Ég get hins vegar alveg samþykkt bjórdrykkjumarkmiðið enda alveg sannfærð um að danski Carlsberginn er besti bjór í heimi.

Annars get ég eftir þessa helgi gefið þeim konum sem langar í verslunarferð í Köben og ætla að hafa kallana sína með gott ráð. Byrjið bara á að fara með þá í veiðibúðina á H.C.Örstedsvej 7B, niður í kjallarann nánar til tekið, og látið þá afskiptalausa þar góða stund, helst nokkurn veginn eins lengi og þeir vilja vera þar. Þolinmæðin í öðrum búðum eykst allverulega við þetta (eins konar bónuskerfi sem sagt). Niðri í þessum kjallara er sem sagt alveg hreint ótrúlegt úrval af byssum af öllum mögulegum stærðum og gerðum. Auðvitað hafa ekki allir karlmenn áhuga á skotvopnum en ég leyfi mér að fullyrða að stór hluti þeirra verði eins og krakki í sælgætisbúð þarna inni. Reyndar verð ég að viðurkenna að mér, eins og köllunum, finnst þessi búð mun skemmtilegri en H&M, þetta með kvenlegheitin aftur:)
Alla vega þá virkaði þetta fínt á hann pabba minn. Fórum með hann í þessa búð og eyddum þar eins og klukkutíma eða svo og hann var alveg eins og ljós á strikinu daginn eftir.

Enduðum svo helgina á því að að éta á Jensens Böfhus í gærkvöldi. Feikna góður matur alveg og á hóflegu verði bara, mæli með honum.

Alla vega, þetta var svona það helsta úr Kóngsins Kaupinhafn að þessu sinni. Ég þakka öllum fyrir kveðjurnar góðu sem ég fékk sendar með ferðalöngunum og takk Elín fyrir peysuna, hún er þrælfín alveg.

Best að hætta skriftum í bili, klára úr Carlsbergflöskunni sem stendur á náttborðinu hjá mér, horfa á spaugstofuna frá því á laugardagskvöldið, sofna svo yfir friendsþætti sem ég er búin að horfa á þrisvar eða fjórum sinnum áður (má ekki kaupa mér nýja seríu fyrr en eftir mánuð) og dreyma sætt og rótt um Víðidalinn, kindur og hross í alla nótt.

Godnat alle sammen og knús knús frá sveitalubbaóskinni í Köben

Efnisorð:

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Gott að peysan passar. Þú getur þá allavega notað hana í hesthúsinu þegar þú kemur aftur til Íslands...

þriðjudagur, mars 20, 2007 1:27:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home