laugardagur, apríl 21, 2007

þriðji í sumri

ÉG BIÐ AÐ HEILSA
Nú andar suðrið sæla vindum þýðum.
Á sjónum allar bárur smáar rísa
og flykkjast heim að fögru landi ísa,
að fósturjarðar minnar strönd og hlíðum.


Ó, heilsið öllum heima rómi blíðum
um hæð og sund í drottins ást og friði.
Kyssið þið, bárur, bát á fiskimiði.
Blásið þið, vindar, hlýtt á kinnum fríðum.


Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr, sem fer
með fjaðrabliki háa vegaleysu
í sumardal að kveða kvæðin þín!
Heilsaðu einkum, ef að fyrir ber
engil með húfu og rauðan skúf, í peysu.
Þröstur minn góður, það er stúlkan mín

(Jónas Hallgrímsson)

Með þessu fallega ljóði sendi ég ykkur sem þetta lesið mínar bestu óskir um gleðilegt sumar og þakka fyrir veturinn.

Þetta er eitt af mínum uppáhaldsljóðum og ég er alveg sannfærð um að það hefur einmitt verið um þetta leiti árs sem Jónas samdi það. Jafnframt tel ég víst að honum væri það ekkert á móti skapi þó að kveðjan hans væri enn notuð, hundrað og eitthvað mörgum árum síðar, af námsmönnum í Kaupinhafn til að senda sumarkveðjurnar sínar heim til Íslandsins.

Jújú, ég veit að ég er dáldið sein að koma með sumarkveðjuna (hvenær hef ég svo sem verið á undan áætlun með eitthvað) en þið verðið bara að meta það að hún kom þó fyrir rest.
Ætlunin var að skella þessu inn á sumardaginn fyrsta en þar sem ég lagði land undir fót á síðasta vetrardag og hélt erlendis til að starfa sem aupair varð ekkert úr því. Eins reglusöm og ég er tók ég starf mitt að sjálfsögðu alltof alvarlega til að vera að eyða tímanum í að blogga. Starfsframa mínum sem au pair lauk hins vegar hratt og örugglega tveimur dögum síðar og er ég því komin aftur á slóðir Jónasar og hinna snillinganna allra.

Annars er svo sem lítið að segja. Er of þreytt eftir tveggja tíma dvöl í Field´s í dag (þeir voru heppnir Jónas og Co að það fyrirbæri skyldi ekki vera til þegar þeir voru hér við nám, hefur sparað þeim bæði pening, fótþreytu og geðvonsku) til að nenna að ræða þau þjóðfélagsmál sem kunna að liggja mér á hjarta. Örvæntið samt ekki, þetta stendur allt til bóta því það byrjar ný önn á mánudaginn með tilheyrandi lestraráformum og verkefnavinnu og eins og margoft hefur sýnt sig er bloggið aldrei eins líflegt og þegar ég á/ætla að vera að gera eitthvað annað.

Það er svo kannski rétt að enda færsluna á að óska dönsku konungsfjölskyldunni og náttúrulega Dönum öllum til hamingju með prinsessuna litlu sem fæddist í dag (bara svona til vonar og vara, aldrei að vita hverjir rekast hérna inn). Hins vegar verð ég að segja það að ég er dáldið svekkt að hafa ekki verið boðin í afmæliskaffi hjá Margréti um daginn, stórafmæli og allt. Ekki það að ég hefði sjálfsagt ekkert mætt, var á fullu í próflestri og hafði þ.a.l. ekkert tíma í neitt sociallíf en það er sama, manni getur nú sárnað:)

Sumar og sólarkveðjur frá sveitalubbanum, vel og rækilega vindblásnum.

Efnisorð:

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

færð alveg meðmæli ef þú ákveður að hætta háskólalífinu og fara á fullt í aupair störfin.

kveðja íslensku svíarnir

sunnudagur, apríl 22, 2007 9:12:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gleðilegt sumar lubbinn minn!
Heiða sveitalúði.

sunnudagur, apríl 22, 2007 12:35:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home