sko....
....ég hélt það væri ekki hægt en Danir labba hægar en Reykvíkingar. Langaði alveg að hvæsa á nokkra sem hreinlega læddust eftir gangstéttunum í gær þannig að ég var eins og besti stórsvigskappi þegar ég tók fram úr hverjum á fætur öðrum. Get alveg fyrirgefið ellilífeyrisþegum reyndar og jafnvel fólki með lítil börn (mættu þó alveg reyna að halda sig hægra megin á gangstéttinni til að trufla ekki umferð) en fullfrísku fólki á besta aldri vorkenni ég bara ekkert að ganga á eðlilegum hraða. Pirri pirr. Þetta var aðeins að fara í taugarnar á mér í gær og ég held ég fari bara ekkert út í dag til að lenda ekki í því sama. Synd samt því veðrið er geggjað.
Þá til Íslandsins.
Þó ég sé yfirleitt ekkert hrifin af Reykjavík þá vil ég hrósa borgarstjórnarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins fyrir grænu skrefin tíu sem þeir kynntu í vikunni. Mjög gott framtak að mínu mati og bara vonandi að íbúarnir sjái sóma sinn í að nýta sér þessa þjónustu og leggja þannig sitt af mörkunum til umhverfisverndar. Já, hvort sem ykkur líkar betur eða verr þá er nefnilega fleira umhverfisvernd/náttúruvernd en að berjast á móti virkjunum og álverum.
En það er kannski ekkert skemmtilegt og þaðan af síður fínt að vera umhverfisverndarsinni ef það krefst einhverra breytinga á lífsháttum eða fórna eða fyrirhafnar í daglegu lífi OG engar líkur til að komast í sjónvarpið út á það.
Mér fyndist t.d. alveg kjörið að setja eitthvað af þeim sem hafa hæst í sambandi við náttúru- og umhverfisvernd undir sérstaka smásjá í þessum efnum og tékka á hvort þeir séu eins umhverfisvænir í sínu daglega lífi og þeir vilja vera láta út á við Ef svo er ekki mætti hreinlega banna þeim að koma fram í nafni umhvefisverndarsamtaka ef þeir stæðust ekki kröfur (kröfurnar þyrftu samt auðvitað að vera raunhæfar miðað við aðstæður hvers og eins) og jafnvel setja stimpil þar sem stæði HRÆSNARI á ennið á þeim.
Ekki vitlaus hugmynd ha???
Nú, hvað næst, jú páskaeggið mitt góða, ekki seinna vænna að blogga um það viku eftir páska.
Ótrúlegt en satt þá fékk páskaeggið mitt að vera í friði alveg fram á páskadag. Nánar tiltekið til hálf tólf á páskadagskvöld, þegar ég kom heim frá því að éta ofsa góða lambið hjá Dagbjörtu og Andrési.
Eða næstum því í friði, ég opnaði það um sex leitið til að ná í málsháttinn en byrjaði ekki að éta fyrr en hálf tólf. Og þar hafiði það.
Það var reyndar búið að hvarfla að mér nokkrum dögum fyrr að opna það, svona rétt til að tékka á hvort það væri ekki örugglega óskemmt eftir flutning milli landa.
Jú, ég geri mér samt alveg grein fyrir að það er líklegt að skemmdir í flutningum hefðu verið sjáanlegar á yfirborði og því ekki nauðsynlegt að opna það til að tékka á þeim. Hins vegar er til eitthvað sem heitir innvortis meiðsl sem getur verið skynsamlegt að tékka á ekki satt.
Það gekk svo aftur á móti fljótt og vel að éta páskaeggið þegar ég loksins byrjaði, með tilheyrandi sykursjokksmáttleysi og hjartsláttartruflunum. Það er svoleiðis með suma hluti hjá mér að þeir ganga fljótt og vel þegar ég byrja;)
Held ég hafi lítið meira að segja eins og er. Nema jú, ein spurning. Hvað er málið með þetta x-factor dæmi. Var þetta einhver söngvarakeppni eins og Idol eða hvað???
Ég sá ekki einn einasta þátt og veit ekki hvað þetta gekk út á nema það hafði eitthvað með söng að gera.
Alla vega, ef þetta var söngvarakeppni, rosalega hafa þá verið lélegir söngvarar í henni fyrst þessi Jógvan eða hvað hann nú heitir, þarna hárgreiðslu-förðunar-færeyingurinn, vann. Var að heyra í honum í fyrsta skipti rétt í þessu og mér finnst hann bara alls ekki syngja vel. Og svo lítur hann akkúrat ekki út eins og karlmenn eiga að líta út að mínu mati, varla eins og karlmaður yfirleitt, í besta falli fermingarstrákur. Hef reyndar bara séð eina mynd af honum og kannski var hún bara ekki góð (úbbbs, nú talar Elín aldrei við mig oftar!!!, en þér að segja Elín þá finnst mérFæreyingar alveg töff fólk, bara ekki þessi)
Jæja, nú er þetta víst orðið nógu langt og vel það og rétt að halda áfram að naga gulrótina mína og fara að lesa fyrir próf, margar margar blaðsíður sem bíða en ef einhver getur útskýrt fyrir mér af hverju síðan mín er allt í einu orðin á dönsku væri það vel þegið.
Fylgist svo vel með veðurupplýsingum frá Danaveldi um helgina og grenjið þegar þið sjáið hitatölurnar....fyrir mína hönd af því að ég verð að vera inni og lesa.
Kveðja frá sveitalubbanum, pirruðum í gær en töluvert skapbetri í dag (takk fyrir spjallið í gærkvöldi Magga ef þú lest þetta, það hjálpaði geðheilsunni mikið).

Efnisorð: sveitalubbafréttir

10 Comments:
-ekkert mál, bara takk sömuleiðis:o)
Ég er sammála þér með umhverfisverndina, en ósammála þér með Jógvan. Hann er svooooo sætur og ekki skemmir það að hann ætlaði sér alltaf að verða bóndi ;o) Skil nú samt ekki af hverju hann leiddist þá út í hárgreiðslu og förðun??
Jú þetta var gott framtak hjá þeim í Reykjavíkinni, þar er ég þér hjartanlega sammála. Umhverfisverndarsinnarnir á Hvanneyri eru eiginlega ekki umhverfisverndarsinnar, þvílík bílanotkun á svona litlum stað, ótrúlegt alveg.....já og tandoori er krydd.....
Já ég er sammála þessu umhverfisverndardóti, þetta er svona álíka gáfulegt og grænmetisætur sem vilja ekki borða kjötið af grey dýrunum en ganga samt í leðurskóm...
Hallfríður...þetta var illa sagt um hann Jógvan minn. Hann er mjög sætur, ætlaði sér alltaf að verða bóndi eins og kom fram hér að ofan, hann syngur mjög vel. Þú hefur bara hitt á einhverja lélega mynd af honum og lélega upptöku ef þú segir að hann er lélegur söngvari... Áfram Jógvan!!!
Ekki skil ég hvað það kemur málinu við að hann hafi einhvern tíman ætlað að verða bóndi. Þekki fullt af fólki sem einhvern tíman hefur ætlað að verða bændur en er hvorki fallegt né góðir söngmenn, þarf ekki annað en að líta í spegil til að sjá svoleiðis mannskepnu.
En jú, kannski er rétt að dæma ekki sönghæfileikana endanlega fyrr en það er nokkuð öruggt að stráksi sé búinn í mútum, alla vega eitt tvö ár í það m.v. útlitið:D
En var þessi keppni sem sagt bara svona idol með nýju nafni??
Hallfríður!
Jógvan ER MJÖG góður söngvari og ekki skemmir útlitið!
Hefur þú eitthvað vit á karlmönnum yfirleitt??? Ég bara spyr! Hann er sykursætur! og syngur VEL !
Gleðilegt sumar!
Ása
eitt lykilorð í þessu Ása, sykursætur = ekki flott.
Hvort ég hafi vit á karlmönnum, ja það er góð spurning. Alla vega nógu mikið til að vera ekkert á leiðinni að ná mér í eintak alveg á næstunni. Á sönghæfileikum hef ég hins vegar ekkert vit og skal fúslega viðurkenna það
Blessuð
Gott að þú getur fundið þér eitthvað að pirra þig á í Danmörku - hvað væri Hallfríður án pirrings?
Satt segirðu Stefán, þú hittir að sjálfsögðu naglann á höfuðið. Það er algjörlega nauðsynlegt að hafa eitthvað til að pirra sig á, svekkja sig yfir eða bara almennt vera drullufúll út af. Annars gæti lífið nefnilega farið að taka upp á því að verða létt, bjart og jafnvel skemmtilegt og það er eitthvað sem ég reyni að forðast í lengstu lög alveg....
Skrifa ummæli
<< Home