laugardagur, apríl 07, 2007

Í tilefni gærdagsins...

... set ég þetta inn.

Ég kveiki á kertum mínum
við krossins helga tré.
Í öllum sálmum sínum
hinn seki beygir kné.
Ég villtist oft af vegi.
Ég vakti oft og bað.
Nú hallar helgum degi
á Hausaskeljastað.

Í gegnum móðu og mistur
ég mikil undur sé.
Ég sé þig koma, Kristur,
með krossins þunga tré.
Af enni daggir drjúpa,
og dýrð úr augum skín.
Á klettinn vil ég krjúpa
og kyssa sporin þín.

Þín braut er þyrnum þakin,
hver þyrnir falskur koss.
Ég sé þig negldan nakinn
sem níðing upp á kross.
Ég sé þig hæddan hanga
á Hausaskeljastað.
Þann lausnardaginn langa
var líf þitt fullkomnað.

Ég bíð, uns birtir yfir
og bjarminn roðar tind.
Hvert barn, hvert ljóð, sem lifir,
skal lúta krossins mynd.
Hann var og verður kysstur.
Hann vermir kalda sál.
Þitt líf og kvalir, Kristur,
er krossins þögla mál.

Þú ert hinn góði gestur
og guð á meðal vor,
og sá er bróðir bestur,
sem blessar öll þín spor
og hvorki silfri safnar
né sverð í höndum ber,
en öllu illu hafnar
og aðeins fylgir þér.

Þú einn vilt alla styðja
og öllum sýna tryggð.
Þú einn vilt alla biðja
og öllum kenna dyggð.
Þú einn vilt alla hvíla
og öllum veita lið.
Þú einn vilt öllum skýla
og öllum gefa grið.

Að kofa og konungshöllum
þú kemur einn á ferð.
Þú grætur yfir öllum
og allra syndir berð.
Þú veist er veikir kalla
á vin að leiða sig.
Þú sérð og elskar alla,
þó allir svíki þig.

Ég fell að fótum þínum
og faðma lífsins tré.
Með innri augum mínum
ég undur mikil sé.
Þú stýrir vorsins veldi
og verndar hverja rós.
Frá þínum ástareldi
allir heimar ljós.
(Davíð Stefánsson frá Fagraskógi)

Set þetta nú bara hér inn því mér finnst þetta svo fallegt en kannski er rétt að taka það fram að mér hefði sjálfsagt ekki dottið þetta í hug ef ég hefði ekki rekist á þennan sálm á bloggsíðu hjá einhverjum manni í gær. Mátti bara til með að leyfa mínum lesendum ef einhverjir eru að njóta hans líka.

Óska ykkur góðra og gleðilegra páska

Hallfríður Ósk

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Heyrðu folaldið þitt er sko ekki síður frekt en mitt folald, hún Tíbrá er sko alltaf að reka Glettu greyið frá stallinum! Og svo er ég ekki enn búin að koma múl á hana þar á ofan

mánudagur, apríl 09, 2007 8:38:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home