miðvikudagur, apríl 11, 2007

urrrrrrrr

Gat nú verið. Núna get ég náttúrulega ekki sofnað. Ég sem get yfirleitt sofið daginn út og daginn inn og miklu meira en ég þarf samkvæmt stöðlum get ekki með nokkru móti sofnað þrátt fyrir að þurfa svo sannarlega á því að halda. Sit í staðinn stjörf af þreytu eftir svefnlitla nótt og hef ekki orku í að einbeita mér að nokkrum sköpuðum hlut -ekki það að það þurfi orkuskort til að orsaka einbeitingarleysi hjá mér en hann bætir alla vega ekki úr skák.
Fyrsta skiptið síðustu hundrað árin eða svo sem ég get réttlætt það fyri r mér að leggja mig að degi til og ég get ekki sofnað.
Ömurlegt.

En best að prófa að fara út í rokbelginginn, rölta upp í skóla og prenta út ritgerðina sem ég hafði það loksins af að klára og skila í morgun, auk annarrar sem ég þarf víst að lesa fyrir föstudaginn og fjallar að ég held um geld svín. Spennandi.
Kannski get ég sofnað eftir labbitúrinn eða þá að ég vakna nógu vel til að byrja á fyrirlestri og próflestri

Farin út í sólina, rokið og vorið
Þreytti sveitalubbinn

Efnisorð:

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það hjálpar yfirleitt að fá sér tvo bjóra eða þrjá. Prófaðu það...
Gangi þér vel.
Kveðja úr rigningunni og rokinu í RVK

miðvikudagur, apríl 11, 2007 3:08:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sammála Elinu, en ég mundi samt frekar fá mér rauðvín ;)
En varðandi hittinginn þá er júní mánuður einnig slæmur fyrir mig og þar sem mér sýnist stefna í það að ég komi eitthvað að skipulaginu þá legg ég til að við hittumst einhverja helgina í ágúst og það má alveg vera í Suðursveitinni hehehe....
Kveðja
Þórey

fimmtudagur, apríl 12, 2007 6:09:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hmmm... ertu eitthvað skyld henni Siggu systur þinni? hux hux
Aldís (ein af Árgarðspíunum)

fimmtudagur, apríl 19, 2007 12:17:00 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home