fimmtudagur, maí 10, 2007

snökt snökt

Þetta var súrt þó það sé svo sem ekki hægt að segja að niðurstaðan hafi komið verulega á óvart. Skrítið hvað maður missir sig í alltaf í einhverja óheyrilega bjartsýni í kringum þessa keppni og vonbrigðin verða alltaf jafn mikil þó maður viti niðurstöðuna í raun fyrirfram. Heimsku Evrópubúar sem kunna ekki gott að meta og þetta segi ég ekki bara af því að Eiríkur komst ekki áfram. Nokkur þrælfín lög sem einnig sátu eftir og mörg afspyrnu leiðinleg sem komust áfram. Var sátt með þrjú af þessum tíu og það voru reyndar að mínu mati bestu lögin í keppninni - auðvitað fyrir utan Eirík. Hin sem komust áfram eru drasl.


Eiríkur er nú samt alltaf lang lang laaaaaang flottastur og missionið er ennþá að verða svona töff í leðurbuxunum mínum þegar ég næ þessum aldri:)



"Dead sexy" eins og alltaf og stóð sig frábærlega enda alveg snilldar góður söngvari og heldur áfram að vera uppáhalds hjá mér eins og hann er búinn að vera síðustu tvo áratugina eða svo.

Nú skora ég bara á fólk að kjósa annað hvort Svía, Finna eða Ungverja á laugardaginn, allt þrælfín lög og flytjendur og eiga það alveg skilið að vinna (var það ekki annars Ungverjaland sem var með blússöngkonuna með ferðatöskuna?).
Hvað hinar kosningarnar varðar þá skipti ég mér ekki af því hvað þið kjósið þar, bara ef þið kjósið, það er grundvallaratriði. Þeir sem af einhverjum undarlegum ástæðum ætla sér að kjósa samfylkinguna mega samt gjarnan spara sér ferðina á kjörstað.
Best að fara að reyna að sofa úr sér geðvonskuna. Þarf víst að mæta á rannsóknarstofuna í fyrramálið. Þar bíða nokkur DNA sýni sem eftir því að verða greind alveg niður í öreindir (eða svo gott sem) og ein 118 sýni því til viðbótar sem eiga að fara í einhverja aðra meðferð sem ég kann ekki nein skil á ennþá. Verð vonandi komin með það á hreint fyrir 18. júní en þá þarf ég víst að skila skýrslu um herlegheitin.

Kveðja
Sveitalubbinn, súr í Kaupmannahöfn!!

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Blessuð.
Vonandi ertu búin að ná þessum súrheitum úr þér. Held það sé bara ágætis stimpill að komast ekki áfram í eurovision - og ég veit að þú verður alger skvís í leddurunum á Sálinni á elliheimilinu hahahhaha.
Heiða hundasn

þriðjudagur, maí 15, 2007 6:08:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home