þriðjudagur, júní 26, 2007

brosað hringinn!!

og flestir geta víst giskað á af hverju....

Heim komst ég og mikið andskoti var það ljúft (eina se skyggði á voru óheyrileg fjárútlát til að koma öllum farangri heim, draslið mitt óx með veldisvexti í vetur.
Búin að fara á fjöruhlaðborð, knúsa hrossin, gefa lömbum, slá, smala og éta, éta, éta. Held að kílóin örfáu sem urðu eftir úti í Köben komi fljótlega til með að elta mig hingað heim. Svo þjáist ég náttúrulega af þembu eins og við er að búast við snöggar fóðurbreytingar - þess virði samt, mömmu matur er alltaf bestur og þá skiptir engu hvað maður er orðinn gamall.

Þetta verður ekki mikið lengra, þarf að haska mér út til að halda áfram að slá kirkjugarðinn og svo hlaupa á eftir nokkrum rollum í viðbót í kvöld.
Eftir daga með þessu skipulagi sofna ég svo fljótt og vel á kvöldin að ég er farin að sjá fram á að Eiðfaxarnir sem söfnuðust uppí vetur komi til með að endast mér fram á næsta ár.

Þetta eru sem sagt helstu tíðindi af sveitalubbanum. Kannski held ég áfram að skrifa hér inn (verður þó alla vega sjaldnar en undanfarið), en ég lofa engu í þeim efnum

kv
sveitalubbinn í sumarstuði í sveitinni!!

10 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

kannast við þetta :-)

þriðjudagur, júní 26, 2007 4:47:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gaman hjá þér Hallfríður. En ertu alveg búin úti núna? Ferðu ekki aftur út eftir sumarfríið?
Kv. Elin

miðvikudagur, júní 27, 2007 12:41:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Enn og aftur takk fyrir mig Hallfríður, bara ein dolla eftir af gumsinu góða ;)
Maríanna

miðvikudagur, júní 27, 2007 1:26:00 e.h.  
Blogger Hallfríður Ósk said...

já, veit þú skilur mig Gunnfríður! Þú átt hrós skilið fyrir að hafa enst þarna svona lengi.
Elín, helst ætla ég ekkert þarna út aftur. Útlönd eru til að fara í frí, versla og drekka bjór - ekki til að búa þar.
Ein dolla eftir Maríanna????? Eruð þið búin að lifa á þessu eingöngu??

miðvikudagur, júní 27, 2007 7:37:00 e.h.  
Blogger Hallfríður Ósk said...

já, veit þú skilur mig Gunnfríður! Þú átt hrós skilið fyrir að hafa enst þarna svona lengi.
Elín, helst ætla ég ekkert þarna út aftur. Útlönd eru til að fara í frí, versla og drekka bjór - ekki til að búa þar.
Ein dolla eftir Maríanna????? Eruð þið búin að lifa á þessu eingöngu??

miðvikudagur, júní 27, 2007 7:37:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ

Velkomin heim. Skoðaðu síðu sem Bjössi H gerði þar er að finna ýmislegt skemmtilegt. Slóðin er laugarbakkaskoli.com

Kveðja Þorbjörg

fimmtudagur, júní 28, 2007 3:38:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Velkomin heim Hallfríður mín - gott að vita af þér á klakanum - Ása

föstudagur, júní 29, 2007 12:11:00 e.h.  
Blogger pallilitli said...

Ahhh..... mig langar til að slá.

sunnudagur, júlí 01, 2007 9:11:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ja ég vona að það að þú sért lent heima þýði ekki að þú sért tröllum gefin!!!!
Hvað með eitt ferskt sumarblogg núna???

Kv Hildur

laugardagur, júlí 21, 2007 10:06:00 e.h.  
Blogger Maríanna said...

Ég segi það nú!
Kv Maríanna

sunnudagur, júlí 22, 2007 10:32:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home