fimmtudagur, júní 14, 2007

Í dag....

...eru nákvæmlega - úff, þoli varla að segja það einu sinni - 15 ár síðan ég fermdist. Shiiiiiiiiiitttt hvað maður er orðinn gamall. Sést best á því frændsystkynin sem voru með bleyju í fermingarveislunni, nú eða svo nýfædd að þau mættu ekki einu sinni eru orðin nánast fullorðin, maður er farinn eða alveg að fara að hitta þau á sveitaböllum eða rekast á þau akandi út um allar jarðir.
Reyndar versnar þetta enn á næsta ári þegar ég get farið að rekast á elstu börnin sem ég vann við að passa á leikskólanum á Hvammstanga á böllunum. Spurning um að hætta að fara á böll...

Ég er svo stálheppin að eiga ekki fermingarmyndir á tölvutæku formi þannig að þið fáið ekki að sjá neinar myndir. Þið sem hafið aðgang að svoleiðis myndum, eða bara myndum af mér yfirleitt, eruð svo vinsamlegast beðin að halda þeim fyrir ykkur sjálf.

Eins og ég minntist á um daginn getur maður oft miðað hina og þessa hluti við áfanga á borð við þennan. Núna áttaði ég mig sem sagt á því að Flóki minn er 23ja vetra í ár - hef alltaf átt afar erfitt með að muna hvað hann er gamall, líklega af því að hann eltist fyrir aldur fram fyrir nokkrum árum og þess vegna finnst mér hann alltaf vera kominn undir þrítugt.



Jæja, best að láta þetta duga að sinni. Á víst að vera að vinna í verkefninu okkar um sköllóttu svínin með lungnaþembuna (vona bara að Magga kíki ekki hérna inn í dag og sjái að ég er búin að vera að slæpast við að blogga:S)
kv
Sveitalubbinn (1 vika + 1 dagur:)

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

jæja, nú gómaði ég þig aldeilis;) er bara verið að blogga á háskaðræðistímanum,ég er orðlaus! -ekki að ég geti kannski mikið sagt..var nefnilega sjálf að koma heim úr búð einni..(hóst hóst)
en við erum nú orðin svo ansi vel sett með þetta verkefni blessað,fáum m.a. hrós og alles, þannig að ég held bara að það hljóti að reddast allt (ekkert jafnast á við íslenskan redding)
-gangi þér vel að sjóða saman innganginn, ég bíð í ofvæni;)

fimmtudagur, júní 14, 2007 3:38:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home