Í dag ...
...hélt ég út fjóra klukkutíma í verslunarmiðstöð (reyndar að meðtalinni góðri stund á kaffihúsi með latte og köku í byrjun leiðangurs og snöggum kvöldverði í lokin) og telst það bara nokkuð gott á minn mælikvarða, alla vega svona í seinni tíð. Hef yfirleitt ekki úthald í svona iðju svo klukkutímum skiptir og mikið djöfull var þetta erfitt. Á svo sannarlega hrós skilið, klapp fyrir mér:)
Kannski ekki gáfulegasta eyðsla á tíma í annarlok þegar stutt er orðið í verkefnaskil og próf en hafði marga hluti til að fagna og hvaða leið er betri til þess en að strauja kreditkortið ofurlítið (alla vega þegar maður er staddur í útlendri borg og ekki mikið af skemmtilegri afþreyingu í boði).
Við Magga vorum sem sagt að halda upp á að
- Við erum næstum búnar með verkefnið okkar - ekki alveg venjulegt að verkefni sem ÉG kem eitthvað að sé nánast klárt þremur sólarhringum áður en á að skila því
- Eftir þrjá daga verðum við búnar að skila verkefninu okkar
- Eftir þrjá daga þurfum við aldrei að hitta danahelvítið sem er í hóp með okkur aftur
- Eftir 6 daga verðum við búnar með kúrsinn (þ.e. ef við náum prófinu)
- Við fengum gott og vel þegið hrós frá leiðbeinandanum okkar og stendur nú til boða mastersverkefni sem felst í því að rannsaka erfðaefni úr sköllóttum svínum með lungnaþembu. Takk en nei takk er nú reyndar svarið við því en hrósið var engu að síður gott og sýnir að okkur hafi bæði tekist að láta líta út fyrir að við hefðum eitthvað vit og áhuga á því sem við vorum að gera!!
- og það besta af öllu, að eftir nákvæmlega viku verðum við í flugvél á leið til Íslands
- og þar með auðvitað líka að halda upp á allt það skemmtilega sem tekur við þegar þangað kemur og að losna við alla lítið skemmtilegu hlutina sem maður situr uppi með hér úti. Ætla að láta það bíða betri tíma að útlista þessa hluti nánar
En nú er ég farin í háttinn, næstum er nefnilega ekki það sama og alveg þannig að það er best að reyna að vakna tímanlega í fyrramálið og hefjast handa við lokafráganginn. Svo þarf víst að reyna að lesa eitthvað fyrir þetta próf líka og lesefnið er ekki beint fljótlesið.
Af því að ég er orðin svo myndaglöð í seinni tíð þá er rétt ég endi þetta á einni gamalli og góðri sem er tekin á fallegum sumardegi í Víðidalnum. Mannskepnan á myndinni er svo sem ekkert að prýða hana en læt þetta nú flakka samt
Eyðslusami sveitalubbinn býður góða nótt

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home