miðvikudagur, júní 20, 2007

dagurinn í dag...

...er ekki alveg sá skemmtilegasti

  • þreytt
  • stressuð
  • búin að lesa ógeðslega mikið
  • samt ekki búin að lesa nóg
  • man ekki staf úr því sem ég er búin að vera að lesa
  • langar miklu meira að vera að pakka niður
  • ótrúlega erfitt að einbeita sér að lestri þegar maður er alveg að fara að komast heim eftir fjögurra og hálfs mánaðar fjarvist

og nenni bara engan veginn að vera að fara í próf á morgun. Sem betur fer tekur prófið ekki nema 20 mínútur þannig að þetta verður þá aldrei nema 20 mínútna niðurlæging. Hljóta líka að vera einhver takmörk fyrir því hvað er hægt að grilla mann rækilega á 20 mínútum er það ekki.

En, alla vega, um tvö leitið á morgun verður þetta búið og hægt að fara að gera skemmtilegri hluti eins og að versla sér "til hamingju með að ná/til hughreystingar eftir að hafa fallið" gjöfina frá mér til mín, pakka niður og svo bara bíða eftir að það verði tímabært að fara út á völl. Verst að þurfa líka að þrífa herbergiskytruna, er engan veginn að nenna því.

Alla vega, óskið mér góðs gengis - ekki veitir víst af

kv
Sveitalubbinn í þunglyndi og prófstressi

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Gangi þér rosalega vel á morgun. Góða ferð til Íslands...

miðvikudagur, júní 20, 2007 7:51:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég skal krossa bæði fingur og tær fyrir þig á morgun, ég veit að þú rúllar þessu upp :)

miðvikudagur, júní 20, 2007 7:53:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Óska þér góðs gengis....

Siggi

miðvikudagur, júní 20, 2007 8:58:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gangi þér vel og sjáumst um helgina fyrir norðan.

kveðja frá stóru systur

miðvikudagur, júní 20, 2007 10:09:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home