sunnudagur, júní 10, 2007

Flutt

í Fakta hinu megin við götuna á daginn en á Old English Pub á kvöldin.

Af hverju??

Jú, Fakta af því að þeir státa af þessari líka dýrindis loftkælingu. Hefur aldrei fyrr langað að eyða lööööööngum tíma í matvörubúð. Markmiðið er yfirleitt frekar að koma á tíma sem eru stuttar biðraðir við kassana og láta líða sem allra stystan tíma frá því að ég kem inn þar til ég kemst út aftur. En ekki í dag, nú hefðu raðirnar gjarnan mátt vera tífalt lengri.

Vertarnir á Old English Pub eru hins vegar ekki einu sinni búnir að uppgötva notagildi vifta og hvað þá loftkælinga þannig að svækjan er sú sama þar og í herberginu mínu. Hins vegar er ódýrara að sitja og svolgra í sig vatn þar en hérna heima auk þess sem þar fær maður klaka í vatnið. Hef ekki enn fundið búð sem selur flöskuvatn með klökum og hef ekki frysti til að búa þá til sjálf. Það er samt ákveðin áhætta sem er fólgin í því að flytjast þangað niður eftir, þ.e. að það geti slæðst einn og einn suðrænn og svalandi kokteill á milli vatnsglasanna og þá er sparnaðurinn fljótlega farinn fyrir lítið.

Old English Pub er svo, til viðbótar við fría vatnið, bara almennt alveg ferlega fínn staður sem er í miklu uppáhaldi hjá mér. Lifandi tónlist öll kvöld, þ.e. trúbadúrar sem eru vissulega af mjöööög misjöfnum gæði en eiga það sameiginlegt að spila skemmtilega tónlist. Mest alls konar mis gamalt rokk og maður fær nettan sveitaballafiðring þegar maður heyrir sum þeirra og önnur framkalla hjá manni gæsahúð því þau eru bara svo flott og svo sígild. Þessir sem voru að spila í gær reyndar alveg mátt láta það eiga sig að taka With or without you með U2-. Svona má bara ekki fara með eitt fallegasta lag í heimi.
Ég alla vega mæli alveg með þessum stað, jafnvel þó að bjórinn sé ekkert ódýrari en á Íslandi, frekar en á öðrum börum þarna niðri í bæ. Ef maður er alveg ákveðinn í að spara fær maður sér bara einhvern kokteil, þeir eru alla vega ódýrari:)

Kveðja
Sveitalubbinn (soðinn í gegn)

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

ja satt hjá þer hallfríður gott að komast í loftkælingu stundum til að vera allavega ekki sveittur allan daginn!!! hlakka so til að komast á ísland og hætta að vera sveitt og klísturð!! er líka svo brunnin eftir daginn að eg get ekki verið í meiri sól....
mer lýst semsagt bara mjög vel á þína fluttninga:)

sunnudagur, júní 10, 2007 8:23:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Áttu heima á pubb núna??????
Ertu þar allann daginn????
Á.Ó.

mánudagur, júní 11, 2007 1:07:00 f.h.  
Blogger Hallfríður Ósk said...

Nei bara á kvöldin Ása. Það er engin loftkæling þar svo það er betra að vera í matvörubúðinni á daginn. Líka meira úrval af mat þar, ekki má ég tapa holdum:)

mánudagur, júní 11, 2007 8:33:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Æ já Old English pub er alveg hreint ljómandi staður

mánudagur, júní 11, 2007 10:12:00 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home