föstudagur, júní 22, 2007

jæja

Ég var einhvern tíman um daginn að tala um að setja kannski inn myndir af tryppisskrípinu mínu þó að það sé nú ekki mikið augnayndi og það er þá best að hespa því af meðan ég er í almennilegri nettengingu. Þó að það séu flestir hlutir betri í Víðidalnum en annars staðar í heiminum þá er nettengingin ekki þar með talin.

En jæja, er ekki bara best að gera þetta almennilega og á byrjuninni, eða svo gott sem:
nokkurra klukkustunda gömul að morgni 24. júní 2006 og nokkurn veginn það sætasta sem ég hef á ævi minni séð:)
rúmlega viku gömul, svoooo falleg en ekki alveg til í að stilla sér neitt upp fyrir myndatökumannskepnuna


nema rétt á meðan þorstanum er svalað

Í október voru fyrirsætutaktarnir komnir betur á hreint en útlitið.... hún líkist nú á þessum tímapunkti eiginlega meira einnhverri frumútgáfu af hrossi aftan úr grárri forneskju en nútíma íslensku hrossi

Flókatryppi að kljást við mömmu sína í apríl og þarna sjást þessar stuttu lappir og kviðurinn sem ég er endalaust mikið búin að pirra mig yfir í vetur.

Er reyndar nokkurn veginn búin að taka lappirnar í sátt. Ekki af því að þær hafi lengst til einhverra muna heldur rifjaðist upp fyrir mér á netflakki um daginn að hross geta alveg orðið eftirsóttir kynbótagripir þrátt fyrir stuttar lappir. Sjáið t.d. þennan (þ.e. brúna hrossið á myndunum, gat ekki sett link á bara eina mynd). Þetta er sem sagt hann Orri gamli frá Þúfu og það verður nú seint hægt að segja að lappirnar séu neitt að þvælast fyrir honum.

En svo er það þessi myndarlegi belgur...
og hvað er nú betra til að flagga honum og sýna sem best en að leggjast á bakið. Svo er náttúrulega bara plús ef tekst að skrapa nokkra snepla af sér í leiðinni og klóra sér. Annar eins sælusvipur hefur líklega sjaldan sést

Ef maður sveigir sig svona frá ljósmyndaranum sést bumban líka svakalega vel:) Svo er náttúrulega um að gera að blasta faxlausu hliðinni frekar en hinni!!!

Þá er maður kominn út í vorið. Lítur svo sem ekki svo illa út frá þessu sjónarhorni (kannski af því að byggingarlagið sést ekki) og sneplarnir farnir. Svona ljósmyndarar eru líka alltaf jafn áhugaverðir - er líka alltaf smá sjens að sníkja klapp hjá þeim

Það er gott að borða og svo verður maður náttúrulega að viðhalda bumbunni. Takið eftir þessu skemmtilega beina baki - alveg eins og mamma sín sáluga, gæti best trúað að hún fái líka svona skemmtilega kryppu á spjaldið eins og sú gamla:)
Og þar með er það komið, ævisaga Tíbrár fyrsta árið í myndum og málæði, á ekki nýrri myndir en þetta enda er þetta feikinóg í bili. Geri mér svo sem enga grein fyrir því hvort það er hægt yfirleitt að opna blogg með svona mörgum myndum, alla vega hæpið að Víðdælingar geti það þannig að Maríanna þú verður bara að koma í heimsókn og skoða
Sveitalubbinn kveður úr roki og rigningu síðustu nóttina í Köben

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ekkert mál að opna svona margar myndir, tekur bara aaaaaðeins lengri tíma en hjá "venjulegu" fólki ;)
Maríanna

föstudagur, júní 22, 2007 4:38:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home