fimmtudagur, júní 21, 2007

Litla systurdýrið mitt

er ALDARFJÓRÐUNGSGAMALT í dag:)


Þar sem ég á ekki mikið upplag af myndum af henni í tölvunni hjá mér (alla vega ekki birtingarhæfum) verður þessi að duga.
Finnst eiginlega verst að eiga ekki "do you like my titties" myndina sem kom á tilverunni hérna um árið, hefði verið upplagt að pósta henni hér af þessu tilefni, ekki satt:)
Til lykke med det skvísa, knúsa þig annað kvöld vel og rækilega annað kvöld
Vil svo bara þakka fyrir góð viðbrögð við síðustu færslu, held að það hafi ekki liðið nema 20 mínútur frá því að ég henti inn færslunni þar til fyrstu baráttukveðjurnar mættu.
Alla vega þá dugðu þær því ég náði, þannig að TAKK
Fór svo eftir prófið beint í Fredriksberg center og verðlaunaði mig vel og rækilega (alltaf svo sniðugt að versla dáldið hressilega fyrir peninga sem maður á ekki til).
Verðlaunaveitingarnar halda svo áfram því í kvöld ætlum við Magga út að borða - eigum það svooooo skilið
kv
Sveitalubbinn í hátíðaskapi enda bara sólarhringur í brottför

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Auðvitað náðir þú, en ekki hvað. Og góða íslandsför, við hinir útlagarnir óskum þér góðrar ferðar

Siggi Þór

fimmtudagur, júní 21, 2007 6:10:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég er fullkomlega sátt við að þú eigir ekki umrædda mynd á tölvutæku formi þar sem ég er nú orðin svo öldruð og ráðsett....
(Ber reyndar aldurinn mjög vel að mínu mati :)
Sjáumst svo á afmælisdjammi á Hvanneyri á morgun!!!

fimmtudagur, júní 21, 2007 8:29:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

auðvitað náðir þú kona! Held að allir hafi vitað nema þú ;)Innilega til lukku með þetta!

Ef að þessi mynd af Siggu finnst ekki mætti kannski reyna að grafa upp einhverjar góðar frá söngvakeppninni...Múhahahaha!!!!!

föstudagur, júní 22, 2007 12:35:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Og já, til hamingju með afmælið Sigga, vonandi er toppurinn búinn að jafna sig eftir meðferðina ;)
Maríanna

föstudagur, júní 22, 2007 12:37:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Haha Maríanna :) jájá toppurinn er fínn alveg

föstudagur, júní 22, 2007 11:16:00 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home