föstudagur, júní 01, 2007

Segðu mér Maríanna....

.....hvað fór hitastigið í hjá þér í dag?;)

Anyway. Mátti bara til með að gefa frá mér smá lífsmark hérna en þar sem ég þjáist af leti á háu stigi nenni ég ekki að skrifa löngu og afar súru og leiðinlegu færsluna semvarð til í kollinum á mér í göngutúrnum áðan. Heppin þið í þetta sinn en ekki fagna of snemma, kannski kemur hún síðar. Reyndar er orðið dáldið margt sem ég hef ætlað að skrifa hérna síðar en er ekki komið enn. En meðan ég læt hvorki fylgja með dagsetningu né ártal er þetta allt í lagi og ég ekki að svíkja neitt. Þetta "síðar" er bara ekki komið enn.

Annars er letin í mér er á svo háu stigi að ég nennti ekki einu sinni að græja skyrið sem ég ætlaði að éta í kvöldmatinn - alltof mikil fyrirhöfn að þurfa bæði að setja það á disk og hræra saman við það mjólkinni og bláberjasultunni, og ég fann mér því enn einfaldari rétt.
Einhverjir hefðu kannski haldið að það væri ekki hægt en jú, banani er lausnin á vandamálum letihaugsins. Hann kemur tilbúinn til átu og í afar hentugum umbúðum. Þegar ég verð svo búin að skola honum niður með ísköldum Carlsberg á ég eflaust eftir að sofna sætt og rótt og vakna úthvíld og tilbúin til í dýragarðsferðina sem er plönuð á morgun. Nema ef svo óheppilega vildi til að það kæmi þrumuveður í nótt, þá verð ég ekki úthvíld á morgun heldur ósofin taugahrúga. Jamm, ég er hrædd við þrumuveður og þau skrifast því á listann minn yfir ástæður fyrir því að það er betra að búa í Víðidal en Kaupmannahöfn.

Súkkulaðikex í eftirmat eftir bananann og bjórinn toppar svo kvöldið

Sveitalubbinn býður góða nótt, rjóður í kinnum (sem og á öxlum, handleggjum, bringu, baki, maga, lærum og svo að sjálfsögðu á nefinu stóra og fína - ekki von á öðru þar sem það er jú svo miklu nær sólinni en hinir líkamspartarnir þegar maður liggur afvelta í sólbaði)

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Heyrðu, hitinn er bara á hraðri uppleið þessa dagana ;) En þú sendir hann ansi seint til mín þykir mér. Þú áttir sko að senda hann STRAX...ekki eftir 2-3 vikur ;)

laugardagur, júní 02, 2007 1:03:00 e.h.  
Blogger Hallfríður Ósk said...

þar fór það:) Einhvern veginn tekst mér alltaf að gera hlutina að lágmarki viku, oft tveimur vikum, seinna en ég ætla mér. Bara standard.
Er samt sem áður afar ánægð með að það skuli loksins vera orðið skárra veður hjá ykkur

laugardagur, júní 02, 2007 1:45:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er nú orðið ansi slappt að nenna ekki a "elda" skyrið

laugardagur, júní 02, 2007 9:41:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home