mánudagur, júní 11, 2007

Svona getur farið...

... þegar maður er ungur og vitlaus og verið að sleppa manni út í vorið:)

Hún skaðaði sig nú ekki á þessu sú litla en þetta getur ekki hafa verið þægilegt. Hún kippti sér samt víst furðu lítið upp við þetta, líklega taugasterk eins og mamman. Hins vegar sýnist mér á myndinni að þeir gömlu tveir (ljósi og rauði) hafi jafnvel orðið enn hræddari. Svipurinn á þeim bendir alla vega til þess og greinilegt að bremsurnar eru í fínu lagi, enda vita þeir alveg af reynslu hvernig rafmagnsgirðingar virka. Tíbrá (sú sem stökk á girðinguna) virðist hins vegar ætla að taka sinn tíma í að læra þetta því hún hefur alveg gert þetta áður.
Verð nú að hrósa ljósmyndaranum henni Sigríði systur fyrir myndina, þetta heitir að vera tilbúinn með vélina á hárréttu augnabliki sem hlýtur að teljast mjög góður eiginleiki hjá ljósmyndara. Svo fær hún náttúrulega knús fyrir að nenna að senda mér allar þessar myndir.

Í verðlaunaskyni fyrir það ætla ég, fyrir hennar hönd, að setja hérna tvær montmyndir af fallega tryppinu hennar, henni Glettu frá Víðidalstungu. Myndirnar eru að sjálfsögðu teknar af Sigríði eins og reyndar 99% af myndunum sem hafa verið birtar á þessari síðu.
.
Nú hef ég í gegnum tíðina ekkert skoðað neitt mikið af veturgömlum tryppum en ég tel mig samt geta fullyrt að þetta sé afar fallegt eintak. Stór og þroskuð miðað við aldur og bara spengileg og falleg svona yfirleitt. Sigríður má vera stolt af þessum grip. Vann vel til að afla sér folatollsins á sínum tíma og því gaman að afraksturinn sé svona glæsilegur. Nú er bara að vona að framhaldið verði jafn gott og útlitið er núna og svo sem engin ástæða til að ætla annað á þessari stundu.
Hendi kannski inn fleiri hrossamyndum einhvern tíman á næstu dögum, t.d. fleiri myndum af Tíbrá minni. Það er hins vegar meðvituð ákvörðun að setja helst ekki myndir af þeim frænkum í sömu færslu, eða alla vega ekki hvaða myndir sem er, samanburðurinn er annarri svona heldur í óhag...
Hins vegar, ef Tíbrá verður eins lík mömmu sinni gömlu í skaplyndi, krafti og úthaldi, þá koma Sigríður og Gletta nú ekkert til með að stinga okkur af þegar þar að kemur þrátt fyrir löngu bífurnar á Glettu.

Í staðinn fyrir fleiri tryppamyndir að kemur því að þessu sinni ein mynd af Flóka mínum gamla en eins og sjá má er hann að verða ósköp grár í vöngum. Hann er þrátt fyrir það alltaf lang flottastur, svona eins og Sean Connery, Harrison Ford og Richard Gere, heldur áfram að vera flottur þó að aldurinn færist yfir og hárin gráni:)
Verst að það sést ekki alveg nógu vel á myndinni fallega krummanefið hans, get ekki hugsað mér fallegri hrosshaus en á þessari elsku.
Svona í blálokin á þessu myndabloggi kemur svo ein fyrir sauðfjárfólkið, þ.e. þá sem ekki eru búnir að gefast upp eftir allar hrossamyndirnar. Þessi er eiginlega svona í framhaldi af litskrúðugu lömbunum um daginn. Mér finnst þessi litur dáldið töff en lambskvikindið þurfti náttúrulega endilega að vera hrútur og guli bletturinn í hnakkanum er svo sem ekkert að bæta neitt...
Nóg í bili
Sveitalubbinn býður góða nótt og biður að heilsa (vel og rækilega útvatnaður og í svitabaði)

10 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Skemmtilegar myndir. Og hún Gletta er nú ótrúlega myndarleg kerlingin. Um að gera að sýna okkur Tíbrá líka...
Meira svona. Góða skemmtun í hitanum annars...

þriðjudagur, júní 12, 2007 1:51:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já, hún er sko ljómandi falleg hún Gletta, en það getur nú svo alveg tognað úr þinni með tímanum. Og láttu mig vita það; það eru ekki alltaf fallegustu hrossin sem eru þau bestu! Þetta snýst um að vera ánægður með sitt- sama hvað aðrir segja ;)

þriðjudagur, júní 12, 2007 3:36:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég verð nú að segja að mér finnst hann Buxi litli langflottastur og huxanlega verðandi kynbótahrútur ef ekki væri fyrir þenna útvöxt úr hausnum á honum sem er nú mun alvarlegra lýti en þessi litli guli blettur

þriðjudagur, júní 12, 2007 4:24:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er ekki að spyrja að þessum hófdýrum. Ef þau éta ekki girðingarnar þá slíta þau þær niður.

þriðjudagur, júní 12, 2007 9:46:00 e.h.  
Blogger Hallfríður Ósk said...

Já Maríanna, meðan sú litla tórir og kemst sæmilega úr sporunum þegar kemur að því að nýta hana til einhvers gagns er ég til þess að gera sátt. Hins vegar verður hún nú seint neinn glæsigripur held ég, of lík mömmu sinni í útliti til þess. Finnst hún hefði nú alveg mátt fá eitthvað frá pabbanum líka. Svo var hálfbróðir Glettu að fara í 8,85 fyrir hæfileika í dag þannig að ég gæti þurft að bakka með þá staðhæfingu að þær Sigríður skilji okkur Tíbrá ekki eftir í framtíðinni. Ekki það að hár hæfileikadómur segi endilega til um notagildi í smalamennskum.
Og Gunnfríður, Buxi verður örugglega ekki settur á, ekki nógu eðalborinn til þess. Hvað varðar útvöxtinn á höfðinu þá er einfaldlega það aðsegja að við erum svo heppin í Víðidalstungu að allt féð ber umræddan útvöxt þannig að við þurfum ekki að berjast við að útrýma þeirri vansköpun sem útvaxtarleysi á höfði er og þá getur maður svo sem látið sér í léttu rúmi liggja þó það séu einn gulur blettur eða tveir, minni háttar vandamál. Bráðnauðsynlegt að hafa handföng á fénu til að þurfa ekki á töng að halda til að hantera skjáturnar.

þriðjudagur, júní 12, 2007 9:58:00 e.h.  
Blogger Hallfríður Ósk said...

Óðinn þú getur alla vega huggað þig við það að þau gera yfirleitt ekki hvort tveggja við sömu girðinguna. Og þér að segja þá sleit þetta umrædda hófdýr ekki niður girðinguna, vel girt hjá okkur og hrossið hafði vit á að bakka. Reyndar hef ég nú alveg haft spurnir af klaufdýrum sem stunda þá iðju að rífa niður girðingar. Þau gera hins vegar væntanlgea minna af því að éta þær enda hreinlega ekki nógu vel tennt til þeirra verka

þriðjudagur, júní 12, 2007 10:04:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Handfangaleysið hefur nú ekki háð mér svo mjög hingað til en náttúrulega algerlega óþolandi þegar maður hittir fyrir vanskapaðar kindur og þessi bévítans útvöxtur þvælist allstaðar fyrir manni. Ég tala nú ekki um þá líkamlegu áverka sem maður hlýtur af viðureignunum. Hins vegar ku þetta nýtast vel í föndur.

miðvikudagur, júní 13, 2007 12:46:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Handfangaleysi á sauðfé er vansköpun. Það hélt ég að allri vissu. Var þetta ekki kennt í bændadeildinni?

miðvikudagur, júní 13, 2007 5:17:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Nú fyrst að Óðinn sauðfjársérfræðingur segir það, þá hlýtur það að vera rétt - eða hvað??? En það sem kennt er í bændadeild er eitthvað sem verður þér hulin ráðgáta - nema þú lufsist til að drífa þig í búfræðinginn

fimmtudagur, júní 14, 2007 1:41:00 e.h.  
Blogger Hallfríður Ósk said...

það á nú ekkert að þurfa að kenna jafn sjálfsagðan hlut og að handfangaleysi sé vansköpun, hvorki í bændadeild né annars staðar - enda er það ekki gert þannig að Óðinn þarf ekki að drífa sig í búfræðinginn þess vegna

fimmtudagur, júní 14, 2007 1:58:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home