fimmtudagur, júní 07, 2007

Tíminn líður hratt...

...og þessi litla skotta, systurdóttir mín, er 7 ára í dag. Hún eyddi afmælisdeginum hjá ömmu og afa og Sigríði frænku í sveitinni og finnst það eflaust ekki mjög slæmt - þeim ekki heldur.

Þetta minnir mig á að það eru um þessar mundir heil sjö ár síðan ég kláraði bændadeildina á Hvanneyri. Úff
Og mér finnst það hafa gerst í gær. Spurning um að fara að taka einn rúnt um landið í sumar og heilsa upp á bekkjarfélagana, orðið dáldið langt síðan maður hefur séð framan í þá suma hverja.
En það er nú seinni tíma mál, fyrst þarf að koma sér heim til Íslands

En María Ragnhildur fær alla vega bestu hamingjuóskir í heimi í tilefni dagsins og spurning um að láta fylgja með mynd af afmælisgjöfinni frá afa og ömmu.
Varla samt að maður hafi samvisku í það þeirra vegna þar sem gjöfin telst síður en svo neinn merkisgripur og virðist ekki við fystu sýn bera vott um mikinn rausnarskap, alla vega ekki á mælikvarða þeirra sem eru eldri en sjö ára. Pínulítið heimagangskvikindi að nafni Tunna (stundum hálftunna eða síldartunna). Nafngiftin skýrir sig sjálf:)
Það skal samt tekið fram afanum og ömmunni til varnaðar að fröken María er alsæl með gjöfina þó lítil sé og ljót og þar með er tilganginum náð.

Nóg í kvöld
Sveitalubbinn sendir stórt knús heim í sveitina

ps. ef þið þekkið einhvern, eða þekkið einhvern sem þekkið einhvern o.s.frv. sem býr í, eða er að flytja til Köben þá þarf ég endilega að losna við nokkrar aldeilis stórfínar mublur úr rúmfatalagernum. Lítið notaðar og seljast fyrir sanngjarnt og mjög umsemjanlegt verð.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

7 ár segir þú, það er aldeilis, það er þá væntanlega ekki seinna væna en hefja undirbúning að 10 ára afmælinu...
KV Siggi

föstudagur, júní 08, 2007 9:27:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það rætist nú oft úr þessum heimagöngum og þeir jafnan feitir og pattaralegir að hausti (amk ef maður hefur kusur til að mjólka ofaní þá)svo hver veit nema Tunna litla sé framtíðarkynbótagripur

föstudagur, júní 08, 2007 10:18:00 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home