mánudagur, september 03, 2007

Sólskin af hárri Bláfellsbrún...

...sig breiðir um töfraland
Ríða úr náttstað gumar greitt
í göngur á Stórasand.

Þessi texti ómar alltaf í kollinum á mér á þessum árstíma enda í miklu uppáhaldi. Hins vegar eru meiri líkur til að það verði þokubólstrar en ekki sólskin á Bláfellsbrúninni á morgun þegar .
Alla vega, aftur skal haldið á heiðina góðu því eins og ég minntist á í síðustu færslu segja fjallskilastjórnin og dagatalið að í dag skuli haldið af stað í fyrstu göngur.
Í fyrsta sinn á ævinni fer ég í undanreið og fæ því að taka þátt í að smala Stórasand áður en haldið verður niður Tungurnar. Ég get nú ekki neitað því að ég hefði heldur viljað að spáin hljóðaði upp á bjart og fallegt veður á undanreiðardaginn og fá að sjá töfralandið úr kvæðinu í sínu fínasta pússi, en það þýðir víst ekki að fást um það, það verður bara að gera það besta úr hlutunum.
Hrossin og farangurinn eru lögð af stað og skila sér vonandi fram í skála fyrir kvöldið. Hef svo sem engar sérstakar áhyggjur af farangrinum né lánshrossinu sem Stórhólsbændur voru svo elskulegir að lána mér. Hvort að Iðunn ákveður einhvern tíman á leiðinni fram að það sé skemmtilegra að blanda geði við stóðið heldur en að smala Sandinn, nú eða bara drífa sig aftur heim, er stærri óvissuþáttur.
Þetta verður svo sem bara að koma í ljós, alveg eins og tíðarfarið en sjálfsagt verður þetta allt í lagi. Það er flokkur vaskra manna sem fékk það hlutverk að reka gangnahrossin og þeir skila því eflaust af sér með prýði.
En, nú er tímabært að fara að tygja sig, glæný nokia stígvél eru komin í hús, vatnsgallinn tiltækur og bragðbætirinn út í kaffið kominn á pela þannig að það er ekkert að vanbúnaði.
Óskið mér góðrar ferðar og góðs gengir
Sveitalubbinn kveður og heldur áleiðis á heiðina

P.s.
Ef einhvern langar að komast í smá réttartörn þá getum við lengi notað aukamannskap í réttinni á föstudaginn. Þá er réttað í Valdarásrétt og réttarstörfin hefjast klukkan 9 og er yfirleitt lokið undir hádegið

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Víííí!! Hallfríður bara vöknuð til blogg -lífsins!
Ég vona að Skildingurinn fari nú vel með þig í göngunum og að þið náið að svamla yfir mestu fenin á Tungunum ;) Skál!

mánudagur, september 03, 2007 8:54:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvar er Hallfríður,, týndist hún í göngunum????

Kv Siggi

miðvikudagur, október 17, 2007 7:52:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home