miðvikudagur, nóvember 14, 2007

Tveimur mánuðum síðar ...

... og nokkrum dögum betur kemur loksins ný færsla, reyndar um löngu liðna atburði, og aldeilis ekki í styttri kantinum. Það sem hér fer á eftir fjallar bara um göngur og réttir þannig að þeir sem ekki nenna að lesa svoleiðis geta sparað sér ómakið.

Sem sagt. Veðurspárnar rættust og það var aldeilis ekki sólskin á Bláfellsbrúninni á undanreiðardaginn. Líktist eiginlega meira eldi og brennisteini sem fossaði úr loftinu daginn þann. Vildi til að það stytti upp á milli hryðja þannig að gleraugun þornuðu og ég gat náð áttum og skilaði mér því í skála undir kvöldið. Hafði eflaust sitt að segja að mínir elskulegu frændur höfðu eytt sínum dýrmæta tíma kvöldið áður í að uppfræða mig um það helsta sem þarf að hafa í huga áður en haldið er í göngur á Stórasand. Má þar nefna hin einu réttu viðbrögð við því ef maður villist og svo náttúrulega helstu varnarráð og varúðarráðstafanir gegn hinum illræmdu “killer sheep”, en sem tungudeli er ég víst í sérstökum áhættuhóp. Allt slapp þetta nú til enda fór ég ekkert á sandinn í þessum göngum heldur þvældist um vestur undir vötnum og hvorki villtist né rakst á “killer sheep”. Takk samt kæru frændur.
Morguninn eftir var svo “Heiðin” kvödd og næstu tveir dagar fóru í að dóla niður tungurnar ásamt öðrum tungudelum og var það hinn ljúfasti leiðangur. Helst að blessunin hún Gulla væri að tefja fyrir okkur en hún vissi það ósköp vel blessuð kindin að það verður einhver að vera síðastur og var alveg til í að fórna sér í það. Hún tók hlutverkið meira að segja svo alvarlega að hún rak lestina inn í safngirðinguna þegar komið var til byggða og labbaði svo síðust allra kinda inn í almenninginn á réttardaginn.
En alla vega, þá skilaði ég mér til byggða ásamt öðrum gangnamönnum, leitarmönnum og tungudelum þannig að skýringin á bloggleysi undanfarinna mánaða er ekki sú að ég hafi ekki komist til byggða. Hef svo sem enga góða afsökun fyrir að blogga ekki, hefði t.d. vel getað nýtt vikuna eftir göngur þegar ég lá í rúminu með pest frá helvíti og var ekki til nokkurs gagns. Veit eiginlega ekki alveg hvort skýringin á lasleikanum var vatnsveðrið í göngunum eða skelfingarhrollur yfir réttarballgestum. Þvílíkt og annað eins samsafn af skrækjandi gelgjum hefur held ég ekki sést fyrr og ég er orðin hundrað ára. Nú svo gætu þetta hafa verið vonbrigðin yfir því að hafa farið með þrjár námsmeyjar frá Hvanneyri á ballið (fjórar ef ég tel Sigríði systur með) og komið með þær allar heim af ballinu aftur. Þvílík afturför.
Ég reis svo úr rekkju aftur viku eftir réttir og skellti mér í seinni göngur og það var stuð. Veðrið var reyndar skítt eins og fyrri daginn, hávaða djöfuls rok fyrri daginn en við Fúsi hörkuðum það allt af okkur og þvældumst fyrst yfir Sandfellið, þá suður Fossabrekkur og að lokum fram í Búðarárdrög og lengra komumst við ekki þó að það hafi nú verið markmiðið í upphafi. Ástæðan var samt ekki að við værum neitt að drolla. Það vill bara fara svo í þessum göngum að það séu rolluskjátur að tefja fyrir manni og þegar við komum loksins í skála að loknu dagsverki var það í fjórða skipti þann daginn. Hrossin voru líka löngu hætt að svo mikið sem sperra eyrun þó þau sæju náttstaðinn, greinilega sannfærð um að það væri ekki til neins að gleðjast þar sem þeim yrði hvort eð er þrælað aftur af stað út í grjótið og rokið.
Grillsteikin þetta kvöldið var sko aldeilis snilldar góð og ekki spillti fyrir krækiberjavínið (a la Miðhópsbændur að ég held) né hausverkjarrauðvínið sem ég hef ekki hugmynd um hvaðan kom, þ.e. áður en það komst í umsjá frænda míns. Eftirrétturinn var svo Irish coffee og kvöldið leið við sögur af löngu liðnum göngum og misgömlum gangnamönnum (sem allir áttu það sammerkt að vera fjarstaddir. Má eiginlega segja að þetta hafi verið þemakvöld, alla vega voru mun fleiri sögur sagðar af sumum en öðrum.
Menn voru misferskir þegar lagt var af stað morguninn eftir en allir skiluðu sér þó til byggða þrátt fyrir þoku og snjókomu.
Eftir þessar seinni göngur tóku svo við lambamælingar og hrútaþukl vítt og breitt um Vesturland og allt vestur á firði.
Tók sú törn rúman mánuð og telst mér til að ég hafi komist með lúkurnar í eitthvað á sjöunda þúsund fjár þetta haustið.
Held ég láti núna staðar numið enda pistillinn orðinn nógu langur og ríflega það. Ýmislegt er þó enn ótalið sem ég hafði hugsað mér setja hér inn en það bíður betri tíma.

Sveitalubbinn kveður úr sveitasælunni

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

*Klapp klapp*!!!
Ég bíð svo eftir heimsókn frá þér, þar sem þú átt að fræða mig um allt fallega féð sem þú þuklaðir ;o)
Kv. Maríanna

miðvikudagur, nóvember 14, 2007 8:26:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Viltu svo vinsamlegast ekki bíða í 2 mánuði áður en næsti fréttapistill kemur, mér veitir nú aldeilis ekki af því að hafa eitthvað annað að gera en að læra... eða ekki...

miðvikudagur, nóvember 14, 2007 9:31:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Viltu svo vinsamlegast ekki bíða í 2 mánuði áður en næsti fréttapistill kemur, mér veitir nú aldeilis ekki af því að hafa eitthvað annað að gera en að læra... eða ekki...

miðvikudagur, nóvember 14, 2007 9:31:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ja hérna, ég sé að það er komið blogg OG ég hef fengið nýtt nafn. Þarf ég að fjárfesta í rúllukragapeysu ???

þriðjudagur, desember 18, 2007 11:02:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sælar
Soltið langt síðan það kom nýtt blogg. Síðast þegar ég kíkti og þar síðast þá var það þetta sama blogg. Endilega farðu að blogga pínu.

þriðjudagur, febrúar 26, 2008 8:43:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Heyrðu já, ég er alltaf að kíkja hingað en ekkert gerist! Ekkert nýtt blogg!! Hvað á eiginlega að kvelja mann lengi?! Og aldrei kemurðu í kaffi....fussumsvei!!

mánudagur, mars 03, 2008 7:23:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Nú er dálítið langt orðið síðan síðast.....meira en tveir mánuðir

miðvikudagur, mars 26, 2008 10:33:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

4 mánuðir og 21 dagur frá síðasta bloggi

föstudagur, apríl 04, 2008 10:03:00 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home