...en samt bara í næstsíðustu færslu minntist ég eitthvað á hina ógnvænlegu "killer sheep". Fékk svo sem aldrei neina góða skýringu á hverslags fjárstofn þetta væri, aðeins að þær væru stórhættulegar og héldu mest til á Stórasandi.
Ég hlustaði náttúrulega stóreyg á og svaf lítið fyrir skelfingarhrolli næstu nótt. Þegar svo undanreiðardagurinn hafði liðið án þess að ég rækist á þessar háskaskepnur andaði ég léttara og prísaði mig sæla fyrir að hafa þraukað ein tuttugu og helvítishelling mörg ár án þess að rekast á þennan fénað.
Ákvað þar sem ég sat í Fellaskála og fagnaði lífinu að héðan í frá skyldi ég halda vel og rækilega upp á hvern undanreiðardag sem mér tækist að þrauka án þess að lenda í þess háttar lífsháska (að sjálfsögðu verður fagnað með irish coffee eða álíka veigum).
Það er svo sem betur fer bara einn undanreiðardagur á ári þannig að þannig að áhættan er bundin við einn dag á ári, eða kannski tvo ef ég er þannig staðsett í seinni göngum. Restina af árinu get ég verið nokkuð áhyggjulaus.
Eða hvað..............???
Ég fór nefnilega í gærkvöldi að kíkja á myndir sem Sigríður systir hefur verið að taka undanfarna mánuði og áttaði mig á því hættan er kannski ekki eins bundin við Stóra Sand og mér var tjáð í haust og nær þar með til mun fleiri daga ársins en þeirra tveggja sem fyrr eru nefndir.
Ég get sem sagt ekki betur séð en við höfum barasta eintak af þessum vafasama stofni í fjárhúsunum heima eða hvernig á annars að útskýra svona háttalag hjá íslenskri sauðkind???
Sjáiði ekki græðgisglampann í augnaráðinu ???
Það vill reyndar svo vel til að þetta er eflaust kynblendingur. Bæði bendir liturinn til þess (killer sheep eru sem sagt yfirleitt svartar eða mórauðar ef ég man rétt) og svo eru allir fingurnir enn á mér og öðrum á heimilinu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir skepnunnar til að ná þeim af. Þar að auki eru gangnahestarnir eftir því sem ég best veit enn á lífi þrátt fyrir að hafa dvalið í fjárhúsunum síðan í janúar, reyndar í þokkalega víggirtum stíum, en ef það er eitthvað sem er í meiri áhættu með að vera étið af killer sheep en tungudeli eru það gangnahestar tungudelanna.
Það sem mér er hins vegar ómögulegt að skilja er hvernig þetta hefur borist í stofninn þar sem féð heima er nú að mínu viti ekki vant að leggjast í miklar langferðir og mér er til efs að nokkur rolla úr okkar núverandi fjárstofni hafi einhvern tíman álpast alla leið fram á Stórasand. Ef svo væri hefði viðkomandi alla vega örugglega ekki komist til baka aftur.
Þetta getur bara þýtt eitt.....
stofninn hlýtur að vera farinn að dreifa sér út fyrir Stórasand þannig að bráðlega verður enginn öruggur. Og þar með höfum við öll ástæðu til að fagna lífinu á viðeigandi hátt hvern einasta dag ársins, ekki bara í göngum:)
Skál fyrir því!!
Sveitalubbinn kveður úr fjárhúsunum
(einstakur kjarkur ekki satt....?)
1 Comments:
Heppin ég að hafa verið búin að ákveða að fá mér einn FlóaSkjálfta í kvöld... enda hlýt ég að vera í meiri lífshættu en aðrir þar sem ég á umrædda kind og því vel afsakanlegt þó ég hafi fagnað lífinu töluvert undanfarin ár á Hvanneyri...
Skrifa ummæli
<< Home