miðvikudagur, apríl 16, 2008

núerégsvoaldeilishissa....

kíkti á Húnahornið einu sinni sem oftar og sá þá þetta . Það er alltaf gott þegar sveitarfélög eru með forgangsröðunina á hreinu ekki satt. Annað eins þarfaþing hefur eflaust ekki sést á svæðinu í háa herrans tíð og Skagstrendingar svo sannarlega öfundsverðir sem aldrei fyrr....

Anyway, þá er ég enn með lífsmarki þó að síðan hafi ekki verið það í langan tíma (man ekki hversu langan en einhver lesandinn virðist með það allt á hreinu).

Ástæðan fyrir þessum sofandahætti er einfaldlega sú að það hefur ekki gerst mjög lengi að mig hafi langað að blogga og setið fyrir framan tölvu bæði á sama tíma og ekki hefur hvarflað að mér þegar bloggandinn hefur komið yfir mig að hafa mig upp úr sófanum og starta tölvu.

Núna aftur á móti sit ég fyrir framan nettengda tölvu en nenni samt ekki að blogga - alla vega ekki umfram það sem hér er komið enda á ég víst að vera að vinna í Msc verkefninu mínu en ekki að hanga á netinu.

En sjáum til. Aldrei að vita nema það birtist heillangt og ítarlegt blogg innan tíðar - eða alla vega blogg - fer eftir því í hversu miklum mæli ég nenni að tína í ykkur sögulegar staðreyndir um mig og mína síðustu fimm mánuðina plús einhverja daga.

Sveitalubbinn kveður úr fjárhúsunum á Hesti
(þar sem fyrstu lömbin komu í heiminn í gærkvöldi og eru svoooo ótrúlega sæt)

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Dugleg stelpan að blogga!

fimmtudagur, apríl 17, 2008 6:33:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hey - Hallfríður ertu LIFANDI????
Gaman að heyra frá þér!!!! Á.Ó.

föstudagur, apríl 18, 2008 11:07:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home