mánudagur, maí 19, 2008

Farin

norður í sauðburð og ef það er eitthvað óborið af rolluskjátum enn, sem ég ætla rétt að vona, þá eru ekki miklar líkur á bloggi alveg á næstu dögum. Ætla mér helst að dvelja í fjárhúsunum daginn út og inn, fara sem minnst að heiman og hitta sem fæsta næstu vikurnar. Reyndar veit ég nú þegar um þrjá daga í næstu viku sem þetta plan heldur ekki af því að ég þarf enn og aftur suður í Borgarfjörð. Tveir dagar fara í að vinna á hrossasýningu eins og ég minntist á einhvern tíman um daginn og ætli maður reyni svo ekki að mæta þegar Sigríður útskrifast.

En þess á milli eru það fjárhúsin eins lengi og sauðburðurinn endist mér. Svo er það minitab. Púff, það á eftir að vera einhver hausverkur.


alla vega lítið um blogg á næstunni, spurning samt hvort ég hendi inn myndum þegar þessi kemur með flekkóttu lömbin sín :)


kveðja frá sveitalubbanum
- á heimleið

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það er aldeilis kraftur í minni síðustu dagana í blogginu. Hef ekki kíkt hér inn svolítið lengi. Kættist allverulega þegar ég sá svona margar ólesnar færslur. Alltaf gaman að lesa blogg frá þér. Gakk vel í minitap og öllu stússi sem þú tekur þér fyrir hendur.
kveðja Hrafnhildur.
ps.hittumst vonandi á landsmóti:+)

sunnudagur, maí 25, 2008 9:30:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home