föstudagur, maí 16, 2008

Suma daga...

...uppgötvar maður það á einhverjum tímapunkti að það hefði víst verið skynsamlegast að fara ekkert fram úr rúminu þann daginn eða alla vega alls ekki reyna að gera eitthvað af viti.

Ég átti svoleiðis dag í gær.

Nú er bara spurningin hvort það hafi verið rétt ákvörðun að drattast fram úr rúminu í dag. Fyrstu fréttir úr netheimum benda ekki til þess. Mbl segir frá því að bensínverðið lækki í dag. Eitthvað sem væri svo sem fínt ef ég hefði ekki fyllt Blesa minn í gær eða fyrradag og engar líkur á öðru en að blessuð olíufélögin verði búin að finna sér einhverja góða ástæðu til að hækka verðið aftur áður en Blesi þarf áfyllingu aftur.

En það er víst ekki í boði að liggja bara í geðvonsku og fýlu í bælinu, það liggja víst fyrir einhver verkefni og sumum þeirra er engan veginn hægt að fresta til morguns. Eitthvað sem ég myndi eflaust gera ef þess væri einhver kostur. Ég lifi eftir orðtakinu "frestur er á illu bestur".

Anyway, best að fara að finna sér eitthvað að éta og athuga svo hvort ég nái í dýralækninn til að vita hvenær hann geti komið í blóðtökuna.

Sit líka með hálfgerðan hroll þar sem ég heyri skýrt og greinilega úr herberginu mínu allt sem fram fer í sundkennslunni hér í Hvanneyrarlauginni. Á sem sagt ekki nema í meðallagi góðar minningar eða þaðan af verri úr sundkennslu í grunnskóla og hrollurinn minnkaði bara ekki neitt þegar ég sá að sundkennarinn hérna er að þessu sinni sá hinn sami og kenndi mér sund fyrstu grunnskólaárin. Jamm, stendur keikur á sundlaugarbakkanum á Hvanneyri með prik í hendi... klingir einhverjum bjöllum hjá ykkur sem eruð á svipuðum aldri og ég og genguð í skóla í Húnaþingi???

nóg í bili
geðvonskulubbinn á eyrinni kveður

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home