þriðjudagur, desember 02, 2008

ekki alveg nógu hress..

...með að þessa fyrstu daga sæðingatímabilsins, dagana sem fæstir nenna að sæða og því gjarnan hægt að fá nánast eins mikið og manni sýnist úr hverjum þeim hrút sem manni dettur í hug að nota (þ.e. þeim sem á annað borð þóknast að afgreiða slíkan vökva eftir pöntun), geta rollurnar náttúrulega ekki verið blæsma.
Búin að fara núna út tvo morgna í röð, korter fyrir alltof snemma, til að paufast um fjárhúsin með geðstirðan hrút sem er ekki beint sáttur með að vera í bandi og vera dreginn burt í hvert skipti sem hann finnur sæmilega álitlega og tilkippilega kind, og allt sem ég hef haft upp úr krafsinu eru 9-10 blæsmur hvorn dag. Alveg nóg til að gera mann geðvondan, ég ætlaði helst að sæða 40 í þessari viku en líkurnar á að ég nái því eru orðnar hverfandi.
En ég er þó alla vega búin að sæða níu rolluskjátur með Púka frá Bergsstöðum og þrjár með Hvelli frá Borgarfelli og í dag verður vonandi sætt með Púka aftur og svo Dökkva frá Hesti. Sá síðarnefndi heillaði mig nefnilega alveg upp úr skónum í vor þegar hann stóð upp á endann í hrútastíunni og sníkti klapp auk þess sem hann myndast alveg gríðarlega vel, topp fyrisæta þar á ferð (svo er dökkhært alltaf dáldið sjarmerandi;).
Myndir og frekari upplýsingar geta þeir sem eru svo óheppnir að hafa ekki útvegað sér alvöru hrútaskrá nálgast hér.

Hressari er ég hins vegar með uppskeruhátíðina sem ég fór á um helgina, hún kom skemmtilega á óvart og afrakstur rjúpnaveiðitímabilsins. Hefði reyndar viljað komast eina ferð enn en er þó alla vega komin með vel í matinn, eða við pabbi í sameiningu öllu heldur.

Nóg í bili
Kveðja frá skrifstofu BHS á Hvammstanga í vetrarveðri eins og það gerist fallegast
Sveitalubbasæðingarúningsrjúpnaskyttan

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Alveg þykir mér grámagnað að frá Hesti komi á sæðingastöð svartur hrútur sem er spakur. Mér finnst Hestféð nefnilega að jafnaði upp til hópa vera hvítt og geðstirt.

þriðjudagur, desember 02, 2008 1:33:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hmmm já... dökkhært er sjarmerandi...mjög sammála...Vonandi gengur samt betur að finna blæsmur restina af vikunni!

þriðjudagur, desember 02, 2008 2:48:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home