Forsetinn á hálfvirði...
... heyrði ég auglýst í útvarpinu í morgun. Ekki held ég svo sem að ég vildi hann þó ég fengi hann gefins en mér fannst auglýsingin dáldið skemmtileg samt.
Ekki eins skemmtilegt var að Púki neitaði í gær alfarið að leggja sitt af mörkum til kynbóta á fjárstofninum í Víðidalstungu, þá var ég fegin að hafa notað það sem ég fékk auka úr honum í fyrradag. Í staðinn notaði ég Prjón frá Hesti sem stendur svo sem alveg fyrir sínu. Má því segja að það hafi verið Kveiksþema í sæðingunum í gær.
Rollurnar þrjóskast enn við að ganga að neinu viti, höfðum það af að grafa upp 10 blæsmur í morgun, átti pantaða 15 skammta, og svo bara bíður maður spenntur eftir að fá að vita hvernig hrútarnir hafa staðið sig í morgun. Á pantað aftur úr Dökkva (dökkhærði sjarmörinn:) og er þokkalega vongóð um að fá hann. Ætlaði svo líka að fá úr Garði og Fannari ef ég man rétt en sagði Kristjáni að ráða hvorum hann sleppti ef mér stæði hvort tveggja til boða.
Ætli sæðingum ljúki svo ekki þar með þessa vikuna en svo er bara að vona að rollurnar, og reyndar hrútarnir líka, verði eitthvað tilkippilegri í næstu viku. Ætlaði að sæða þrjá daga í næstu viku líka og láta það svo gott heita en það getur verið að ég verði að láta einn eða tvo daga duga þá en reikna þá með að taka í staðinn einn dag í þeirri þar næstu en þetta kemur svo sem allt í ljós.
Held kannski áfram með sæðingafréttir næstu daga- dettur ekkert annað í hug til að tjá mig um í augnablikinu enda veit ég ekki hvað er hægt að tala um áhugaverðara eða merkilegra en sauðfé
kveðja frá sveitalubbanum sem eftir sléttar tvær vikur heldur í víking til Noregs en hefur samt nóg að gera og ýmislegt að hlakka til þangað til...
ps. Mæja ég get alveg samþykkt að Hestsféð sé að langstærstum hluta hvítt en hins vegar bara hinar prúðustu kindur að mínu mati hef alla vega ekkert orðið vör við að það sé áberandi geðstirt. Kannski er það bara vegna þess að ég sé svona geðill sjálf að mér finnist ekkert tiltökumál að rollurnar séu það líka, bara meðan þær eru skömminni skárri en ég sjálf...?

4 Comments:
Hvaða ægilegur dugnaður er þetta, bara blogg dag eftir dag allt í einu! Er ánægð með þig! Kveðja frá Noregi, hlakka gríðarlega til eftir 2 vikur :)
Sennilega er ,,geðstirt" líka ómaklega til orða tekið hjá mér. En ekki fer ég ofan af því að mér þykir Hestféð alls ekki spakt (og það þykir mér þú ekki heldur reyndar)
Það hefur sem sagt gengið aðeins betur hjá mér þennan eina dag sem við höfum sætt, það voru sem sagt 13 að beiða. Notuðum við því 3 strá. En það voru þeir Mjöður, Krókur og Blettur sem voru til taks þann daginn. Sæðum svo svampaærnar á morgunn, þær eru 20 og vonandi verða nú 10 til viðbótar að beiða. Þá ætla ég rétt að vona að hann Þráður sýni einhvern áhuga á ánum á sauðfjársæðingastöðinni og láti frá sér nokkur lambafræ!! Til þess var maður nú að svampa þessar bestu ær til að geta sætt þær með bestu hrútunum, en þá bara nenna þeir ekki að gefa sæði. Það er þá spurning hvort maður eigi nokkuð að vera að rembast við að nota þá ef það koma nokkrir dropar, þetta er kannski ættgengur djöfull..
Bestu kveðjur úr Suðursveitinni
Þórey
Þarftu að fara út og ná í systur þína?? Er hún svona óstýrlát? ;)
Kv. Maríanna
Skrifa ummæli
<< Home