í gær
varð sem sagt niðurstaðan að ég sæddi með Dökkva og Fannari. Ekki það að ég búist við að þessar sæðingaupplýsingar veki áhuga hjá neinum nema sjálfri mér og hugsanlega Sigríði systur en ég verð nú að halda mig við að að koma þeim á framfæri hérna áfram fyrst ég er nú einu sinni byrjuð á því. Ætlaði náttúrulega að gera grein fyrir þessu í gær en það fórst fyrir. Er svo undarlega utan við mig þessa dagana!!! Furðulegur andskoti alveg. Ætli ég verði ekki bara að kenna komandi utanlandsferð og jólum um það.
Hef verið að vinna alla þessa viku. Veitir ekki af að ná sér í smá aura þegar maður hefur tækifæri tiil, kemst ekki upp með það lengur að safna endalaust yfirdrætti - möguleikinn á svoleiðis minnkaði mjög snögglega í október. Annars er alltaf alveg stórfínt að vera að vinna hjá búnaðarsambandi á þessum árstíma, sérstaklega þegar maður fær að vera við símann og taka við sæðispöntunum og þar með tækifæri til að kjafta um hrúta alveg út í eitt. Mér leiðist það sko ekki.
Jólaskapið byrjaði að fæðast í gærkvöldi þegar ég var að dunda við að festa upp jólaskrautið í kirkjuna, Hún er ósköp fín núna. Hefur ekkert fundist vera svona stutt til jóla og finnst varla ennþá en þetta kemur vonandi - ætli aðventuhátíðin í kvöld nái ekki að starta jólafílingnum. Vona það alla vega.
Held ég hafi verið með eitthvað fleira í kollinum til að koma hérna á framfæri en þar sem ég man það ekki í augnablikinu læt ég þetta gott heita í bili. Allir svo að krossa putta og vona að krónugreyið haldi áfram að vaxa og dafna alla vega þar til ég er farin út til noregs og komin heim aftur.
Og talandi um Noreg, já Maríanna hún systir mín er ósköp erfið, það vita nú allir en sjálfsagt hefði hún nú skilað sér heim í jólafrí þó að ég hefði ekki farið út. Mér fannst bara alveg tilvalið að skreppa og taka út strákastóðið sem ég er alveg viss um að hún veður alveg í þarna.
en nóg af svo góðu
Sveitalubbinn kveður og heldur inn í helgarfríið

3 Comments:
Ég sagt það áður og segi það enn: það er ekkert strákastóð í boði hér!
Það er allt krökkt af karlpeningi hjá henni! kannski vill hún ekki fá þig til sín! hver veit!...ég myndi allaveganna ekki hlusta a hana! kv silja
Hehehe...Sigga vill bara hafa þá alla útaf fyrir sig ;)
Kv. Maríanna
Skrifa ummæli
<< Home