og nú geta þær gengið helvískar...!!
ég var eiginlega alveg hætt við að sæða fyrstu tvo dagana í þessari viku þó ég ætti pantað. Aðallega af því að pabbi fór suður í gærmorgun og kemur ekki aftur fyrr en í kvöld og ég nennti eiginlega ekki að vera að brasa í þessu ein eða redda einhverjum til að aðstoða mig. Ég leitaði því ekki einu sinni í gærmorgun og afpantaði skammtana mína. Þegar svo var búið að deila út þessum dýrmætu dropum í gær var enn eftir slatti úr nokkrum hrútum sem ekki virðast ætla að slá neitt í gegn í vinsældum og af einhverri rælni kippti ég með mér restunum sem voru meðal annars úr Kalda, Kat, Bramla og Yl. Jú og forystuhrútnum líka en það fór nú reyndar beint í ruslið. Var nú eiginlega ekki að nenna að fara að leita þegar ég loksins var komin heim og búin að innbyrða vænan slurk af kjötbollum hjá Maju (hún virðist alltaf jafn sannfærð um að ég svelti heilu hungri þegar mamma er ekki heima) og átti enn eftir að gefa. Lét mig samt hafa það, setti hrút í band og draslaði honum af stað. Þegar ég var búin að renna honum í gegnum fimm krær var ég búin að finna 13 blæsmur sem ég var alveg örugg með og held alveg að þær gætu hafa verið fleiri og ákvað þá að láta bara gott heita þó að þrjár krær væru eftir. Nennti ekki meiru, sérstaklega þar sem ég var ekki alveg viss um hvernig mér gengi að fást við þetta án þess að hafa neinn til að halda í rollurnar. Svo stíaði ég þær af, gaf öllu draslinu og hófst handa. Þetta gekk bara framar vonum enda einstakar rólegheitaskepnur sem ég á þarna. Nema þessi eina sem stökk þrisvar út úr stíunni. 13 ær voru sem sagt sæddar í gær, 7 við Bramla, 3 við Kat, 2 við Yl og svo fékk kengúrufjandinn sem ekki tolldi í stíunni heilt strá úr Kalda. Aldeilis ekki í boði að láta hana sleppa út á helvítis óþekktina. 45 ær hafa því verið sæddar þegar þetta er skrifað og eitthvað ætla ég að bæta við í dag og á morgun og jafnvel í næstu viku, fer svolítið eftir því hvað verður í boði á morgun fyrir mig. Ég var sem sagt bara nokkuð ánægð með mig í gærkvöldi og endanlega orðin sannfærð um að það sé vel framkvæmanlegt fyrir mig að halda mig við það að verða geðvond piparkerling með heljarinnar rollubú - ég er fullfær um að framkvæma öll helstu búverkin alveg ein og sjálf. Þannig að hér eftir verður það bara "láttu mig kjurt, ég á mig sjálft":)
Dagurinn í dag byrjað svo á húsaverkunum. Eiginlega bara frekar hressandi að byrja daginn á að gefa rollunum en hefði reyndar þurft að berja mig á lappir aðeins fyrr til að ná að mæta á skikkanlegri tíma í vinnu en þetta sleppur nú vonandi til. Ætli dagurinn endi svo ekki á svipuðum nótum sem er bara mjög gott. Veitir heldur ekki af að komast aðeins í verk þar sem maður þarf að hreifa á sér afturendann eftir svona áthelgi dauðans eins og þessa síðustu. Hélt á tímabili að ég myndi ekki þurfa að éta aftur fyrr en um jól. Aðventukvöld og kirkjukaffi á föstudagskvöldið, skírnarveisla og eins árs afmæli hjá henn Evu Rún á laugardaginn og svo bara matar og nammiát frá helvíti það sem eftir lifði helgar. Ósköp ljúft en eins gott að það séu ekki margar svona.
Svo bara vinna í gær, þvílíkur hausverkur þetta sæðisútdeilingastúss, alla vega þegar hrútarnir á sæðingastöðinni virðast fara í kynlífsbindindi hver á fætur öðrum - sérstaklega þessir kollóttu. Afgangur vikunnar fer svo bara í vinnu, sæðinga- og rollustúss og vonandi einhverjar tiltektir líka. Margt sem enn á eftir að gera þessa viku sem eftir er þar til ég skrepp út fyrir landsteinana að sækja systu og helst hefði ég viljað hafa helgina sem mest fría þannig að ég geti kannski skroppið í jólagjafaleiðangur í höfuðborgina, nú og þá auðvitað kíkt á þessa nánast glænýju sætu frænku sem ég á á Hvanneyri.
En það verður bara að skýrast þegar nær dregur hvað tíminn leifir.
En jæja. Komið meira en nóg í bili. Ekki rétt að eyða löngum tíma í bloggskriftir þegar nóg er af öðrum verkefnum
Kveðja frá sveitalubba í önnum

2 Comments:
Mikið ertu dugleg! Vildi að ég væri eins dugleg við lærdóminn og þú að sæða og vinna og allt!
Það vantar ekki drifkraftinn í þig þessa dagana Hallfríður! hmm...piparkerling segirðu- varstu ekki gengin út??
Kv.Maríanna
Skrifa ummæli
<< Home