miðvikudagur, febrúar 25, 2009

aaaaaaarrrrrrrgggggggg

alveg var ég búin að gleyma hvað það getur verið ótrúlega "skemmtilegt" að fást við exeltöflur í wordskjali. Djöfull sem þessi fyrirbæri fá sjálfstæðan vilja við það eitt að flytjast á milli forrita:(

En það þýðir víst ekki annað en að þrauka og reyna að basla áfram. Get þó alla vega huggað mig við að bráðum kemur föstudagur og þá fer ég norður OG kemst að því hvort einhver lömb séu væntanleg í heiminn þetta árið. Guðbrandur kemur sem sagt að telja á föstudagsseinnipartinn og ég hlakka til!!

Þetta er samt allt saman háð veðurguðunum og því hvort mér tekst að drepast úr spiki fyrir föstudaginn eins og allt stefnir í.

Sjáum hvað setur.

Ég reikna með þremur í þessari.þó ég verði samt alveg sátt þó það komi bara 2. Þetta er Djásnið mitt og fær nánast ótakmarkaða aukabita - þegar ég er í húsunum. Það er ekkert hægt að standast þennan svip. Svo er maður svo háeðalborinn, Gáradóttir undan Húnsdóttur:)...

og ég ætla mér að fá tvær flekkóttar Lárusdætur úr þessari, síðasti sjens að fá flekkótta ásetningsgimbur undan henni

Well, back to exel/word/SAS (geisp)

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég vona líka að ég fái flekkót, nennirðu að spyrja Guðbrand hvort hann geti reynt að sjá litinn líka og helst kynið :)

miðvikudagur, febrúar 25, 2009 4:06:00 e.h.  
Blogger Hallfríður Ósk said...

Úr Strympu færðu alla vega tvo hvíta hrúta skal ég segja þér.
Þarf ekkert að spyrja Guðbrand að því:)

miðvikudagur, febrúar 25, 2009 5:22:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég krossa fingur og tær fyrir þína hönd með flekkóttu gimbrarnar :o)
Kv. Maríanna

miðvikudagur, febrúar 25, 2009 7:46:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

GAkk vel með exel Hallfríður. Get ekki sagt ég öfundi þig mikið með exel-bardaga. Góða skemmtun á föstudag, skil vel að þú hlakkir til að komast í sveitina.
kv
HB

miðvikudagur, febrúar 25, 2009 9:11:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þú stendur virkilega undir nafninu sveitalubbi...ekkert minnst á bollur eða öskur-daginn....nei, frökenin hugsar bara um vinkonurnar í fjárhúsunum!
p.s. ég geri það reyndar líka.....!
knús
Hildur

fimmtudagur, febrúar 26, 2009 1:58:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Jæja....er ekki kominn tími á nýja færslu hjá ÞÉR Hallfríður mín? :o)
Kv. Maríanna

föstudagur, mars 20, 2009 6:25:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home