SAS
Ég ætla svo sem ekki að halda því fram að ég sé að breytast í eitthvað tölfræðinörd en ég hef verið að uppgötva það í dag að mér finnst SAS bara aldeilis bráðskemmtilegt forrit. Kann samt ekki að gera nema örlítið brot af því sem hægt er að gera og þaðan af síður að lesa út úr öllum þeim tölum, töflum, línuritum og gröfum sem forritið býður upp á (kæmi sér sem sagt afskaplega vel að vera tölfræðinörd) en finnst samt skemmtilegt að fikta mig áfram í þessu. Og þeir sem þekkja mig sæmilega vel vita að mér finnst svona yfirleitt alls ekki gaman að fikta mig áfram með hlutina, sérstaklega ekki þegar um er að ræða tölvur og tæki. Ég vil bara fá að vita hvað á að gera 100% fyrirfram og þ.a.l. eiga hlutirnir svo bara að virka 100% í fyrstu tilraun. Þannig að dagurinn í dag hefur bara komið skemmtilega á óvart. Var reyndar alveg kominn tími á svoleiðis dag því satt best að segja þá gengur ekki rassgat með verkefnið og ég er þar með búin að eyða fullt af dýrmætum tíma í tóma vitleysu.
Því fylgir svo að sjálfsögðu að geðheilsan hefur ekki verið í sem bestu standi, feitan og ljótan í hámarki og bara almennt ekkert sérstaklega gaman að vera til.
Eeeeeen....
...það er nú ekki markmiðið að fara að fylla þetta blogg af einhverju væli eða tilfinningakjaftæði, hefur í gegnum tíðina reynst ágætlega að halda því fyrir sjálfa mig að sem mestu leiti og held ég haldi því bara áfram.
En nóg í bili
best að hafa sig í Svarthamrana, finna sér einhverja skítabúllu ala Baugur group til að fjárfesta í einhverju matarkyns - um að gera að styrkja JÁJ enn frekar núna þegar hann er orðinn tekjuhæsti ríkisstarfsmaðurinn, og leggjast svo bara á meltuna yfir sjónvarpinu í aaaaallllt kvöld:)
sveitalubbinn sendir bestu kveðjur af malbikinu og vonar að SAS haldi áfram að vera samvinnuþýtt og skemmtilegt á morgun

2 Comments:
Vá skemmtilegt tölfræðiforrit... hélt það væri nú bara ekki til! En um að gera að væla sem mest, mér finnst það voða gott á minni síðu allavega!
Bestu kveðjur úr myglunni og feitunni og ljótunni í Noregi :)
og muna svo eftir þorrablótinu... Getur fengið far hjá Óðni
Siggi
Skrifa ummæli
<< Home