Vissuð þið...

Siggi Sig á Suðra frá Holtsmúla og var örugglega bara vel að því kominn. Þetta brokk er nú aldrei neitt sérstaklega leiðinlegt á að horfa og töltið hjá klárnum fannst mér, alla vega í úrslitunum, eiginlega bara betra en stundum áður. Hækkaði alla vega í áliti hjá mér frekar en hitt.
Ég var því bara nokkuð sátt með úrslitin, held langoftast með Sigga þegar hann er að keppa, án þess að ég geti gefið neinar frekari skýrinar á því. Þ.e. aðrar en þær að hann er líklega bara asskoti góður, sem er í sjálfu sér fínasta skýring út af fyrir sig.
Svo heillaði þessi mig dáldið mikið, þ.e. klárinn!

Náttar frá Þorláksstöðum heitir gripurinn og Hinrik Bragason reið honum í B-úrslit, þaðan upp í A og endaði í þriðja sæti ef mig misminnir ekki. Kolsvartur og fasmikill klár og sérstaklega flottur á feti, brokki og stökki. Vantar kannski aðeins meiri tilþrif á töltinu svona upp á samanburðinn í úrslitakeppni en það á vonandi bara eftir að koma. Hann er alla vega með 8,5 fyrir tölt í kynbótadómi þannig að eitthvað getur hann. Þessi hestur er undan Ófeigi frá Þorláksstöðum sem ég man einmitt eftir frá LM 2002. Faxprúður ef ég man rétt, rúmur og skrefmikill og ofsa vakur með toppeinkunn fyrir geðslag.
En svo ég dragi nú aðeins niður í þessari helvítis jákvæðni allri þá er rétt að koma líka með mynd af einum sem heillar mig eiginlega bara ekki baun

Klerkur frá Bjarnanesi heitir þessi og var reyndar í úrslitum þannig að eitthvað getur hann, ætla alls ekkert að fara að draga dómgæsluna í efa enda hef ég ekki hundsvit á þessu. Mér finnst klárgreyið bara bæði lítill og ljótur. Virkar hálsstuttur, framsettur á töltinu, faxlítill og bara ekkert spennandi í framgöngu. Kannski rétt að hafa það samt í huga að hann er líklega ekki nema á sjötta vetur og á eflaust eftir að slípast eitthvað til enn. Nokkuð flottur á brokkinu samt og það sem dýrið getur spriklað með framlöppunum á bæði brokki og stökki. Faðernið skín í gegn þar en klárinn er sem sé undan Glampa frá Vatnsleysu og margir sem mig þekkja vita svo sem mitt álit á honum:)
Til að hafa nú allt á hreinu þá skal það tekið fram að þessum myndum var mjög svo heiðarlega stolið af http://www.eidfaxi.is/ enda var sem fyrr segir um skyndiákvörðun að ræða að skreppa austur og því engin myndavél með í för.
Og með þessu hef ég svo aftur komið illilega upp um mig og sýnt það og sannað að það er ekki nóg með að ég sé að eyða hluta af mínum dýrmæta vinnutíma hér á Keldnaholtinu í að blogga heldur er ég líka búin að hanga á netinu og skoða hrossamyndir...
Anyway, nú verður tekið á því í SAS uppgjörum og töflugerð þangað til um 4-5 í dag. Þá verður haldið í Svarthamrana og sparslað og málað í miklum móð og á mettíma svo ég verði nú komin upp í Borgarnes áður en Búvest starfsfólk verður komið á hvolf oní bolluskálina. Þegar fer að grisja í botninn á skálinni verður svo skundað á þorrablót sem væntanlega verður það síðasta sem ég fer á þetta árið.
Á laugardag tekur svo sveitasælan við og svei mér þá, ég held ég hlakki bara enn meira til þess en blótsins enda búin að dvelja hér í borg óttans samfleytt í 2 vikur.
Eða öllu heldur 12 daga ef ég á að vera alveg súpernákvæm
Sveitalubbinn biður að heilsa í bili og stefnir að því að láta vita af sér fljótlega aftur
ps. Getið þið bent mér á einhverja brilliant hugmynd til að losna við vöðvabólguverki úr öxlum?? og þá meina ég eitthvað annað en að hreyfa sig meira (of erfitt), fara í sund eða heitan pott (of erfitt og of blautt) eða fara í nudd (vil ekki láta annað fólk koma við mig)

2 Comments:
Já þessi Klerkur er allavega alls ekki flottur á þessari mynd!
Ertu búin að prófa hitapoka eða hitateppi? Það er líka til fullt af sniðugum gelpokum sem má kæla eða hita og hjá sumum þrælvirkar það. Sakar ekki að prófa?
Kv. Maríanna
Skrifa ummæli
<< Home