Hann er alltaf skemmtilegur...
...þessi 1. apríl.
Ísbjarnargröf í Skagafirði, ævagamlar dráttarvélar milljónavirði á suðurlandi og margt fleira bráðskemmtilegt.
Sjálf gat ég ekki annað en farið af stað með hálfgerðri tortryggni þegar við pabbi vorum boðuð í smalamennskur eftir hádegið í gær og verið viðbúin hinu versta. Þar var hins vegar ekki um gabb að ræða og 6 óþekkar skjátur náðust loks í aðhald á Bakka eftir veturlanga dvöl á blessaðri Tungunni. Það var nú samt ekki svo vel að við ættum neitt af þeim eins og ég hálfpartinn reiknaði með, þannig að þetta var kannski hálfpartinn aprílgabb, þ.e. hvað okkur varðar.
Flokkurinn samanstóð af þremur ám og þremur lambhrútum (pössuðu sig á að láta ekki sjást til sín fyrr en daginn eftir páskaslátrun!) og var bara í furðu góðu standi miðað við aðstæður. Kemur svo sem ekki sérstaklega á óvart því annað eins gósenland og blessuð Tungan finnst náttúrulega ekki og veðurblíða Víðidalsins annáluð:)
En að öllu gamni slepptu þá má svo sem minna á að vetrarbeit á þessu svæði var mikil búbót fyrir víðdælska bændur fyrr á tíð og því ekkert nýtt að fé geti þrifist þokkalega meira og minna á brokinu yfir vetrartímann. Hins vegar var féð nú kannski ekki alveg látið sjálfrátt um það á þeim tíma hvort og hvernig það nýtti þessi hlunnindi.
En sem sagt, nú sit ég á skrifstofu á Keldnaholtinu og bý mig undir að reyna að telja leiðbeinandunum trú um að ég hafi eitthvað unnið í verkefninu mínu á undanförnum dögum og vikum, dögum og vikum sem satt best að segja hafa meira farið í utanlandsferðir og búfjáreftirlit.
Sigríður systir hefur gert utanlandsferðinni skil á sínu bloggi og búfjáreftirlitið er trúnaðarmál og verður því ekki meira um þetta tvennt fjallað hér.
Ef einhver er að velta fyrir sér af hverju ég hef ekkert skrifað um niðurstöður fósturvísatalningarinnar þá eru ástæðurnar aðallega tvær.
a: krónísk geðvonska og leti
b: niðurstöðurnar voru bara hreint ekki eins góðar og ég hafði verið að gera mér vonir um. Rétt sleppum í svipaðan heildarlambafjölda og í fyrra (alla vega ef ekki láta margar) og það getum við þakkað gemlingunum sem fengu greinilega afkastameiri hrúta núna en í fyrra.
Gersemarnar mínar á myndunum í síðustu færslum stóðu aftur á móti að sjálfsögðu fullkomlega undir væntingum. Djásnið fær líka verðlaun við hæfi í hvert skipti sem ég álpast í húsin og í næstu kró stendur svo dóttir hennar, Ljúfsdóttir frá Ytri Skógum, upp á endann og mænir á mann með álíka bænarsvip og fær jú vissulega stundum aukabita svona til samlætis. Flekka gamla hefur held ég sjaldan verið feitari og fallegri en núna þrátt fyrir að framtennurnar séu allar horfnar og geri ég því ráð fyrir gríðarfallegum svartflekkóttum ásetningsgimbrum úr henni í haust.
Jæja, nóg í bili enda er rétt að koma matur og ekki má ég nú missa úr máltíð. Gæti tapað einhverju af þessum dásamlegu aukakílóum sem ég er búin að bæta á mig í vetur.
Eftir hádegi ætla ég að láta verkefnið eiga hug minn allan en það verður að viðurkennast að hann hvarflar alltaf meira og meira í fjárhúsin eftir því sem nær líður vorinu. Það styttist líka í að það fari að koma í ljós hvort eitthvað hafi haldið af þessum 86 ám sem ég sæddi í desember. Þær fyrstu eiga tal upp úr 20. apríl og náttúrulega fjöldamargt sem eftir er að gera fyrir þann tíma
Sveitalubbinn kveður og minnir að sjálfsögðu á að kvittun fyrir innliti er alltaf vel þegin þó að innlit í eigin persónu í Víðidalstungunni sé náttúrulega enn skemmtilegra. Nú og svo er sjálfsagt að benda á að annað kvöld, að loknu fjórgangsmóti í Hvammstangahöllinni, verður hægt að fylgjast með liði Víðdælinga hampa 1. verðlaunum í Húnvetnsku liðakeppninni. Ég stefni náttúrulega á að fylgjast með þeim mikla viðburði og bíð spennt

5 Comments:
Ætla bara rétt að minna á að þú ert ekkert búin að kvitta hjá mér lengi! Það er nú alveg lágmarkið að systur manns lesi það sem maður er að rembast við að skrifa sko!
Kvitt!
Maður veit nú aldrei hvort þú ert heima eða að heiman...bölvað flakk á þér alltaf hreint!
Jahá!!! Við verðum að fjölmenna og samfagna með Víðdælingum á föstudagskvöldið þegar (ekkert "EF" hér..) þeir eru búnir að sigra liðakeppnina ;) ÁFRAM VÍÐIDALUR!
Kv. Maríanna
Sæl fyrrum bekkjarsystir
Má til með að kvitta fyrir innlitið þar sem ég var svo klók að finna þessa heimasíðu einhvernveginn á vafri mínu. Gaman að lesa um sauðfjáráhugann, enda deili ég þeim áhuga með þér, finnst afskaplega gaman að komast í fjárhúsin heima í Hrútó.
Sjáumst vonandi á förnum vegi
Gerða
Takk fyrir sidast Hallfrídur. Langt sidan eg kikti her innæ.
Gakk vel med ritgerdina og vorverkinn þar sem þau eru væntanlega næst á dagskrá!!!
Kvedja fra Noregi
Hrafnhildur B.
Blessuð Hallfríður
Langt síðan síðast, ég rambaði inn á síðuna og kunni ekki við annað en að kvitta. Ég er á facebook og vonandi við hittumst kannski þar við tækifæri :)
Kveðja úr Skagafirðinum
Gunna Stína
Skrifa ummæli
<< Home