og þannig fór það
- virðist virkilega trúa því að við leysum okkar vandamál í einum grænum hvelli með pennastriki í Brussel
- meira að segja á það að redda atvinnumálunum hér; ég er bara svona treg að skilja ekki hvernig innganga í samband þar sem atvinnuleysi hefur á undanförnum árum - meira að segja fyrir hrun verið í þeim hæðum sem Íslendingar hafa ekki þekkt í einhverja áratugi, á að geta dregið úr atvinnuleysi hér
- (og reyndar skil ég ekki heldur hvernig á að koma í veg fyrir að vöruverð hér hreinlega hækki við upptöku evru eins og hefur sums staðar gerst þar sem sá "öllubjargandi" gjaldmiðill hefur verið tekinn upp.
- en við höfum náttúrulega þessa dásamlega góðhjörtuðu keðjur smásala sem hafa samkeppnissjónarmið alltaf ofar öllu og láta hag heimilanna ALLTAF ganga fyrir sínum
- meira að segja hafa að eigin sögn gengið svo langt að borga með ákveðnum vöruflokkum - bara til hagsbóta fyrir heimilin.
- við skulum þá reikna með að það sama komi til með að gilda þegar kemur að innflutningi á vörum sem framleiddar eru utan esb því þær koma til með að verða tollaðar sem aldrei fyrr eftir inngöngu)
- flokkinn sem hefur sýnt sig í að vera ekki treystandi í stjórnarsamstarfi
- sem hefur ekki landbúnaðarstefnu aðra en þá sem er skrifuð í skrifstofubákni esb - held að eina framboðið sem sýndi landbúnaðinum minni áhuga hafi verið Ástþórsflokkurinn
- sem hefur svarað allri umræðu um landbúnaðarmál með orðunum "við höfum trú á íslenskum landbúnaði blablabla".
- hvernig í ósköpunum er hægt að hafa svona mikla trú á að eitthvað plumi sig vel við tilteknar aðstæður án þess að hafa nokkra einustu þekkingu á því
- Þekkingarleysi samfylkingarfólks á landbúnaði var best lýst þegar ákveðinn frambjóðandi hélt því fram fyrir síðustu kosningar að "íslenskur landbúnaðar væri mjög vel samanburðarhæfur við þann NÝSJÁLENSKA
- En íslendingar eru nú alltaf ósköp ginkeyptir fyrir skyndilausnum þannig að þetta kemur kannski ekki alveg á óvart. Það er verst að þessi sama skyndilausna og skyndigróðaárátta er að ég held einmitt það sem kom okkur í þessar aðstæður sem við erum í núna og eðlið okkar verður það sama, innan sem utan esb.
Það hefði eiginlega verið skömminni skárra að VG hefði fengið ofurlítið meira af atkvæðum á kostnað sf þó að báðir hafi reyndar komist leiðinlega mikið upp með það undanfarnar vikur að gefa ekki upp hvað þeir ætli sér að gera til bjargar ríkissjóði og heimilunum (annað en esb) heldur þrugla fram og aftur um löngu liðna atburði sem vissulega geta verið krítískir og vekja upp spurningar en hafa þó engin grundvallaráhrif þegar kemur að því að meta hvort tiltekin aðferðafræði eða stefna er betur til þess fallin en önnur að skila árangri við núverandi aðstæður.
Púff. Þetta er að verða meiri langlokan hjá mér og frekar sundurlaust. ég er eflaust samt að gleyma einhverju sem mig langaði mikið að tjá mig um og kannski komin í marga hringi en það verðu þá bara að hafa sinn gang. En þetta er alla vega bara brot af því sem er búið að vera að hrærast í kollinum á mér undanfarnar vikur þannig að kannski kemur álíka langloka síðar:)

Askja heitir þessi nýkomna sæta skvísa og er stórættuð átta vikna Border collie tík sem mér áskotnaðist um daginn og mér segir svo hugur að henni finnist ég hafa hangið nógu lengi í bælinu í bili og vilji komast út að pissa, kúka og leika:)
Nú og svo þarf að fara að drattast í húsin og sjá hvort lömbunum hafi eitthvað fjölgað í nótt. 29 stykki voru mætt í gærkvöldi og fangprósentan úr fyrsta sæðingahollinu komin yfir 50% þannig að ég er þolanlega sátt með útkomuna enn sem komið er. Mættu samt alveg bera 2-3 í viðbót úr því holli þannig að hlutfallið næði 2/3. 
Næsta holl ætti svo að fara að bera upp úr helginni og ég vonast náttúrulega eftir að fangprósentan verði ekki minni í því þannig að það er nóg að sýsla enda eins og vanalega 100 hlutir sem eftir er að gera fyrir sauðburð þegar hann brestur á. Held það sé alltaf að verða styttra á milli jóla og sauðburðar - og það alveg jafnt þó að dagsetningarnar á þessum tveimur stórviðburðum séu þær sömu ár frá ári.
Nóg komið af kjaftæði. Takk fyrir innlitin þið sem kíkið við, sérstaklega Gerða og Gunna Stína, var mikið hissa að sjá komment frá ykkur en bráðskemmtilegt var það:)
Ég er náttúrulega alltaf á leiðinni að vera duglegri að blogga en hvort efndirnar á því verða eitthvað betri núna en vanalega skal ég ósagt látið.
Sumarkveðjur úr snjókomu og þoku í Víðidalstungunni

3 Comments:
Ég er hjartanlega sammála þér í stjórnmálahugleiðingunum kæra systir!
Bestu kveðjur til Öskju frá Siggu frænku og knúsaðu endilega nokkur lömb frá mér líka :)
Ykkur er ekki viðbjargandi stúlkur!!!!!!!!!!! Talandi um peningaleisi Hallfríður;" þó ekki væri nema til að finna þessa peninga sem þeir eru búnir að útdeila úr ríkissjóði hér og þar undanfarna daga og vikur; peninga sem ég hélt hreinlega að væru ekki til þessa stundina". Stöldrum við þarna, af hverju eru þessir peningar ekki til???? Er það ekki aðþví einhverjir aðrir hafa verið að spreða!!!!HVerjir eru búnir að vera við völd í 18 ár og hvar eru peningarnir núna, þó það sé heimskreppa þá er hún nú einhverja hluta helvíti slæm á Íslandi. ÞAð er umtalað hér ytra hvað Ísland sé spillt land og á sjálfstæðisflokkurinn ekki síður þátt í því eins og fleiri flokkar!!! Því segi ég ekki annað að Íslendingum er ekki viðbjargandi að gefa bæði samfylkingunni og sjálfstæðisflokknum svona mikið fylgi. Þó það sé nýtt fólk, að hluta til, þá þarf að hreinsa enn betur til!!!!!!
Annars óska ég þér til hamingju með fanghlutfallið og óska þér góðrar sauðburðar- daga/nótta. Kveðja frá Noregi Hrafnhildur.
Hæ hæ Hallfríður, ég kíki líka alltaf öðru hvoru á síðuna þína og hef gaman af :)
Vil sérstaklega taka fram að ég er 100% sammála henni Hrafnhildi, síðasta kommentara, hélt bara fyrst að ég hefði skrifað þetta sjálf haha ;)
Bestu kveðjur til þín og gangi þér vel og skemmtu þér vel í sauðburðinum :)
Kveðja, Oddný Kristín
Skrifa ummæli
<< Home