16. júlí í dag...
...og þessi mynd lýsir best mínu hugarfari þessa stundina


eftir tvo daga legg ég sem betur fer af stað í ferðalag þar sem væntanlega verður lítið fylgst með fréttum og þarf þar af leiðandi ekki að horfa á gleiðbrosandi samfylkingarfólk færa stórveldum vestur og miðevrópu yfirráð yfir auðlindum okkar og þar með sjálfstæði okkar á silfurfati - og meira að segja borga með því.
Hafi ég einhvern tíman velt því fyrir mér að kjósa vinstri græna þá er útséð um að það verði meðan sú hreyfing státar af jafn þægri og auðtamdri forystu og raun hefur borið vitni á undanförnum dögum.
Nei, frekar en hlústa á glaðhlakkalega samfylkingarmenn sem hlakka til að enda starfsferilinn á þægilegri skrifstofu í Brussel og þrælslundaða vinstir græna (þó með fáum undantekningum) vil ég frekar ríða um fjöll og firnindi, skála fyrir landi og þjóð og kyrja þjóðsönginn og önnur ættjarðarljóð.
Þung í skapi í dag og nenni því ekki að skrifa neitt um hápunkta sumarsins fram að þessu. Geðheilsan verður vonandi eitthvað skárri eftir viku eða svo og því hægt að lifa í voninni um almennilegt blogg upp úr því.
Sveitalubbinn kveður og leggur von bráðar upp í ferð...
ps. Hrafnhildur (og Oddný) ástæðan fyrir að ég var ekki búin að svara kommentunum ykkar frá því í síðustu færslu er aldeilis ekki sú að mér sé svara vant eða skorti rök á móti ykkar skoðunum heldur einfaldlega að ég er haldin ritstíflu þessa mánuðina (kemur sér afskaplega illa þegar maður á að vera að skrifa ms ritgerð) og hef því ekki nennt að setja þau á prent. Ég ætla því einfaldlega að svara ykkur því til að mér finnst bara ekkert skárra að slá um sig fyrir kosningar með loforðum um peninga úr tómum ríkissjóði af því að það eigi einhver annar sök á því að hann hafi tæmst. Að sama skapi er líka sjálfsagt að minna á að í þau (sem betur fer fáu) skipti sem vinstri stjórnir hafa ráðið ríkjum í landinu hafa þær alltaf skilað ríkiskassanum af sér í verra ástandi en þær tóku við honum - og það sama gildir reyndar að ég held um vinstri sinnaða borgarstjórnarmeirihluta og sjóði Reykjavíkurborgar ef út í það er farið. Ekki að það komi mér sérstaklega við svo sem nema hvað ég hygg að oft hafi verið um sama fólkið að ræða að einhverju leiti.
Með því að taka við ríkiskassanum tómum hefði mátt búast við að þessi stjórn gæti breytt gangi sögunnar að þessu leiti en því miður sýnist mér frekar að hún ætli að sanna það sem svo sem hefur lengi verið vitað að lengi getur vont versnað.
Frekari umræður um stjórnmálaflokka, bankahrun og spillingu í viðskiptum og stjórnmálum hér á landi sem erlendis bíða betri tíma og væntanlega þess að við hittumst einhvern tíman á góðri stund því ég er ekki að sjá fyrir mér að ég nenni að skrifa langa pistla eða rífast á netinu um stjornmál alveg í næstu framtíð.
Svo er annað mál hvort við kærum okkur um að eyða góðu stundinni í þras um stjórnmál sem við fáum tæpast niðurstöðu í í náinni framtíð.

5 Comments:
Heyr heyr systir!
Heyr heyr systir!
Ég er samt ekki alveg að ná því hvert þú ert að fara!!! Bara í heimsreisu eða á meðferðarheimili fyrir sjálfstæðisfólk??? Frekar þungt í þér hljóðið elskan mín....
Hildur í Holti
og í dag er 16 nóv.. og hvar er Hallfríður??????
Gaman að sjá blogg frá þér.Dálítið langt síðan ég kíkti hingað síðast. Leitt að heyra þetta með ritstífluna.
Ég hef svo sem ekki hugsað mér að rökræða mikið um pólitik hérna á netinu en þegar ég talaði um að mér þætti skrýtið að bæði sjálfstæðiflokkurinn og samfylkinginn fengu svona mikið fylgi í síðustu kosningum er að almenningur í landinu skuli treysta næstum sama fólki og er búið að vera sukka með peninga þjóðarinnar og leyfa félögum og flokksbræðrum komast upp með ýmislegt sem að ekki allir kæmast upp með. Það hefur ýmislegt gott verið gert á undanförnum árum, mér dettur ekki í hug að segja annað. Oft á tíðum var hagnaður í ríkisjóði og allt leit voða vel út. Hins vegar held ég að flestir hafi lært það á sinni skólagöngu að líta þurfi á dæmið til enda þ.e. það sem kemur á eftir merki eins og þessu = jú og hvað stendur? Ísland er með svo stóran MÍNUS á bakinu að annað eins hefur varla sést! Í ljósi þess finnst mér magnað að klappa á bak þeirra sem hafa tekið þátt í þessu með því að gefa þeim atkvæði sitt í síðustu kosningum og með því segja" Flott hjá ykkur, við erum sko tilbúinn til að láta börn, barna börn og barnabarna börn hreinsa þessar skuldir upp eftir ykkur, við verðum hvort eð er kominn undir græna torfu. Flott áfram svona, já og svo treystum við ykkur líka til að hreinsa upp eftir ykkur spillinguna sem þið hafið verið með í, já eða þurfið náttúrulega ekkert að vera standa í því þetta er búið og gert"! Mér dettur ekki í hug að segja að vinstri stjórnin eigi eftir að koma sjá og sigra í þessu öllu saman. ÞAð er sama hver hefði tekið við ríkisjóðnum það hefði alltaf stór hluti þjóðarinnar orðið óánægður. ÞAð var vitað mál við hrunið að það yrði sama hverjir færu í ríkisstjórn það yrði þetta alltaf rosalega erfitt og ekki gert með örðu en að láta landan borga! Að hluta til hefði verið gott á þá flokka sem voru í sukkinu að þurfa reyna redda þessu með mjög marga óánægða í landinu.Í stað þess að geta slegið um sig í stjórnarandsöðunni núna. Hins vegar treysti ég þeim bara ekki til þess. Allt eru þetta manneskjur og láta sömu aðila athuga hvað hafi farið úrskeðis og voru með í sukkinu getur varla mjög vænlegt til árangurs. Það væri svipað eins og að láta heimamann dæmi í mjög mikilvægum körfuboltaleik þegar liðið hans væri að spila. Ég fer ekki ofan af því að það hefur enginn flokkur gott af því að vera í ríkistjórn lengi. Manneskjan er ekki hönnuð fyrir slík völd of lengi. Þá er skiptir engu máli hvort það sé hægri flokkur eða vinstri flokkur, kona eða karlmaður!
MEð ósk um velgengi í rúningum (var að lesa blogg systur þinnar ;+) )
kveðja
Hrafnhildur.
Skrifa ummæli
<< Home