Stóðréttahelgin...
...kom og fór aftur með ógnar hraða eins og allt annað á þessu kalda og blauta hausti. Fór ekki í smölun frekar en venjulega enda var veðurfarið ekkert að hvetja mann til að leggja á að nauðsynjalausu. Skemmti mér samt með hóp af kátum smölum og fleira fólki um kvöldið, fyrst á Gauksmýri og svo á Lækjamóti. Meira hvað Víðdælingar og þeirra fylgifiskar, vinir og vandamenn eru skemmtilegt fólk. Gleymdi reyndar stóðréttaballinu sem var ekki alveg í takt við markmið októbermánaðar um að djamma meira en mánuðinn á undan en október er svo sem bara rétt að byrja.
Tryppadótið fannst tiltölulega auðveldlega í réttinni í gær og náðist inn í dilk stórvandræðalaust.
Sprækur og Gjafar hafa nú lokið sínu síðasta frjálsræðissumri á heiðinni. Þeir voru í forskóla s.l. vetur og bíður nú áframhaldandi nám og fá væntanlega ekki að mæta í stóðrettir öðruvísi en sem smalahross hér eftir. "Stóðið" var svo rekið heim að gömlum og góðum sið og fengum við systur vaskan hóp til aðstoðar við það verk sem gekk þó ekki alveg þrautalaust þó mér teldist til að 2,4 smalar væru um hvert hross í rekstrinum. Hvað með það þó það gleymist smáatriði eins og að loka túnhliðinu nú eða að hafa þá nógan mannskap á undan til að passa umrætt hlið. Annars höfðu lömbin í túninu örugglega bara gott af líkamsræktinni sem fylgdi því að forða sér undan folunum sem töldu sig greinilega frekar eiga að halda til hjá tömdu hrossunum heldur en að fylgja trryppalingunum upp í girðingu.
En alla vega eru hrossin komin heim og það sama gerðu tvær tvílembdar rollur sem fannst víst lítil sanngirni í að hrossin fengju að vera lengur í frjálsræðinu frammi í Króki en þær. Alltaf gott að heimta og þó að það vanti eins og oft áður alltof mörg lömb þá virðast fjárheimtur ætla að verða skömminni skárri en í fyrra.
Nú er búið að slátra stærstum hluta af lömbunum sem á annað borð eiga að fara í sláturhús og velja svona nokkurn veginn endanlega hvað fær að vera. Stefnan er að setja á svipaðan fjölda og í fyrra, s.s. 75-80 gimbrar, endanleg ákvörðun um fjölda verður þó ekki tekin fyrr en búið er að telja ærnar og fara vel og rækilega í gegnum heilsufar þeirra og afurðir á liðnum árum. Væntanlega verða svo settir á 7-8 lambhrútar sem er með fleira móti þar sem sumir fullorðnu hrútanna hafa ekki staðið undir væntingum sem lambafeður og fá því að fara í langferð. Það er bara þannig að hnífurinn er langbesta kynbótatækið og það kostar það sama að eiga hverja á sama hvort hún skilar okkur 25 kg í innleggi eða 35.
Næst á dagskrá er svo að halla sér á koddann og nýta komandi vinnuviku vel til að safna kröftum fyrir næstu fjárragshelgi.
Sveitalubbi býður góða nótt

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home