miðvikudagur, mars 14, 2007

Endrum og eins....

...kíki ég á aðra fjölmiðla en þá íslensku og er það þá helst meðan ég skófla upp í mig morgunmatnum. Eins og gefur að skilja eru það þá morgun-fríblöðin Dato og 24 timer sem verða fyrir valinu hjá fátækum námsmanninum (baugstíðindin eru ekki borin hingað í húsið; myndi nú svosem ekkert taka þau fram yfir fyrrnefndu blöðin - þjóðremban nær ekki til alveg hvers sem er þó það sé íslenskt).

Það verður víst að viðurkennast að yfirleitt eru það ekki helstu tíðindi úr dönsku þjóðfélagi eða stjórnmálum sem mestum tíma er eytt í að lesa, enda fjalla yfirleittbæði ruv og mbl um það markverðasta á því sviði. Hins vegar fær ýmiss konar slúður, myndasögur og fréttir af kjánalegum uppgötvunum eða atburðum víðs vegar að úr heiminum mun meiri athygli. Sveitalubbinn les t.d. allar fréttir af kóngafólkinu staf fyrir staf. Enda hefur það sýnt sig að það marg borgar sig. Ég veit t.d. núna, þökk sé reikningshæfileikum og líffræðiþekkingu blaðamanna á fyrrnefndum blöðum, nákvæmlega hvaða dag væntanlegur prins/prinsessa var getin(n). Og reyndar líka ca klukkan hvað, þar sem faðirinn var víst að sinna einhverjum embættisskyldum sem kröfðust veru á almannafæri að morgni þess dags og því nokkuð ljóst að grislingurinn hlýtur að hafa komið undir seinni partinn.

Fyrir utan fréttir af kóngafjölskyldunni þá er baksíðan á dato orðin í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Þar er miðlað hinum og þessum mjög misgóðum og gagnlegum en oft á tíðum afar skemmtilegum húsráðum, auglýsingum og fróðleik sem mér sýnist yfirleitt fenginn héðan og þaðan af internetinu. Held það sé afar skemmtilegt starf að vera blaðamaður fyrir þennan dálk:)

Alla vega, þá voru í gær á fyrrnefndri síðu gefin nokkur góð ráð til para sem hafa hug á að fjölga mannkyninu. Ástæðan fyrir að þessar ráðleggingar eru dregnar upp og uppfærðar núna er víst að einhver ráðherra var að hvetja Dani til að eiga fleiri börn, fara sem sagt upp í þrjú í staðinn fyrir tvökommaeitthvað. Ég verð nú að segja að fyrir minn smekk er nú alveg fjandans nóg af fólki hérna en ef þetta átak gæti orðið til að fjölga afgreiðslufólki í matvörubúðunum með tíð og tíma, þannig að raðirnar fari að meðaltali ekki mikið upp fyrir 20 manns, þá er það nú kannski alveg þess virði. Reyndar ætla ég svo sannarlega ekki að búa hérna enn þegar afrakstur átaksins verður farinn að ná upp fyrir búðarkassana en það er önnur saga. En ráðin voru sem sé þessi og lesi nú vel og vandlega þeir sem hafa hug á að eignast erfingja - hinir geta reyndar ekki síður haft gagn af :
  • Manden må aldrig gå i bad - i hvert fald ikke varme karbade
  • Manden må ikke gå i stramme bukser (så mister kvinden lyst til sex)
  • Kvinden må ikke være for fuld (men hun må godt læse i Hjemmet imens)
  • Manden skal huske at bruge den pæne indgang, der hvor måtten engang lå foran.
  • Motionér ikke for meget - manden kan ikke fölge med
  • Vil du have en pige, brug missionærstillingen

Mér finnst þetta númer tvö best og svoooooo satt. Held alla vega að hvað mig varðar þá finnist ekki betri getnaðarvörn en þröngar niðurmjóar buxur á karlmönnum. Sérstaklega ef það fylgja þeim támjóir skór. Ef viðkomandi eyðir svo í ofanálag meiri tíma á dag í hárið á sér en ég geri er vörnin fullkomnuð.

En nóg um það.

Ég ætla að enda þessa færslu á að tilkynna að ég á bestustu fjölskyldu í heiminum:) Þau eru öll sömul að undirstrika það enn einu sinni í vetur með að vera svona dugleg að heimsækja mig. Mamma kom í haust, Ragnheiður systir og kallinn hennar fyrir jólin, Sigríður systir í janúar og á morgun eru pabbi, mamma og Sigríður öll að koma út og verða fram yfir helgi.

Bókalestri, bloggi og öðru daglegu amstri og áhyggjum verður því ýtt samviskusamlega til hliðar næstu dagana og túristastemmingin dregin fram.

Og með það býður Sveitalubbinn góða nótt;o)

Efnisorð:

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hmmm....Gassi fer nú alltaf í mjög heitt bað, það hefur greinilega ekki mjög mikil áhrif ;) Eða kannski er það þannig að börnin væru orðin enn fleiri ef hann gerði það ekki?!
Skemmtu þér annars æðislega með familíuna hjá þér, geturðu ekki sent þau heim með Makrelsalat for mig? ;)Sluuurp...það besta sem ég fæ ;)

fimmtudagur, mars 15, 2007 4:11:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Vá svaka færsla.
Gaman að kíkja við hérna, ákvað að kvitta fyrir mig. Takk fyrir kvitt hjá mér.
Kveðja frá Noregi

fimmtudagur, mars 15, 2007 10:54:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ohh hvað þú ert heppin að eiga svona góða fjölskyldu sem nennir að koma út og heimsækja þig. Ég veit ekki alveg hvers vegna mín er svona löt að koma til mín, en ég þori varla að greina það eitthvað nánar það gæti komið illa út fyrir mig!!!
Hafðu það gott.

mánudagur, mars 19, 2007 5:14:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home