þriðjudagur, mars 27, 2007

jahérnahér

Ætti nú að vera að skrifa ritgerð frekar en að hanga á netinu, hvað þá að blogga en hins vegar var mér hætt að lítast á hvert umræður í gegnum komment við síðustu færslu stefndu og ákvað því að freista þess að stöðva þær með því að setja inn nýja færslu. Hún verður reyndar ekki löng svo það er ekkert víst að hún skili tilætluðum árangri. En þetta er sem sagt mín fyrsta tilraun til ritskoðunar á síðunni (best að byrja varlega).

Ég hef nú lítið verið fyrir að tjá mig opinberlega um pólitík og það má kannski segja að það sem fer hér á eftir komi úr hörðustu átt eftir komment sem ég er nýbúin að skrifa hjá landgræðslustrumpnum. Það komment varðaði einkum nokkra ónafngreinda einstaklinga sem eitt sinn litu við á Hlégarði seint á kosninganótt. Ætla ekki að tíunda heimsókn neitt nánar, þeir sem vilja frekari upplýsingar geta litið við hjá fyrrnefndum strumpi.

Alla vega, þetta er ekki gott innlegg í málefnalega eða vitiborna umræðu, ég veit það vel en mikið ofboðslega finnst mér þetta fyndið.........

"Veistu hver er munurinn á Campari og Samfylkingunni? Bæði rauð og bitur, en Campari nær samt 21%"

Þetta fann ég sem sagt á bloggsíðu Jóns Axels Ólafssonar en er víst upphaflega komið frá einhverjum öðrum og á sá að mínu mati heiður skilinn fyrir skemmtilegan húmor en jafnframt vona eg að viðkomandi láti það eiga sig að taka þátt í pólitík, eða haldi þá alla vega svona bröndurum fyrir sig á meðan.

kveðja frá sveitalubba í ritgerðarskrifum

p.s. systur að nafni Ingibjörg og Sólrún fást keyptar saman eða sín í hverju lagi gegn vægu gjaldi. Stórbeinóttar, holdgrannar, þráar og óstýrilátar (spyrjið bara Sigtrygg á Litlu Ásgeirsá og Garðar í Stórhól). Vegna takmarkana á flutningi lifandi búfjár milli svæða koma þær þó til með að þurfa að millilenda í Sláturhúsinu á Hvammstanga áður en þær fara til nýrra eigenda. Nánari upplýsingar fást hjá sveitalubbanum eða Siggu systur. Og það skal tekið fram að það er af einskærri tilviljun að þessi auglýsing er sett í sömu færslu og brandarinn hér að ofan:) og ekki er ætlast til að hún sé afrituð eða dreift með nokkrum hætti.

Efnisorð:

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég er ánægð með að þú skulir vera að auglýsa systurnar til sölu, ég er algjörlega sannfærð um að það er þráabragð af þeim og langar þess vegna ekkert að éta þær sjálf... en hverjir voru það eiginlega sem eyðilögðu kosningavökuna þarna um árið? Eða er það hernaðarleyndarmál?

miðvikudagur, mars 28, 2007 12:03:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

SEK, ætli það hafi ekki verið m.a. ég sem gerði þetta kvöld svona ömurlegt!!! gott að það er allavega munað eftir manni!! (Pollýanna alltaf til staðar)
Ég segi eins og þú Hallfríður þetta er nú pínu fyndinn brandari...

fimmtudagur, mars 29, 2007 11:37:00 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Held að kvikindi sem bera þessi tilteknu nöfn séu best dauð satt best að segja. Er nokkuð örugg með að Garðar verður glaður með það allavega!

fimmtudagur, mars 29, 2007 1:57:00 e.h.  
Blogger Hallfríður Ósk said...

Þú varst nú ekki ein Sigga mín og ég vil kannski ekki taka svo sterkt til orða að kvöldið, eða nóttin öllu heldur, hafi verið ömurleg út af ykkur:) Enda fékk gleðin yfir því að ISG hefði dottið út úr þingmannahópnum undir morgun, eftir að hafa lafað þar inni mest alla nóttina mann til að gleyma öllu sem aflaga hafði farið einhverja mánuði á undan. Annars eruð þú og aðrir sem komu við þessa nótt besta fólk. Eigið bara ekkert að vera að tjá ykkur um pólitík undir áhrifum áfengis:) Reyndar á það nú við um fólk svona almennt en ekki bara vinstri græna.
Og Maríanna, kvikindin í auglýsingunni munu deyja, væntanlega fljótlega en alla vega áður en þau ná 1,5 árs aldri:)Getur sagt Garðari það

fimmtudagur, mars 29, 2007 7:37:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég gæti nú trúað að kvikindin séu dauð nú þegar, pabbi var allavegana að senda eitthvað í kaupstaðinn um daginn

fimmtudagur, mars 29, 2007 7:40:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Líst vel á þennan brandara.... Pólitík er bara eins og hver önnur tík og best að gera grín að öllu saman.. ;)
En hvernig er það ætlum við ekkert að hittast í sumar??
Kv. úr vorveðrinu í Suðursveit
Þórey

föstudagur, mars 30, 2007 2:22:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home