þriðjudagur, maí 22, 2007

jafnrétti hvað

Hvaða andskotans jafnrétti er í því að hafa jafna kynjaskiptingu í ráðherraembætti þegar karlar eru fleiri á þingi. Ég er ekki mjög klár í líkindareikningi en sýnist nokkuð augljóst að það er verið að taka konur fram yfir karla eingöngu á grundvelli kynferðis, konur hafi þá hærri líkur á að verða ráðherra og það getur að mínu mati aldrei talist jafnrétti. Þetta er dæmi um kvenréttindastefnu eða öðru nafni kvenrembu sem er alls ekki jákvæð.
Óþolandi þessi afbökun á jafnréttishugtakinu sem sést svo ótrúlega víða. Það er eins og fólk viti ekki lengur hvað orðið "jafn" þýðir.

Annars hafði ég lúmskt gaman að því að til skamms tíma í dag birtist myndin og videoið sem fylgir fréttinni í linknum hér að ofan einnig með frétt um ofsaakstur einhvers staðar á Reykjavíkursvæðinu. Sjálfsagt hefur það ekki verið ISG sem var með svona þungan bensínfót, alla vega sýnist mér vera búið að breyta þessu núna en mér fannst þetta samt skemmtilegt.

Ég mátti bara til með að hvæsa aðeins yfir þessu kellingakjaftæði hérna og nú er það búið og ég hef enga afsökun lengur fyrir að fara að ráðast á þvottafjallið mitt. Held ég sakni þvottavélarinnar minnar meira en allra annarra að heiman (eða svona næstum því alla vega), en nú eru ekki eftir nema 2-3 skipti eftir þetta og svo get ég farið að í þvo þegar mér sýnist , án þess að fara að heiman og án þess að borga fyrir það fúlgur fjár í hvert skipti.

Sumarkveðja
Sveitalubbinn - á heimleið eftir nákvæmlega einn mánuð:)

Efnisorð:

fimmtudagur, maí 17, 2007

lífið eftir kosningar/eurovision!!

Kannski það sé tímabært að blogga um síðustu helgi, svona áður en það kemur ný. Það er reyndar enginn farinn að kvarta yfir bloggleysi enn, sem ég eiginlega frekar móðguð yfir, en nú kemur samt löööööööng færsla. Langar nefnilega ekki að fara að sofa og nenni ekki að lesa meira.

Alla vega þá var helgin fín. Skellti mér til Svíþjóðar á laugardaginn og eyddi kvöldinu í að éta góðan mat og drekka góða drykki í afar góðum félagsskap. Þvílíkur snilldar drykkur þessi mojito!!!

Það var náttúrulega horft á Eurovision og svo kosningasjónvarpið í framhaldi af því. Entist nú ekki nema fram undir klukkan þrjú í þetta skiptið, hefði líklega verið praktískara að fara fyrr að sofa og vakna í staðinn á venjulegum tíma (7-8) og ná þá restinni af talningunni en það er of seint séð núna. En þá að úrslitunum og fyrst Euroinu
  • Ennþá fúl yfir að Eiríkur komst ekki áfram
  • Sé samt engan tilgang í að missa mig í einhverjum austurevrópusamsæriskenningum
  • Í fyrsta lagi voru vestur evrópsku lögin (að því íslenska undanskildu) hvorki betri né verri en þau lélegustu sem komust áfram. Fannst t.d. fimmtuga Selma Björnsdóttirin frá Noregi ekki spennandi þó hún hefði það fram yfir dönsku dramadrottninguna að geta bæði borið sig nokkuð eðlilega um á hælaskónum og haldið lagi. Ef ég hefði ráðið hvaða lög hefðu komist áfram hefðu það verið Eiríkur og restin frá austur evrópu.
  • Í öðru lagi er það bara versta hræsni að tuða um samsæri og óeðlilegar stigaveitingar til nágranna þegar við leikum nákvæmlega sama leikinn. Erum bara svo óheppin að norðurlandaþjóðirnar eru fáar miðað við þær austur evrópsku.
  • Var nokkuð sátt við úrslitin í aðalkeppninni, fallegt lag og góð söngkona en afar leiðinlegt að horfa á hana. Samt plús að það sé ekki nauðsynlegt að vera í snípsíðu pilsi og með sílikonbrjóst til að vinna
  • Ungverska eða slóvakíska lagið hefðu reyndar alveg eins mátt vinna.
  • Skil aldrei hvað þessi "húmors" atriði ná langt í stigagjöfinni, iðulega í öðru sæti, sbr. það úkraínska núna og we are the winners dæmið í fyrra. Ég veit alveg að maður á ekki að taka þessa keppni of alvarlega en þetta er söngvakeppni og því fáránlegt að kjósa léleg og leiðinleg lög bara af því að manni finnst þau eða flytjandinn fyndinn
  • Finnska og Sænska lagið hefðu að mínu mati alveg mátt vera ofar, bæði prýðisgóð alveg (og ekki eykur það líkurnar fyrir Ísland að komast í aðalkeppnina á næsta ári þegar öll norðurlöndin verða í undankeppninni)
  • Að öðru leiti var mér slétt sama og finnst þetta tuð um að hætta að taka þátt út af litlum vinningsmöguleikum bara heimskulegur. Ekki heyrir maður talað um að hætta að vera með landslið í fótbolta þó að árangurinn sé yfirleitt ekki betri þar á bæ. Þetta er afþreyingarefni fyrst og fremst og virkar bara ágætlega sem slíkt. Við vitum það líka alveg að við erum alltaf best, í þessu sem öðru, og ef aðrir sjá það ekki, þá bara er það bara þeirra vandamál.


en nóg um eurovision og best að snúa sér að hinum kosningunum, þessum þar sem einhverju máli skiptir hver vinnur eða tapar. Reyndar er það nú alltaf svo að daginn eftir virðast allir hafa unnið. Annað hvort er það sigur eða varnarsigur og núna bættist reyndar ný tegund af sigri við, þ.e. að sigra kosningabaráttuna. Skrítið samt að daginn eftir kjördag skuli allt í einu vera hægt að taka mark á og miða við skoðanakannanir sem fyrir sex vikum síðan voru bara ónákvæmar mælingar sem tæki því ekki að ræða. Já, skrítin þessi pólitík. En niðurstaðan eins og hún horfir við mér:

  • Feikn ánægð með mitt fólk. Að bæta við sig þetta miklu verandi með mikið fylgi fyrir og búin að vera í 16 ár í ríkisstjórn ER góður árangur. Með fullri virðingu fyrir árangri VG sem var vissulega glæsilegur þá er fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins ekki síður sigur þó að hún hafi ekki verið jafn mikil í prósentum talið, enda væri það aldrei raunhæft miðað við hvað þeir voru með mikið meira fylgi en VG fyrir. Það þarf enginn að segja mér að VG eigi eftir að auka við sig í sama mæli og núna þegar/ef þeir komast upp undir eða yfir 20% fylgi.
  • Hálfvorkenni framsóknarmönnum útreiðina - þ.e öllum nema einum, eða einni öllu heldur. Hins vegar má kannski benda á að ef á að taka upp keppnina um að vinna kosningabaráttuna eru það nú örugglega ekkert síður framsókn en samfylking sem fagnar sigri þar þar sem þeir fengu líka töluvert meira í kosningunum en í skoðanakönnunum.
  • Vonbrigiði kosninganæturinnar voru náttúrulega að samfylkingin skyldi fá þetta mikið af atkvæðum. Veit alveg að þeir töpuðu fylgi og allt það en að mínu mati er eitt prósent atkvæða ofrausn fyrir þau og hvað þá 20-30 eða hvað það nú var sem þau fengu.
  • Staða kvenna í mínu kjördæmi. Hmmmmm, slétt sama skal ég segja ykkur. Það var mikið hamrað á því að kjósa samfylkingu eða framsókn því að þar væru konur í baráttusætum sem yrði bara að koma inn. Hvorug þessara kvenna á að mínu mati nokkuð erindi á þing auk þess sem svona áróður finnst mér alltaf fráhrindandi. Það á ALDREI að kjósa manneskju bara af því að hún er svo heppin/óheppin að vera ekki með typpi og bara það að hvetja fólk til þess er móðgandi við bæði viðkomandi frambjóðendur og kjósendur. Svo má alveg benda samfylkingar- og framsóknarfólki á að það voru konur í næstu sætum við "öruggu sætin" hjá fleiri flokkum en þessum tveimur þannig að ef aðalmálið er að koma að kvenmanni var ekkert rökréttara að hvetja til kosningar á þessum flokkum umfram aðra.
Ég var sem sagt bara býsna sátt með síðustu helgi enda ekki hægt annað þegar maður er í helgarlok kvaddur með fallegu blómi frá ungum manni:).Vikan hefur svo fram að þessu verið í nokkuð góðu samræmi við helgina, fyrir utan helvítis svínaerfðaefnið sem neitar að haga sér eins og það á að gera. Við Magga erum að verða sérfræðingar í að hantera DNA og gera klárt fyrir greiningu en árangurinn lætur á sér standa. Kannski rétt að taka það fram að vandamálið er samt ekki að við gerum þetta vitlaust því að hluti af sýnunum gefur alltaf fullkomna niðurstöðu. Er það þá ekki bara nóg gæti einhver spurt, hægt að nota bara þau sem virka? Jú, maður gæti haldið það en það eru bara alltaf sömu svínin sem klikka - þau heilbrigðu en þau sjúku eru í lagi sem gerir mjög erfitt og reyndar ómögulegt að bera saman heilbrigð og sjúk sem var jú markmiðið með þessu öllu saman. En þetta hlýtur nú að reddast allt saman fyrir rest.

Skapið versnaði hins vegar all verulega í dag þegar það fréttist að það séu allar líkur á að samfylkingin komist í stjórn þetta kjörtímabilið. Vil ekki, vil ekki vil ekki. Spurning um að vera ekkert að hafa fyrir því að flytja heim aftur næstu fjögur árin. Hefði frekar viljað sjá Íslandshreyfinguna í stjórn en þetta he****i. Hafði samt lúmskt gaman af því að fylgjast með ISG berjast við að bakka með allt sem hún hefur sagt eða gefið í skyn um Sjálfstæðisflokkinn og veru hans í stjórnarráðinu undanfarin fjögur ár. Reyndar hjálpar það henni núna að hún talar aldrei hreint út heldur gefur hlutina í skyn og er með dylgjur og ver sig svo með því að hún hafi nú ekki sagt hlutina svona eða hinsegin eða ekki meint þá eins og allir hafa skilið þá. Alla vega þá er ég þessa stundina enn súrari en ég var þegar ég skrifaði síðustu færslu fyrir réttri viku síðan.

Reyndar er fleira sem spilar inn í þessi súrheit og veldur versnandi andlegu ástandi og almennri líðan sem er synd því að andlega hliðin hefur verið óvenju góð undanfarnar vikur. Ætla svo sem ekki að fara nánar út í það í bili.

Það sem helst bjargar geðheilsunni núna er flugmiðinn sem ég ætla að fara að kaupa mér á eftir og svo myndirnar sem Sigríður sendir mér svo samviskusamlega.
Hér eru tvö dæmi:

Annars vegar fyrsta botnótta lambið sem fæðist í Víðidalstungu alla vega frá því að ég fer að muna eftir mér. Verst að það skuli vera svona vanskapað...

Hins vegar litla ljóta flókatryppið mitt, fyrsta folaldið sem fæddist í Víðidalstungu í sjálfsagt ein fjörutíu ár. Hún virðist ætla að verða alveg ósköp líkt mömmu sinni í útliti og vonandi þá bara í öðrum eiginleikum líka. Rifjast upp fyrir mér núna að fyrir tíu mánuðum síðan síðan sagði ég að líklega yrði hún móvindótt eins og pabbi sinn en eins og glöggt má sjá er hún löngu hætt við það. Alla vega langsætust þrátt fyrir að vera móbrún lítil og ljót, stuttfætt og kviðmikil.

Kominn háttatími
kveðja
Sveitalubbinn, ennþá súr í Köben


Efnisorð: , , ,

miðvikudagur, apríl 25, 2007

Hmmmm.....

....kannski bara best að ýta kirkju/trúarumræðunni aðeins neðar. Er aldrei gott að vera að tjá sig um eitthvað sem er of óljóst og ómótað í kollinum á manni til að maður geti rætt það skammlaust. Vil líka halda mig við þá stefnu sem ég hef reynt að hafa að leiðarljósi að þegja bara ef ég hef ekkert að segja og ég hef í sjálfu sér ekkert að segja um þessi mál að svo stöddu þó ég hafi eitthvað verið að myndast við það í gær. Alla vega, búið með þessar pælingar í bili, svona opinberlega a.m.k.

Annars er svo sem lítið að segja. Var rétt í þessu að setja inn link á nýju XD síðuna sem var verið að opna bara í gær eða fyrra dag. Er reyndar ekki búin að skoða hana mikið en lítur vel út við fyrstu sýn alla vega. Gaman að skoða myndasyrpuna sem heitir "hin hliðin á landsfundi", fær mann bara til að langa að fara aftur á svoleiðis samkomu. Húnvetningar eiga meira að segja sinn fulltrúa í myndasyrpunni, sá er þó ekki í ræðustól heldur að sinna brýnni erindum:)

Setti líka inn linka á síðurnar hjá Bændablaðinu og Landssamtökum sauðfjárbænda. Var reyndar efins um LS síðuna. Hún er náttúrulega í fyrsta lagi dáldið hrá ennþá sem þarf þó ekki að vera frágangssök þar sem það stendur vonandi til bóta. Nei efinn kom til af því að ég varð svo fjúkandi vond þegar ég sá eina ályktunina sem var samþykkt á aðalfundinum um daginn, eða réttara sagt hluta af einni ályktuninni sem mér finnst bara arfavitlaus og úr öllum takti við ræktunarmarkmið og þörfina á að aðlaga framleiðsluna að kröfum markaðarins. Hins vegar voru greinilega ýmsar ágætar ályktanir samþykktar þannig að ég ákvað að láta síðuna fljóta inn út á það og vona bara að þessi eini ályktunarpartur komist aldrei neitt lengra.

Heilsufarið fer skánandi, verst að þessi pestarskítur hefur tafið mig við lesturinn (ég get alla vega reynt að telja mér trú um að ég hefði lesið í gær og fyrradag ef ég hefði verið frískari). Þrátt fyrir batnandi heilsu voru afköstin reyndar minni í dag en ég hefði viljað en við hverju er að búast þegar lesefnið inniheldur setningar á borð við þessa: "Two-month-old Itgb6+, Itgb6-Tg(ITGB6FL) and Itgb6-Tg(ITGB6777T mice have markedly reduced levels of Mmp12 expression compared with Itgb6- and Itgb6-Tg(ITGBD140A) mice". Frekar auðvelt að tapa einbeitingunni yfir svona texta og því er ég ekki búin að lesa nema brot af því sem ég ætlaði mér að vera búin með fyrir morgundaginn. Þrátt fyrir það hef ég líklega sjaldan eða aldrei verið búin að lesa jafn mikið á þriðja degi annar og núna, hefur aldrei verið mín sterka hlið að byrja að læra á sama tíma og það er byrjað að kenna mér.

En jæja, nú er ég búin að eyða svo löngum tíma í að blogga til að það sé orðið nokkuð ljóst að ég les ekki meira í kvöld og því best að hafa sig í háttinn. Er ekki einu sinni viss um að ég hafi rænu á að drekka bjórinn sem ég á inni í ísskáp, síðasta bjórinn í fyrstu og líklega jafnframt seinustu bjórkippunni sem ég kaupi mér í þessum mánuði - taktu eftir því Óðinn (NB ég er ekki heldur búin að kaupa mér bjórkassa eða staka bjóra, í þessum mánuði hef ég ekki keypt annað áfengi en þessa sex Carlsberg og geri aðrir betur búandi í Danaveldi).

Eða jú, kannski ég skelli þessum síðasta í mig, hann gæti verið alveg að fara að skemmast.

Batnandi sveitalubbinn býður góða nótt og biður að heilsa í bili

Efnisorð: , ,

þriðjudagur, mars 27, 2007

jahérnahér

Ætti nú að vera að skrifa ritgerð frekar en að hanga á netinu, hvað þá að blogga en hins vegar var mér hætt að lítast á hvert umræður í gegnum komment við síðustu færslu stefndu og ákvað því að freista þess að stöðva þær með því að setja inn nýja færslu. Hún verður reyndar ekki löng svo það er ekkert víst að hún skili tilætluðum árangri. En þetta er sem sagt mín fyrsta tilraun til ritskoðunar á síðunni (best að byrja varlega).

Ég hef nú lítið verið fyrir að tjá mig opinberlega um pólitík og það má kannski segja að það sem fer hér á eftir komi úr hörðustu átt eftir komment sem ég er nýbúin að skrifa hjá landgræðslustrumpnum. Það komment varðaði einkum nokkra ónafngreinda einstaklinga sem eitt sinn litu við á Hlégarði seint á kosninganótt. Ætla ekki að tíunda heimsókn neitt nánar, þeir sem vilja frekari upplýsingar geta litið við hjá fyrrnefndum strumpi.

Alla vega, þetta er ekki gott innlegg í málefnalega eða vitiborna umræðu, ég veit það vel en mikið ofboðslega finnst mér þetta fyndið.........

"Veistu hver er munurinn á Campari og Samfylkingunni? Bæði rauð og bitur, en Campari nær samt 21%"

Þetta fann ég sem sagt á bloggsíðu Jóns Axels Ólafssonar en er víst upphaflega komið frá einhverjum öðrum og á sá að mínu mati heiður skilinn fyrir skemmtilegan húmor en jafnframt vona eg að viðkomandi láti það eiga sig að taka þátt í pólitík, eða haldi þá alla vega svona bröndurum fyrir sig á meðan.

kveðja frá sveitalubba í ritgerðarskrifum

p.s. systur að nafni Ingibjörg og Sólrún fást keyptar saman eða sín í hverju lagi gegn vægu gjaldi. Stórbeinóttar, holdgrannar, þráar og óstýrilátar (spyrjið bara Sigtrygg á Litlu Ásgeirsá og Garðar í Stórhól). Vegna takmarkana á flutningi lifandi búfjár milli svæða koma þær þó til með að þurfa að millilenda í Sláturhúsinu á Hvammstanga áður en þær fara til nýrra eigenda. Nánari upplýsingar fást hjá sveitalubbanum eða Siggu systur. Og það skal tekið fram að það er af einskærri tilviljun að þessi auglýsing er sett í sömu færslu og brandarinn hér að ofan:) og ekki er ætlast til að hún sé afrituð eða dreift með nokkrum hætti.

Efnisorð: