sko
Ég hef það stundum á tilfinningunni að ég sé að blogga svo oft og mikið að það nenni enginn að lesa þetta að jafnaði, eða gefi sé rekki tíma til þess. En það er svo sem allt í lagi. Fyrir mig alla vega, verra fyrir ykkur sem þá missið af viskunni:
Verður samt ekki löng færsla í dag, ætlaði bara rétt að henda inn stjörnuspánni minni af mbl.is
Ljón: Þú er tilfinningalega auðsæranlegri en fólk álítur. Kannski er það af því að þú virðist harður, alltaf með allt á hreinu og fátt fer í taugarnar á þér. Sýndu fólki mjúku hliðina á þér - hún er líka heillandi.
Ekki skal ég dæma um hvort það sé eitthvað til í þessu en ég hnaut svoldið um síðustu setninguna. Sýna fólki mjúku hliðina, ekki nema það þó, er ekki í lagi með fólk. Maður er búinn að leggja sig allan fram um það dag eftir dag og ár eftir ár að reyna að verða töffari (má kannski deila um árangurinn) og fela mjúku hliðarnar og bara glætan að maður fari eitthvað að hætta því viljandi. Nei, ekkert tilfinningakjaftæði hér takk og mjúka hliðin verður bæld eins og frekast er unnt hér eftir sem hingað til.
kveðja úr sólinni

Efnisorð: stjörnumerki, sveitalubbafréttir

7 Comments:
Er ekki spurning um að vera bara best/-ur báðum megin? Ég er búinn að fara þá leið í nokkur ár með framúrskarandi árangri. Ég reyndar skipti tilfinningakjaftæðishliðinni út fyrir harðari hlið en þá hörðu, grunnurinn að velgengninni. Nóg kjaftað, best að fara að móðga einhvern.
Ég vil meina að ég hafi beint mjúku hliðinni að jörðinni í dag þegar ég datt af baki og þess vegna komist nokkurn veginn heil frá því, er ekki bara verið að meina svoleiðis?
Er þá bara verið að tala um að snúa rassinum í fólk. Eða sýna fólki sérstaklega rassinn. Hver er þá harðari hliðinn hjá Gústav????
Líklega er það þannig Siggi ef rassinn er það mjúkasta sem þú hefur yfir að ráða... :o)
Ég er alveg sannfærð um að rassinn er það mýksta á mér... allavegana það stærsta...
haha, ekki sá ég það fyrir að umræðan myndi fara að snúast um mismunandi mjúka líkamsparta, var hreinlega ekki búin að sjá þann flöt á þessari stjörnuspá. Alla vega á hreinu að ef sú merking er lögð í þetta þá er hef ég ekkert annað en mjúkar hliðar og því líkamlega ófær um að sýna fólki nokkuð annað. Og þar með tilneydd til að fara eftir spánni...
Ég er hreint ekki viss um að ég hafi viljað vita að Siggi væri að spá í hvaða líkamshlutar af mér eru harðari en aðrir...
Skrifa ummæli
<< Home